Morgunblaðið - 04.07.2009, Síða 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2009
Vöfflur Fulltrúar launþega búa oft að góðu verkviti, enda lítið fyrir að naga blýanta. Ragnar Ólafsson, starfsmaður Eflingar, mundar ausu í Karphúsinu.
Eggert
Kristín Dýrfjörð | 3. júlí
Ljósmyndun í
leikskólastarfi
Í borginni Reggio Emilia á
Ítalíu er reknir leikskólar á
heimsvísu. Ein megin-
undirstaða starfsins þar
er það sem nefnt hefur
verið á íslensku uppeld-
isfræðileg skráning. Hún byggir á því að
læra með og af barninu, að fylgja eftir
einu barni eða litlum hópi barna með
ýmsum aðferðum. Þegar fólk skoðar
skráningar starfsfólks leikskólanna í
Reggio Emilia, undrast það. Það undrast
m.a. yfir hugmyndum, tjáningu og gæð-
um sem finna má í skráningunum. Því er
stundum haldið fram að uppeld-
isfræðilegar skráningar í Reggio Emilia
séu sjálfstætt listform …
En það sem ber e.t.v. mest á er sú
virðing sem börn njóta, sú mikla trú sem
er á hugmyndum þeirra og möguleikum
– að börn eru vitsmunaverur, tilfinn-
ingaverur, félagsverur, að þau hafa
hundrað möguleika til að tjá sig, hundr-
að mál og tæknin veitir þessum málum
vængi.
Meira: roggur.blog.is
Dofri Hermannsson | 2. júlí
Bílaplanið við
Egilshöll lagað
Til mikillar ánægju fyrir
undirritaðan og aðra
Grafarvogsbúa verður
planið við Egilshöll loks-
ins klárað en það hefur
verið eitt samfellt polla-
og holusvæði frá upphafi
með tilheyrandi slysahættu …
Samkvæmt samningi við eigendur
áttu þeir að klára frágang á planinu fyrir
mörgum árum. Sú staðreynd að ekki var
staðið við það var í raun nægjanlegt til-
efni til að halda eftir greiðslum eða rifta
samningnum.
Það er gott að það er búið að lenda
þessu máli.
Meira: dofri.blog.is
Jón Ingi Cæsarsson | 3. júlí
Þegar græðgin glepur.
… Sýnishorn af því hvað
menn voru orðnir blindir
af glórulausri græðgi og
fyrirhyggjuleysi. Eimskip,
óskabarn þjóðarinnar
sem það var löngum kall-
að, varð fórnarlamb þeirr-
ar stórkostlega blindu einstaklinga sem
töldu sér alla vegi færa.
Nú hefur komið í ljós að þessir menn
kunnu ekkert fyrir sér í rekstri og byggðu
velgengni sína á ótakmörkuðum aðgangi
að lánsfé. Að ætla síðan að sækja ofur-
laun árum saman í fyrirtækið sem var
slátrað lýsir blindunni hvað best …
Meira: joningic.blog.is
STÆRSTA hagsmunamál at-
vinnulífsins, launþega og atvinnu-
rekenda er að tryggja starfsskilyrði
sem gera íslenskum fyrirtækjum
mögulegt að vaxa og dafna og
skapa þannig atvinnu og hagsæld.
Hér fara saman hagsmunir þeirra
sem reka fyrirtæki og þeirra sem
reka heimili og þurfa að sjá sér og
sínum farborða. Nægir að nefna
stöðugan gjaldmiðil, sanngjarna
vexti, skaplegt matvælaverð og síð-
ast en ekki síst gagnkvæmt traust
sem er forsenda farsælla samskipta
og viðskipta við umheiminn.
Við erum sammála um að hags-
munum íslensku þjóðarinnar verði
best borgið innan ESB og með upp-
töku evru. Þess vegna viljum við að
þegar verði sótt um aðild að ESB
og gengið frá aðildarsamningi þar
sem heildarhagsmunir þjóðarinnar
eru hafðir að leiðarljósi.
Það er fagnaðarefni að Alþingi
fjalli nú um umsókn Íslands að
Evrópusambandinu og að rík-
isstjórnin hafi sett sér það markmið
að sækja um aðild innan skamms.
Það verður ekki
framhjá því litið
að atburðir síð-
ustu missera, nú-
verandi staða
efnahagsmála og
framtíðarhorfur
gera aðild-
arviðræður við
Evrópusam-
bandið brýnni og
mikilvægari en
nokkru sinni. Ekki verður unað við
að beðið verði lengur með að taka
af skarið – biðin og frestun á því að
taka á málinu er orðin lengri en
góðu hófi gegnir. Tíminn skiptir
höfuðmáli.
Við skorum á utanríkismálanefnd
Alþingis að sameina í eina þær
tvær þingsályktunartillögur sem
hún hefur til meðferðar í Evrópu-
málum, aðra frá stjórnarflokkunum
og hina frá Sjálfstæðisflokki og
Framsóknarflokki. Hin sameinaða
tillaga á að fela í sér að sótt verði
um aðild á næstu vikum, gengið til
samninga og að samningi gerðum
verði hann borinn undir þing og
þjóð.
Við skorum jafnframt á þingheim
allan að sameinast um trúverðuga
aðildarumsókn því víðtæk samstaða
er þjóðarnauðsyn og þingmenn eiga
að leggja sitt af mörkum til þess að
koma Evrópumálunum í hendur
þjóðarinnar sjálfrar.» Við erum sammála
um að hagsmunum
íslensku þjóðarinnar
verði best borgið innan
ESB og með upptöku
evru.
Árni Gunnarsson, formaður Samtaka
ferðaþjónustunnar,
Erlendur Hjaltason, formaður Við-
skiptaráðs Íslands,
Guðmundur Gunnarsson, formaður
Rafiðnaðarsambands Íslands,
Gylfi Arnbjörnsson, forseti Alþýðu-
sambands Íslands,
Helgi Magnússon, formaður Samtaka
iðnaðarins,
Kristinn Örn Jóhannesson, formaður
VR,
Kristján G. Gunnarsson, formaður
Starfsgreinasambands Íslands,
Margrét Guðmundsdóttir, formaður
Félags íslenskra stórkaupmanna,
Margrét Kristmannsdóttir, formaður
SVÞ – Samtaka verslunar og þjón-
ustu.
Samstaða er þjóðarnauðsyn
Erlendur
Hjaltason
Guðmundur
Gunnarsson
Margrét
Guðmundsdóttir
Gylfi
Arnbjörnsson
Árni
Gunnarsson
Margrét
Kristmannsdóttir
Helgi
Magnússon
Kristinn
Jóhannesson
Kristján
Gunnarsson
Vegna umræðu um samninga við
Bretland og Holland um skuldbind-
ingar Íslands vegna innstæðutrygg-
inga er áhugavert að rýna í nýút-
komna hagspá OECD, Economic
Outlook og bera saman stöðu og
horfur á Íslandi, á Bretlandi og í
Hollandi. Hér verður þetta gert í ör-
stuttu máli.
Víkjum fyrst að almennum lífs-
kjörum. Algengur hagrænn mæli-
kvarði á þau er landsframleiðsla á
mann leiðrétt fyrir mismunandi
verðlagi vöru og þjónustu eftir löndum. Á yf-
irstandandi ári má ætla, skv. tölum OECD, að
Ísland liggi mitt á milli Hollands og Bretlands á
þennan mælikvarða: Í Hollandi verða tekjur á
mann um 7% hærri en á Íslandi en á Bretlandi
verða þær um 5% lægri.
Mikill samdráttur er í landsframleiðslu á
þessu ári í öllum löndunum þremur, spáð er 7%
samdrætti á Íslandi, 4,3% á Bretlandi og 4,9% í
Hollandi. Þetta þýðir aukið atvinnuleysi; á Ís-
landi er spáð að atvinnuleysi verði 8,4% af
mannafla, á Bretlandi er spáin 8,2% en 4% í Hol-
landi. Spáð er auknu atvinnuleysi í öllum lönd-
unum á næsta ári, 9,9% á Íslandi, 9,7% á Bret-
landi og 7% í Hollandi. Samdrætti
og atvinnuleysi fylgir mun lakari
afkoma hins opinbera: OECD spáir
halla á rekstri hins opinbera árið
2009 sem nemur 10,7% á Íslandi,
12,8% í Bretlandi og 4,4% í Hol-
landi. Afkoman versnar enn árið
2010 á Bretlandi og í Hollandi, en
spáð er betri afkomu hér á landi.
Þegar litið er fram til ársins
2017 spáir OECD nokkru meiri
hagvexti (2,9% á ári) á Íslandi
heldur en í hinum löndunum tveim-
ur (2,7% í Bretlandi og 2,2% í Hol-
landi). Á hinn bóginn stendur Ís-
land frammi fyrir auknum vaxtagreiðslum af
erlendum lánum þannig að sennilega er varlegt
að gera ráð fyrir að afstöður milli landanna að
því er varðar almenn lífskjör haldist nokkurn
veginn óbreyttar, þ.e. að á Íslandi verði þau á
milli þess sem gerist í Hollandi og Bretlandi.
Árið 2017 verður hið opinbera (ríki og sveit-
arfélög) mjög skuldugt ef marka má OECD.
Brúttóskuldir Íslands verða 110% af landsfram-
leiðslu en á Bretlandi verða þær enn meiri eða
125% af landsframleiðslu. Hollandi er spáð betri
stöðu því þar eiga skuldirnar að verða 63% af
landsframleiðslu. Staða Íslands skánar mikið
þegar litið er til hreinna skulda hins opinbera því
reiknað er með að þær verði 39% af landsfram-
leiðslu á Íslandi árið 2017 á móti 97% í Bret-
landi. Holland verður best sett, með hreinar
skuldir sem nema 24% af landsframleiðslu. Þess-
ir útreikningar OECD byggjast á tilteknum for-
sendum um rekstur hins opinbera, m.a.verður
ekki betur séð en að reiknað sé með meira að-
haldi bæði í Bretlandi og Hollandi heldur en á
Íslandi. Að sjálfsögðu verður að setja fyrirvara
um spá til svo langs tíma – um hana ríkir meiri
óvissa en um spár til styttri tíma. Einnig kann
að vera að spáin sé of bjartsýn um skuldastöðu
Íslands. Það breytir þó vart breiðu dráttunum í
ofangreindum samanburði.
Eftir Friðrik Má Baldursson » Þessir útreikningar OECD
byggjast á tilteknum for-
sendum um rekstur hins opin-
bera, m.a.verður ekki betur séð
en að reiknað sé með meira að-
haldi bæði í Bretlandi og Hol-
landi heldur en á Íslandi.
Friðrik Már Baldursson
Höfundur er prófessor í hagfræði við Háskólann í
Reykjavík.
Rýnt í spá OECD: Ísland, Bretland, Holland
BLOG.IS