Morgunblaðið - 04.07.2009, Side 49
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JÚLÍ 2009
„ÉG HEF EKKI SKEMMT MÉR BETUR Í BÍÓ SÍÐAN
EINHVERN TÍMANN Á SÍÐUSTU ÖLD.“
„ÞÁ ER HANDRITIÐ MEINFYNDIÐ,
UPPFULLT AF GEGGJUÐUM UPPÁKOMUM.“
„FLEST LEGGST Á EITT AÐ HALDA MANNI Í NÁNAST
ÓSTÖÐVANDI HLÁTURSKASTI OG „GÓÐUM FÍLING“,
ALLT FRÁ UPPHAFSMÍNÚTUNUM...“
S.V. - MBL
SÝND MEÐÍSLENSKUTALI
FRÁBÆR
FJÖLSKYLDUSKEMMTUN
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
SÝND M
EÐ
ÍSLENS
KU OG
ENSKU
TALI
SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRISÝND Í KRINGLUNNI
MISSIÐ EKKI AF
STÆRSTU OG
SKEMMTILEGUSTU
TEIKNIMYND ÁRSINS!
OG NÚNA LÍKA Í
HEIMSFRUMSÝNING!
STÆRSTA BÍÓOPNUN Á ÍSLANDI ÁRIÐ 2009
VINSÆLASTA MYNDIN Á
ÍSLANDI ÁRIÐ 2009
48.000 MANNS FRÁ FRUMSÝNINGU!
SPARBÍÓ 550 krkr á allar sýningar merktar með appelsínugulu
SÝND Í ÁLFABAKKA OG AKUREYRI
ATH: FYRSTA SÝNING ER KL. 13:30 Í ÁLFABAKKA
/ AKUREYRI
TRANSFORMERS 2 kl. 4 - 8 - 11 Powers. kl. 11 10
STÍGV. KÖTTURINN m. ísl. tali kl. 4 L
HANNAH MONTANA kl. 6 L
THE HANGOVER kl. 8 - 10 12
/ KEFLAVÍK
TRANSFORMERS 2 kl. 2 - 5 - 8 - 11 Powers. kl. 11 10
ÍSÖLD m. ísl. tali kl. 2 - 4 - 6 L
GHOSTS OF GIRLFR. PAST kl. 8 7
MANAGEMENT kl. 10 7
/ SELFOSSI
TRANSFORMERS 2 kl. 5 - 8 - 11 Powers. kl. 11 10
GULLBRÁ OG BIRNIRNIR 3 kl. 4 L
YEAR ONE kl. 6 - 8 10
TERMINATOR SALVATION kl. 10 14
TÓNLISTARKONAN Lay Low ætlar að halda tónleika með stuttum fyr-
irvara á Café Rósenberg miðvikudagskvöldið 15. júlí nk.
Lay Low hefur ferðast um heiminn allt þetta ár og er t.d. nýkomin heim
frá tónlistarhátíðinni á Glastonbury þar sem hún spilaði við góðar und-
irtektir.
Í tilefni af tónleikunum fer nýtt lag með stúlkunni í spilun á næstunni, en
það heitir einfaldlega „Aukalagið“. Lagið rataði ekki inn á plötuna Farewell
Good Night’s Sleep þar sem það var ekki tilbúið þegar platan fór í fram-
leiðslu.
Forsala á tónleikana hefst miðvikudaginn 8. júlí kl. 10 á midi.is og af-
greiðslustöðum midi.is. Miðaverð er 1.000 krónur og eru einungis 150 að-
göngumiðar í boði.
Morgunblaðið/Golli
Lay Low Lætur að sér kveða, nýkomin af Glastonbury .
Tónleikar og nýtt lag
Eftir Birgi Örn Steinarsson
biggi@mbl.is
TÓNLEIKAR kammerrokksveit-
arinnar Hjaltalíns á Hróarskeldu-
hátíðinni á fimmtudag gengu víst
vonum framar. Sveitin lék í Pavil-
lion-tjaldinu sem alla jafna hýsir
tónleika sveita sem standa við
þröskuld heimsfrægðar, ef svo má
að orði komast. Um 2.000 manns
fylgdust með tónleikum Hjaltalíns
og á meðal þeirra laga sem sveitin
lék var Michael Jackson-slagarinn
„Don’t Stop Till You Get Enough“
af plötunni Off the Wall. Hjaltalín
spilaði svo á töluvert stærra sviði
á Open Air hátíðinni í Póllandi í
gærkvöldi en í kvöld kemur sveit-
in svo fram á lítilli tónlistarhátíð í
Bretlandi.
„Þau spiluðu í klukkutíma og
kortér og voru svo klöppuð upp,“
segir Steinþór Helgi Arnsteins-
son, umboðsmaður sveitarinnar.
„Það var brjálað stuð þegar þau
tóku „Þú komst við hjartað í mér“
en enn meira stuð þegar þau
spiluðu Jackson-lagið.“
Hljómsveitin æfði Jackson-lagið
skömmu fyrir tónleikana og ætlar
að halda því á dagskrá sinni út
tónleikaferðalagið. Það er svo
aldrei að vita nema sveitin leiki
lagið fyrir íslenska aðdáendur
sína þegar hún spilar í grunni Al-
þýðuhallarinnar í hádeginu á
mánudag.
Steinþór segist hafa tekið eftir
því að færri Íslendingar séu á Hró-
arskelduhátíðinni í ár en áður.
Engu að síður mátti sjá glitta í ís-
lenska fánann í mannþrönginni
fyrir framan sviðið.
Grín á Facebook
Það er greinilegt að liðsmenn
og fylgdarlið sveitarinnar hefur
skemmt sér konunglega á stuttri
dvöl sinni á hátíðinni. Guðmundur
Óskar, bassaleikari, sendi inn
mynd á Facebook-síðu sína og gaf
í skyn að liðsmenn hefðu átt
ánægjulegar samverustundir með
liðsmönnum Coldplay og Slip-
knot. Steinþór gerir þó lítið úr því.
„Þetta var nú bara grín hjá hon-
um,“ segir Steinþór og greina má
hlátrasköll liðsmanna sveitarinnar
í bakgrunninum. „Það gafst eng-
inn tími til þess. Það er frekar að
við náum að hitta einhverja í kvöld
þegar þau spila með Kings of
Leon, Artic Monkeys, Prodigy,
Duffy og fleirum.“
Jackson að hætti Hjaltalíns
Hljómsveitin kom fram á Hróarskelduhátíðinni í fyrradag
Hjaltalín Böðuð litríkum ljósum á Hróarskelduhátíðinni.