Morgunblaðið - 15.07.2009, Blaðsíða 26
26 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚLÍ 2009
Sudoku
Frumstig
1
2 7 6
9 6
4 9
2 3 4
7 8 1
4 5 3
8 2
3 8 9 7
3 4 5
9 3
2 4 7
9 5 8
8 3 6
3 8 2
4 1 9
3 5 2 1
3 6
9 2
5 1
2 7 8 1
1 2
4 8
2 3 9
1 6 5
6 8 7
2 5 6 1 3 8 4 9 7
4 1 7 9 5 6 3 8 2
8 9 3 7 2 4 5 1 6
3 7 8 6 1 9 2 5 4
5 6 4 8 7 2 1 3 9
9 2 1 5 4 3 7 6 8
7 3 9 4 6 5 8 2 1
6 4 5 2 8 1 9 7 3
1 8 2 3 9 7 6 4 5
6 7 9 4 8 3 2 5 1
2 3 8 1 7 5 4 6 9
1 5 4 2 6 9 8 7 3
3 8 1 9 2 6 5 4 7
7 6 2 3 5 4 1 9 8
9 4 5 8 1 7 3 2 6
5 1 7 6 4 8 9 3 2
4 2 3 7 9 1 6 8 5
8 9 6 5 3 2 7 1 4
6 5 7 2 1 4 9 3 8
4 8 3 7 5 9 1 6 2
1 2 9 3 6 8 7 5 4
5 3 4 6 9 1 8 2 7
8 6 2 4 7 3 5 9 1
9 7 1 8 2 5 6 4 3
7 9 5 1 3 2 4 8 6
2 1 8 9 4 6 3 7 5
3 4 6 5 8 7 2 1 9
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er miðvikudagur 15. júlí,
196. dagur ársins 2009
Orð dagsins: Því hvar sem fjársjóður
yðar er, þar mun og hjarta yðar vera.
(Lúk. 12, 34.)
Víkverji fylgdist af áhuga meðþættinum Mannamáli á Skjá-
Einum í fyrrakvöld í stjórn Sölva
Tryggvasonar á SkjáEinum og Þor-
björns Þórðarsonar á Morgun-
blaðinu. Var þátturinn vakinn af
sumardvala til að fjalla um Icesave-
málið. Víkverji heyrði af fólki, sem
lítinn tíma hefur haft til að átta sig á
málinu í allri orrahríðinni og tók því
fegins hendi að fá það sett fram með
einföldum og skýrum hætti. Þátt-
urinn hófst á yfirliti yfir Icesave-
málið og í kjölfarið fylgdu umræður.
Fyrst ræddu umsjónarmennirnir við
Davíð Oddsson, fyrrverandi forsætis-
ráðherra og seðlabankastjóra, sem lá
ekki á skoðunum sínum frekar en
fyrri daginn. Síðan tóku við líflegar
umræður með Steingrími J. Sigfús-
syni, Bjarna Benediktssyni, Sig-
mundi Davíð Gunnlaugssyni og Árna
Páli Árnasyni. Gott framtak hjá
SkjáEinum.
x x x
Víkverja finnst undarlegt að Kast-ljós Ríkissjónvarpsins skuli sent
í sumarfrí mitt í öllum hamagang-
inum vegna Icesave og Evrópusam-
bandsins, þótt vissulega beri að sýna
því skilning að þar þurfi að spara. Þó
var tekið fram að Kastljósið yrði end-
urræst þegar tilefni væri til.
x x x
Ámánudagskvöldið þótti greini-lega tilefni til og var Kastljós
sett á dagskrá. Ekki var þó að sjá að
það væri vegna þess að Kastljóss-
menn væru með brennandi heitt efni
í höndunum sem yrði að koma á
framfæri við landsmenn. Væri Vík-
verji ekki fullur af trú á náungann
gæti hann látið sér detta í hug að það
hafi ekki verið brennandi þörf til að
miðla upplýsingum til almennings,
sem réði för þegar ákveðið var að
rjúfa sumarfrí Kastljóssins, heldur
samkeppnissjónarmið. Að SkjáEin-
um skyldi aldeilis ekki verða kápan
úr því klæðinu að sitja einn að því að
senda út fréttaskýringarþátt á besta
sjónvarpstíma og neyta þannig afls-
muna ríkisrisans gegn lítilli sjón-
varpsstöð í einkarekstri, sem nú rær
lífróður. En vitaskuld hvarflar það
ekki að Víkverja. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 lykta af, 4 syfj-
uð, 7 ókyrrð, 8 undir-
okar, 9 tel úr, 11 stöð, 13
vaxi, 14 arar, 15 himinn,
17 mynni, 20 tryllta, 22
snauð, 23 böggull, 24 töl-
um um, 25 blómið.
Lóðrétt | 1 kipp, 2 ótti, 3
einkenni, 4 haltran, 5
fallegur, 6 æpi, 10 rík, 12
sé mér fært, 13 tímg-
unarfruma, 15 hrósar,
16 sjaldgæf, 18 poka, 19
myndarskapur, 20
keyrðum, 21 dýr.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 sykursjúk, 8 lukka, 9 tudda, 10 net, 11 glans,
13 innir, 15 stúss, 18 kappa, 21 Týr, 22 kauða, 23 orkar,
24 happasæll.
Lóðrétt: 2 yrkja, 3 uxans, 4 setti, 5 úldin, 6 slag, 7 saur,
12 nes, 24 nía, 15 sókn, 16 úruga, 17 staup, 18 kross, 19
pækil, 20 arra.
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c6 2. d4 d5 3. Rc3 dxe4 4. Rxe4
Bf5 5. Rg3 Bg6 6. Rh3 Rf6 7. Rf4 Rbd7
8. Bc4 Rb6 9. Bb3 Dd7 10. O-O Hd8 11.
c3 Rbd5 12. Rd3 Bxd3 13. Dxd3 g6 14.
Bg5 Bg7 15. Hfe1 h6 16. Bd2 O-O 17.
Had1 b5 18. h3 Dc7 19. a4 a6 20. Dc2 e6
21. Dc1 h5 22. Rf1 c5 23. axb5 axb5 24.
dxc5 Dxc5 25. Rh2 Rb6 26. Be3 Dc7 27.
Rf3 Rc4 28. Bd4 Hd5 29. Ba2 Ha8 30.
Db1 He8 31. b3 Ra3 32. Db2 Ha8 33. c4
bxc4 34. bxc4 Hf5 35. Rh4 Hf4 36. Be5
Rxc4 37. Dc1 Dc5 38. Dxf4 Rxe5 39.
Bxe6 Ha5 40. Bb3 Hb5 41. Rf3 Rxf3+
42. Dxf3 Dc7 43. Dd3 Hb8 44. Hc1 Db7
45. Hb1 Da7 46. Dd6 Kh7 47. Ha1 Db7
Staðan kom upp á hinu svokallaða
Kóngamóti sem lauk fyrir skömmu í
Bazna í Rúmeníu. Azerinn Teimour
Radjabov (2756) hafði hvítt gegn Gata
Kamsky (2720). 48. Bxf7! Hf8 49. He7
og svartur gafst upp.
Hvítur á leik
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Teiknað í vörn.
Norður
♠ÁDG105
♥K86
♦985
♣72
Vestur Austur
♠762 ♠943
♥D10643 ♥G9
♦D52 ♦ÁK76
♣K9 ♣10843
Suður
♠K8
♥Á52
♦G103
♣ÁDG65
Suður spilar 3G.
Þegar vestur lendir inni í öðrum slag
verður hann að taka réttan pól í hæðina.
Og til þess hefur hann allar upplýs-
ingar. Suður vakti á grandi (15-17),
norður yfirfærði í spaða og stökk svo í
3G. Vestur kemur út með smátt hjarta,
sagnhafi tekur á kónginn í borði, spilar
svo laufi á drottningu og kóng vesturs.
Setjum okkur í spor vesturs. Hvað veit
hann?
Eitt og annað. Til dæmis er augljóst
að suður er með ♥Á. Ennfremur má
álykta að suður hljóti að eiga ♠K, því án
hans hefði verið rökrétt að taka hjarta-
slaginn heima og svína strax í spað-
anum. En hvað á suður í laufi? Mjög lík-
lega ♣ÁDG. Með ♣Á hefði makker
drepið til að spila hjarta. Sé rétt reiknað
hefur suður sýnt 14 punkta: ♠K, ♥Á og
♣ÁDG. Eitthvað á hann í tígli, en það
þarf ekki að vera meira en gosinn.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Því fyrr sem þú gerir þér grein
fyrir því að þú getur ekki verið vakin(n)
og sofin(n) yfir velferð annarra því betra.
Mundu bara að græddur er geymdur eyr-
ir.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Mistök eru ekki endilega glæpur. Sá
sem lítur út eins og gamall elskhugi þarf
ekki að haga sér eins. Bogmaður gerir þér
frábært tilboð.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Tvíburar þurfa að segja nei.
Fyrrverandi maki skýtur upp kollinum.
Betra er að eiga fáa vini en góða.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú gerir það sem þú vilt. Hið
óþekkta afhjúpast vegna þarfarinnar fyr-
ir að vita og með því að setja annan fótinn
framfyrir hinn.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þú átt það svo sannarlega inni að líta
upp úr dagsins önn og gleðjast með vinum
og vandamönnum. Yfirleitt er það svo, að
ef þér finnst eitthvað skrýtið vera í gangi,
þá er það rétt.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Þér veitist erfitt að gera upp á milli
angurs og reiði í ákveðnu máli. Jafnvægið
þarna á milli fyllir hjarta þitt og bætir þar
að auki heilsuna á öllum sviðum lífs þíns.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú segist vera að leita eftir friði og
rólegheitum, en í laumi færðu mikið út úr
því að fylgjast með látunum í kringum
þig. Betur sjá augu en auga og margar
hendur vinna létt verk.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Nú reynir á þolinmæði þína
því ósanngjarnar afsakanir verða hafðar
uppi í þinn garð. Einhver reynir að breyta
þér eða „bæta“ þig.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Það er eins og allt ætli að
ganga upp hjá þér í dag. En þú átt ekki að
láta það eyðileggja fyrir þér daginn þótt
einhver annar hafi farið röngum megin
fram úr rúminu.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Það er alltaf fróðlegt að kynn-
ast fólki af framandi slóðum. Vertu góð
(ur) við sjálfa(n) þig og hlúðu að tilfinn-
ingasárum þínum, ef einhver eru.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Dagurinn er fallegur, sama
hvernig á það er litið. Gefðu þér tíma til
þess að melta þessa nýju vitneskju.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert staðráðin(n) í því að koma
einhverju í framkvæmd sem tengist fjár-
málum. Leyfðu þér líka að slaka á og
sletta úr klaufunum.
Stjörnuspá
Þetta gerðist …
15. júlí 1970
Stórbruni varð í verkstæðis-
byggingu Strætisvagna
Reykjavíkur við Kirkjusand.
Byggingin brann til kaldra
kola, einnig brunnu þrír
strætisvagnar og allar
varahlutabirgðir fyrirtæk-
isins. Tjónið var metið á tugi
milljóna króna.
15. júlí 1975
Matthías Bjarnason sjávar-
útvegsráðherra skrifaði undir
reglugerð um útfærslu fisk-
veiðilögsögunnar í 200 sjómíl-
ur, en útfærslan tók gildi
þremur mánuðum síðar. Þá
var búist við að þorskafli á Ís-
landsmiðum gæti numið 500
þúsund lestum á ári.
15. júlí 1997
Hæstiréttur komst að þeirri
niðurstöðu að ekki væru laga-
skilyrði til endurupptöku
Guðmundar- og Geirfinns-
mála.
15. júlí 1999
Bláa lónið í Svartsengi var
formlega tekið í notkun á nýj-
um stað. Það er umkringt Illa-
hrauni sem rann í eldgosi árið
1226. Lónið myndaðist upp-
haflega árið 1976, vegna
virkjunarframkvæmda, en
baðaðstaða var sett upp rúm-
um áratug síðar.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson
Í tilefni af 75
ára afmæli sínu
sl. vor mun
Magnús Sæ-
mundsson boða
til fagnaðar í
túninu að Eyjum
II í Kjós, laug-
ardaginn 18. júlí
kl. 19.
75 ára
Í TILEFNI af þessum merka áfanga ætlar Mar-
grét að bjóða fjölskyldu sinni og vinum til afmælis-
fagnaðar á Grand Hótel Reykjavík, næstkomandi
laugardag kl. 15.
Margrét fæddist á Núpsstað í V-Skaftafellssýslu
15. júlí 1904, elst 10 systkina. Fimm þeirra eru lát-
in. Auk Margrétar eru nú á lífi Filippus, fæddur 2.
desember 1909, hann býr á Núpsstað, Jón, fæddur
14. nóvember 1913, búsettur í Svíþjóð, Jóna Að-
alheiður, fædd 30. mars 1923, og Ágústa Þorbjörg,
fædd 4. ágúst 1930, en þær búa báðar á höfuð-
borgarsvæðinu.
Foreldrar Margrétar voru Hannes Jónsson, f. 1880, d. 1968, land-
póstur á Núpsstað og Þóranna Þórarinsdóttir, f. 1886, d. 1972. Árið
1930 giftist Margrét Samúel Kristjánssyni sjómanni, f. 1899, d. 1965.
Þau hjónin fengu úthlutað lóð við Langholtsveg árið 1941 og byggðu
hús sem Margrét býr enn í. Margrét og Samúel eignuðust fimm börn:
Hönnu Þórönnu, f. 22. mars 1932, Jón Val, f. 21. ágúst 1933, Elsu, f.
23. nóvember 1935, Auði Helgu, f. 20. desember 1941, en hún er látin
og Margréti, f. 11. mars 1944. Afkomendur Margrétar Hannesdóttur
eru alls 56 að tölu. ylfa@mbl.is
Margrét Hannesdóttir er 105 ára í dag
Fögnuður um helgina
;)
Nýbakaðir foreldrar?
Sendið mynd af nýja ríkisborgaranum
ásamt upplýsingum um fæðingarstað
og stund, þyngd, lengd
og nöfn foreldra, á netfangið
barn@mbl.is