Morgunblaðið - 16.08.2009, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 2009
Laugavegi 13, 101 Reykjavík
sími 515 5800, rannis@rannis.is
www.rannis.is
Hlutverk Rannís er að veita faglega aðstoð og þjónustu við undirbúning og framkvæmd
vísinda- og tæknistefnu Vísinda- og tækniráðs. Rannís er miðstöð stuðningskerfis
vísinda- og tæknisamfélagsins. Í vörslu Rannís eru opinberir samkeppnissjóðir s.s.
Rannsóknasjóður og Tækniþróunarsjóður. Rannís sér um greiningu á rannsóknum og
nýsköpun á Íslandi og gerir áhrif rannsókna og nýsköpunar á þjóðarhag og hagvöxt
sýnilegan. Rannís er miðstöð upplýsinga og miðlunar alþjóðasamstarfs vísinda- og
tæknisamfélagsins.
Hlutverk Rannsóknasjóðs er að styrkja vísindarannsóknir á
Íslandi. Í þeim tilgangi styrkir sjóðurinn skilgreind rannsóknarverkefni
einstaklinga, rannsóknarhópa, háskóla, rannsóknastofnana
og fyrirtækja.
Umsóknarfrestur er til
1.október 2009
Rannsóknasjóður veitir þrenns konar styrki með umsóknafrest 1. október 2009:
l Öndvegisstyrki
l Verkefnastyrki
l Rannsóknastöðustyrki
Styrkirnir eru veittir til allt að þriggja ára í senn. Umsækjendur sem hlutu styrk til verkefna
árið 2009 með áætlun um framhald á árinu 2010 skulu senda ársskýrslu til sjóðsins fyrir
11. janúar 2010 en þurfa ekki að endurnýja umsókn.
Allar umsóknir og umsóknagögn skulu vera á ensku, svo að mögulegt sé að senda
umsóknir í mat erlendis. Undanþágur eru veittar frá þessari meginreglu ef birtingar á
viðkomandi fræðasviði einskorðast við íslenska útgáfu. Í þeim tilvikum skal umsækjandi
fá leiðbeiningar hjá starfsmönnum Rannís. Allar umsóknir um öndvegisstyrki skulu vera
á ensku, enda eru öndvegisverkefni ávallt metin af erlendum sérfræðingum.
Ítarlegar upplýsingar um Rannsóknasjóð, styrkina og umsóknareyðublöð
er að finna á www.rannis.is
Rannsóknasjóður
Skólinn verður settur í Kristskirkju Landakoti
fimmtudaginn 20. ágúst kl. 11.00.
Kennsla hefst samkvæmt stundaskrá
föstudaginn 21. ágúst.
Stofnsettur 1896
Landakotsskóli
Getum bætt við nemendum í nokkra bekki.
Landakotsskóli er traustur og framsækinn grunnskóli fyrir
nemendur í 1. - 10. bekk, auk 5 ára deildar. Boðið er uppá
góða kennslu í litlum bekkjum og notalegu umhverfi.
Innritun nemenda fyrir skólaárið 2009/10 stendur nú yfir.
Upplýsingar um skráningu veittar í síma 510 8200.
ím
yn
du
na
ra
fl
|L
K1
00
80
9
Nútímalegur skóli á gömlum grunni
Eftir Freystein Jóhannsson
freysteinn@mbl.is
Sextánda ágúst 1977 fannst 42ára Bandaríkjamaður í hrúguá baðherbergisgólfinu á setri
sínu í Memphis, Tennessee. Hann
var fluttur í skyndi á sjúkrahús,
þar sem hann var úrskurðaður lát-
inn. Fyrsta og stærsta rokk-
stjarnan; Elvis Presley, var allur.
Þessi dimmmjúki baritón
Með söng sínum og sviðs-
framkomu heillaði Presley heiminn
upp úr skónum og braut blað í sögu
rokksins. Reyndar þótti mörgum
nóg um geislandi sexý mjaðma-
hreyfingar hans með tilheyrandi
danssporum og það svo að þegar
hann kom fyrst fram í sjónvarps-
þætti var hann aðeins sýndur á
skjánum ofan mittis. Iðan þar fyrir
neðan var talin of sexý fyrir sjón-
varpsáhorfendur. En röddin átti
engan sinn líka, þessi dimmmjúki
baritón sem gat komið áheyrendum
í annan heim.
Elvis Presley var toppurinn á
sínum tíma og það segir sína sögu
að flestar götur frá því hann lézt
hefur tónlist hans aflað hærri tekna
en nokkurs annars látins lista-
manns.
Hvað viljið þið borga
stráknum?
Elvis Aaron Presley fæddist 8.
janúar 1935 í Tupelo í Missouri.
Hann kom barnungur fram með
foreldrum sínum; Gladys og Ver-
non Presley, á ýmsum samkomum.
Þegar hann var 13 ára fluttist fjöl-
skyldan til Memphis og þar vann
Presley með náminu sem sætavísir
í kvikmyndahúsi og þegar hann
hafði aldur til gerðist hann vöru-
flutningabílstjóri. 1953 tók hann
upp sína fyrstu plötu og borgaði
fjóra dollara fyrir.
Presley kom víða fram og söng
inn á fleiri plötur. Hann
náði eyrum „ofurstans“
Thomas A. Parkers,
sem gerðist umboðs-
maður hans og gekk
ótrauður í að selja
Presley sem dýrast.
Saga er sögð af því
þegar Parker var að
semja við 20th Cent-
ury-Fox um fyrstu
kvikmynd Presleys
að forráðamenn
kvikmyndafyr-
irtækisins hafi
mjög velt fyrir sér
æsku og reynsluleysi
Presleys. Ætli 25 þúsund doll-
arar séu nærri lagi? spurðu þeir
varfærnislega. Sú upphæð er allt í
lagi fyrir mig, svaraði ofurstinn. En
hvað viljið þið borga stráknum?
1956 sló Presley svo í gegn
svo um munaði með laginu
„Heartbreak Hotel“ og
svo rak hvert met-
sölulagið annað, Pres-
leyæðið fór á fullt.
Vorið 1958 var Presley kvaddur í
herinn og gegndi herþjónustu í
Vestur-Þýzkalandi í tvö ár. Þegar
hann sneri aftur tóku aðdáendurnir
honum tveim höndum. Presley ein-
beitti sér að kvikmyndaleik og
hljómplötum fyrst eftir herþjón-
ustuna, en kom svo aftur fram í
sjónvarpi og á tónleikum og enginn
skákaði honum á sviðinu í Las Veg-
as, né heldur annars staðar, ef út í
það er farið. Hásætið var hans;
hann var óumdeildur kóngur í ríki
rokksins.
Feiminn og örlátur
Presley er sagður hafa verið
fremur feiminn, hann hleypti fáum
ef einhverjum að sér og veitti sjald-
an viðtöl. Hann var gjafmildur og
tilfinninganæmur og áhugi hans á
kádiljákum var með eindæmum;
hann átti nokkra slíka og nokkra
gaf hann. Sagt var að hann ætti
það til þegar hann sá einhvern
standa fyrir utan bílabúð og horfa
löngunaraugum inn að gefa sig á
tal við viðkomandi og segja honum
að fara inn og velja sér bíl á sinn
kostnað.
Hann hreiðraði um sig á setri
sínu Graceland, þar sem hans var
gætt af ungum mönnum sem voru
kallaðir Memphismafían.
Presley hélt fast við þá ímynd að
hann hvorki reykti né neytti áfeng-
is og hann var í ótrúlega góðu
formi þar til ótaldar hnetusmjörs-
samlokurnar settu sitt mark á
hann. En sungið gat hann þótt
hann fitnaði. Á síðustu árum gengu
sögusagnir um neyzlu hans á örv-
andi og róandi efnum.
Í byrjun árs 1977 aflýsti Presley
tónleikum í Louisiana og sneri
heim til Memphis þjáður af því sem
læknar hans sögðu vera ofþreytu.
Banamein hans var skráð hjarta-
slag.
Lisa Presley
1967 kvæntist Presley Priscillu
Beaulieu, sem hann kynntist korn-
ungri á herþjónustuárum sínum.
Þau eignuðust dótturina Lisu Mar-
ie 1968 og skildu 1972.
Ökuskírteini Presleys
notað á Íslandi
Aldamótaárið sögðu fjölmiðlar
frá því að Íslendingur hefði fram-
vísað við sölu á ávísun í banka í
Reykjavík minja-
grip um Elvis
Presley; eftirlík-
ingu af ökuskírteini með
nafni hans og mynd.
Gjaldkerinn skipti
ávísuninni eftir
að hafa litið á
skírteinið.
Á þessum degi ...
16. ÁGÚST 1977 KÓNGURINN ÞAGNAR
Þríeinn Presley framkallaði Presleyæðið sem enn sér stað.
AP
Rock baby..Með
sviðsframkomu
sinni; mjaðm-
asveiflum og dans-
sporum, braut
Presley blað í sögu
rokksins.