Morgunblaðið - 16.08.2009, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 16.08.2009, Blaðsíða 41
Auðlesið efni 41 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 2009 „Ríkis-stjórnin stendur sig illa í að kynna mál-stað okkar í Icesave-málinu, enda er hún með allt kerfi gömlu stjórnarinnar í vinnu. Og hvar er forsetinn með öll sín sam-bönd? Eða þekkir hann bara auð-jöfra og fjár-glæfra-menn,“ sagði Einar Már Guðmundsson á sam-stöðu-fundi Indefence-samtakanna á Austur-velli síðast-liðinn fimmtu-dag. Þar var samnings-drögum í Icesave-málinu mót-mælt og skorað á ráða-menn að ná lendingu í málinu sem þjóðin gæti sætt sig við. Um 3000 manns sóttu sam-stöðufund Indefence-samtakanna og voru tals-menn sam-takanna ánægðir með hvernig til tókst. „Allir Íslendingar hljóta að taka undir þann mál-stað sem hér kemur fram. Eða hvaða þjóð er það, sem ber ekki hönd fyrir höfuð sér þegar að henni er gengið með órétt-mætum kröfum,“ sagði Ólafur Elíasson sem er í forystu InDefence. Fjöl-menni á samstöðu-fundi Morgunblaðið/Ómar Tékkneski leik-stjórinn Milos Forman verður heiðurs-gestur Alþjóð-legu kvik-mynda-hátíðarinnar, RIFF, í ár. „Hann er einn af þessum risa-stóru og er svo sannar-lega búinn að setja sitt mark á kvik-mynda-söguna,“ segir Hrönn Marinós-dóttir, stjórnandi hátíð-arinnar, en á meðal þeirra mynda sem Forman á að baki má nefna Man On The Moon, The People vs. Larry Flint, Hair, One Flew Over the Cuckoo’s Nest og Amadeus. Forman hlaut Óskars-verðlaun sem besti leik-stjórinn fyrir tvær síðast-nefndu myndirnar. Forman er orðinn 77 ára og vinnur nú að myndinni The Ghost Of Munich. Nokkrar mynda Formans verða sýndar á hátíð-inni, auk þess sem hann mun ræða við ís-lenska á-horfendur. Virtur leik- stjóri heim- sækir Ísland Reuters Hæsti-réttur hefur stað-fest úr-skurð Héraðs-dóms Reykjaness um að-farar-gerð bandarísks her-manns á hendur fyrr-verandi íslenskri konu sinni, Borghildi Guðmundsdóttur. Hún skal því fara til Banda-ríkjanna með tvo drengi þeirra á barns-aldri fyrir sunnudaginn 16. ágúst. Í dómnum kemur fram að Borghildur hafi flutt drengina til Íslands frá Bandaríkjunum í upp-hafi árs 2008 og haldið þeim hér á landi með ólög-mætum hætti í skilningi laga og ákvæða Haag-samningsins. Borghildur giftist her-manninum í september 1998, en þau slitu sam-vistir seinni-part árs 2007. Í héraðs-dómnum er tekið fram að óum-deilt sé að hjú-skap máls-aðila hafi ekki verið slitið að lögum þegar Borghildur fór með börnin til Íslands og að þau hjónin hafi farið sam-eiginlega með for-sjá barna sinna. Faðir drengjanna hyggst höfða forræðis-mál í Bandaríkjunum og freista þess að fá börnin til sín. Borghildur segir að milli sín og föðurins hafi verið munnlegt samkomu-lag um til-högun skilnaðar og forræðis. Hann hafi ekki haft sérlegan áhuga á forræði, hvað þá heldur forræðis-máli. Vísað til Banda-ríkjanna Borghildur Guðmundsdóttir Fæð-ingum hefur fjölgað á Land-spítalanum það sem af er ári miðað við árið í fyrra. Í ár eru fæðingar orðnar 2.101 á Land-spítala Háskóla-- sjúkra-húsi, en til 10. ágúst í fyrra voru fæðingar 2.029 og er aukningin um 3,5%. Margar fæðingar eru bókaðar á næstu mánuðum þannig að út-lit er fyrir að þær verði fleiri á LSH en nokkru sinni. Guðrún Eggertsdóttir, yfir-- ljósmóðir fæðingar- deildar, sagðist ekki hafa skýringu á þessari fjölgun fæðinga. Margt gæti spilað þar inn í, en hún sagðist ekki neita því að starfs-fólk á fæðingar-- deildinni hefði velt því fyrir sér hvort kreppan sem skall á síðasta haust ætti hlut að máli. Mikið álag hefur verið á starfs-fólki fæðingar-deildar undan-farnar vikur. Fæðingum fjölgar Eftir fjóra tap-leiki náðu Íslendingar að rétta úr kútnum þegar þeir öttu kappi við Slóvaka í vináttu-leik á Laugar-dals-vellinum er þeir gerðu jafn-tefli, 1:1.Slóvakar hafa verið á blússandi siglingu í undan-keppni HM þar sem þeir tróna á toppi síns riðils og eru 50 sætum ofar á FIFA-lista. Kristján Örn Sigurðsson tryggði Íslendingum stigið þegar hann skoraði skalla-mark í seinni hálf-leik. . Gunnleifur Gunnleifsson varði í tví-gang meistara-lega í fyrri hálf-leik. Aron Einar Gunnarsson kom sterkur til leiks þegar Sölvi Geir þurfti að yfir-gefa völlinn vegna meiðsla. Brynjar Björn tók stöðu hans í vörninni og Aron fór á miðsvæðið. Gerðu jafn-tefli Morgunblaðið/Ómar Her-foringja-stjórnin í Búrma þóttist hafa sýnt Aung San Suu Kyi mildi með því að forða henni frá þriggja ára hegningar-vinnu í fanga- búðum en stjórnar-andstöðu- leið-toginn lét sér fátt um finnast þegar dómur yfir henni var kveðinn upp í vikunni, hún var dæmd í áframhaldandi stofu-fangelsi í eitt og hálft ár í húsi í Yangon, höfuðborg Búrma, en þar hefur hún verið í haldi nær sleitu-laust í 14 ár. Þótt fangelsis-dómurinn hafi verið styttur kemur hann í veg fyrir að Suu Kyi geti tekið þátt í bar-áttu stjórnar-andstöðunnar fyrir þing-kosningar sem eiga að fara fram á næsta ári. Leið-togar hersins eru stað-ráðnir í að tryggja banda-- mönnum sínum sigur í kosningunum og vilja fyrir alla muni afstýra því að stjórnar- and-staðan sigri eins og í kosningunum árið 1990 þegar flokkur Suu Kyi fékk mikinn meiri-hluta þingsæta. Suu Kyi er orðin að tákni frið-sam-legrar bar-áttu gegn ein-ræði hersins og lítur al-menningur Búrma á hana sem sam-visku þjóðarinnar. Her-foringja-stjórnin hræðist Suu Kyi Aung San Suu Kyi Stjórnar-and-staðan sótti fast að setja stíf efna-hags-leg skil-yrði fyrir ríkis-ábyrgð á lánum Trygginga-sjóðs inn-stæðu-eigenda vegna Icesave-reikninganna. Breytingar-til-laga gerir ráð fyrir að ekki megi greiða meira ár-lega en 3,5% af lands-fram-leiðslu. Einnig var rætt um greiðslur vegna ríkis- ábyrgðarinnar yrðu alltaf í takt við þróun efna-hagsmála hér á landi og mögu-leiki væri á því að fella niður eftir- stöðvar skulda. Í breytingar- til-lögunni kemur einnig fram að hvergi sé haggað við yfir- ráðum Íslands yfir auð- lindum landsins og rétti hand-hafa íslensks ríkis- valds til að kveða á um auð-linda-nýtingu og eignar-hald á náttúru-auð-lindum. Breytingar- til-laga rædd

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.