Morgunblaðið - 16.08.2009, Blaðsíða 51

Morgunblaðið - 16.08.2009, Blaðsíða 51
Menning 51FÓLK MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 16. ÁGÚST 2009 OpiD: laugardag: 10-17 - sunnudag: 13-17 Lykur um helginaenn meiri afslattur! F A B R IK A N Aðeins þessa helgi! Helgartilboð í verslun Tekk Companys Tekk Company * Holtagörðum og Kringlunni * Sími 564 4400 * www.tekk.is Opið virka daga kl. 10-18:30, laugardaga 10-17 og sunnudaga 13-17 Gerum hús að heimili    AFSLÁTTUR AF SIA, UMBRA OG SERAX VÖRUM    AFSLÁTTUR AF ETHNICRAFT OAK HÚSGÖGNUM ÞEIR netnotendur sem gaman hafa af mál- efnalegri og upplýsandi umræðu ættu að kynna sér vefsíðuna ted.com. Um er að ræða lítið samfélag, bæði í net- og raunheimum, er leggur sig fram við að gefa góðum hug- myndum brautargengi. Ted stendur fyrir Technology, Entertainment and Design en í raun er ekkert umræðuefni af kortinu. Frá árinu 1984 hafa samtökin staðið fyrir árlegri ráðstefnu í Long Beach í Kaliforníu, en í dag standa samtökin fyrir svipuðum ráðstefnum í öðrum heimshornum líka. Ráðstefnurnar eru svo vinsælar að nú þegar er uppselt á ráð- stefnu næsta árs. Einnig hafa samtökin veitt verðlaun frá árinu 2005 til einstaklinga er þykja hafa borið af í vitsmunalegum fram- lögum sínum til mannkyns. Netsíðan ted.com er í raun að mestu sam- ansafn af fyrirlestrum er haldnir hafa verið á Ted-ráðstefnum í gegnum árin. Hún er ein- staklega vel upp sett og auðvelt að ráfa inn á viðfangsefni sem vekur áhuga vafrarans. Þar er t.d. hægt að hlýða á og sjá fyrirlestra þar sem Harvard-sálfræðingurinn Dan Gilberts ræðir um hvers vegna við upplifum hamingju, Richards Dawkins reynir að afsanna tilvist Guðs, Jeff Han sýnir næstu þróun snertiskjáa, Bill Clinton ræðir um mál Rúanda, Ólafur Elí- asson ræðir um listaverk sín og landkönnuður- inn Bill Stone ræðir um dýpstu hella heims og af hverju maðurinn ætti að rannsaka hella tunglsins. Í stuttu máli fyrirlestra um allt á milli himins og jarðar. Síða sem hreyfir við þér, veldur þér endalausum heilabrotum og fær þig til þess að horfa á heiminn í kringum þig í nýju ljósi … í hvert einasta skipti sem þú staldrar við. biggi@mbl.is Vitræn ofhleðsla Reuters Bill Clinton Góður ræðumaður. Það eru allir hinir sem finna má á ted.com líka. VEFSÍÐA VIKUNNAR: WWW.TED.COM» LEIKKONAN Demi Moore segist kunna mjög vel við það þegar kon- ur reyna við eiginmann hennar, leikarann Ashton Kutcher. Moore, sem er 46 ára gömul, segir að hún átti sig á því hversu heppin hún sé þegar aðrar konur reyna við Kutcher, sem er 31 árs gamall. „Ég tek því bara sem hrósi,“ seg- ir Moore sem er greinilega ekki af- brýðisöm manneskja. Á twitter-síðu sinni gefur Moore annars ýmislegt upp sem varðar einkalíf þeirra hjóna. Þannig segir hún til dæmis frá því að hún vakni iðulega upp við það um miðjar næt- ur að Kutcher sé að biðja hana um kynlíf. Engin afbrýðisemi Flott par Ashton Kutcher og Demi Moore eru greinilega hamingjusöm. LEIKARINN og leikstjórinn Mel Gibson er fjölhæfur maður, að minnsta kosti ef marka má nýjustu fregnir af kappanum. Gibson er nefnilega gestasöngvari á vænt- anlegri plötu kærustunnar sinnar, rússnesku söngkonunnar Oksana Grigorieva, en platan nefnist Beautiful Heartache. Hann lætur þó ekki þar við sitja, heldur hefur hann nú þegar leikstýrt fjórum myndböndum við lög af plötunni. „Mel er magnaður listamaður. Og hann er með frábæra rödd og er algjör hugsjónamaður,“ segir Grigorieva sem gengur með átt- unda barn Gibsons. „Myndböndin eru eins og drama- tískar stuttmyndir – uppfullar af spennandi en björtum skotum.“ Það var í apríl á þessu ári sem Gibson tilkynnti um skilnað sinn og eiginkonu sinnar, Robyn, en saman eiga þau sjö börn. Nokkrum vikum seinna greindi hann frá sambandi sínu við Grigorieva, sem er 28 ára, en sjálfur er Gibson 53 ára. Grigo- rieva segist hins vegar ekki hafa borið neina ábyrgð á skilnaðinum. „Það var ekki eins og ég væri að reyna þetta sérstaklega. Ég hélt að hann væri hamingjusamur í sínu hjónabandi en svo kom annað í ljós. Í kjölfarið gerðist þetta,“ segir Grigorieva. Reuters Hamingja Gibson og Grigorieva koma til frumsýningar á X-Men Origins: Wolverine í L.A. í apríl. Syngur með kærustunni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.