Morgunblaðið - 07.11.2009, Page 1
L A U G A R D A G U R 7. N Ó V E M B E R 2 0 0 9
STOFNAÐ 1913
301. tölublað
97. árgangur
Landsprent ehf.
MBL.IS
Morgunblaðið
hvar sem er
hvenær sem er
mbl.is
«AF LÍFI OG SÁL
VERÐLAUNAMYNDIR
OKKAR MANNA
«VERK ONÍ VERK
Áherslumerki
máluð í ljósmyndir
96
ára
HEIMILDIR
Morgunblaðsins
herma að Ingi-
björg Sólrún
Gísladóttir, fyrr-
verandi utanrík-
isráðherra og
formaður Sam-
fylkingarinnar,
hafi sótt um
embætti yf-
irmanns baráttu
gegn mansali hjá Öryggis- og sam-
vinnustofnun Evrópu, ÖSE.
Ekki náðist í Ingibjörgu Sólrúnu
í gær en hún mun vera stödd er-
lendis. Líklegt er að skipað verði í
embættið á næstu vikum. Stofnunin
hefur aðsetur í Vín og er núverandi
yfirmaður hennar Eva Biaudet,
fyrrverandi heilbrigðismálaráð-
herra Finnlands. kjon@mbl.is
Ingibjörg Sólrún
Gísladóttir
Ingibjörg Sólrún til Vínar?
SKILANEFND Glitnis hefur leit-
að til óháðra sérfræðinga til að
rekja slóð skuldabréfa að verðmæti
139 milljarða króna, sem komu
óvænt í ljós á dögunum í bókhaldi
bankans, eins og greint var frá í
Morgunblaðinu í gær. Um er að
ræða skuldabréf sem ekki voru í
efnahagsreikningi bankans við fall
hans fyrir ári. Komið hefur fram að
þau hafi verið gefin út í tengslum
við endurhverf verðbréfaviðskipti.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins standa vonir til þess að
búið verði að komast til botns í mál-
inu við lok næstu viku. Þá hefur
Fjármálaeftirlitið málið til óform-
legrar skoðunar. »18
Óháðir sérfræðingar skoða
tilvist skuldabréfa Glitnis
Eftir Egil Ólafsson
egol@mbl.is
FÉLAG í eigu sex fyrrverandi
stjórnenda Kaupþings, sem keypti á
árunum 2002-2005 fjórar jarðir á
Mýrum fyrir um 400 milljónir, skuld-
ar í dag rúmlega einn milljarð króna.
Lánin voru upphaflega tekin hjá
SPRON og Sparisjóði Mýrasýslu en
eru núna komin inn í Kaupþing. Allt
bendir til að bankinn verði fyrir tjóni
upp á hundruð milljóna króna vegna
þessara viðskipta.
Það er félagið Hvítsstaðir sem á
jarðirnar fjórar sem allar eru við
Langá. Félagið keypti þrjár jarðir af
Sparisjóði Mýrasýslu, en sjóðurinn
hafði keypt þær af Borgarbyggð
þegar jarðaverð var almennt frekar
lágt. Fjórðu jörðina, Langárfoss,
keypti félagið af Jóhannesi Kristins-
syni, kenndum við Fons, á 300 millj-
ónir. Langárfoss er ein verðmætasta
laxveiðijörð landsins.
Skráðir eigendur Hvítsstaða eru
Hreiðar Már Sigurðsson, Ingólfur
Helgason, Magnús Guðmundsson,
Sigurður Einarsson, Steingrímur
Páll Kárason og Þorvaldur Lúðvík
Sigurjónsson, en þeir eru allir fyrr-
verandi stjórnendur hjá Kaupþingi.
Sexmenningarnir lögðu fram 100
þúsund krónur hver í hlutafé og
fengu lán til jarðakaupa upp á rúm-
lega 400 milljónir, en kaupin voru al-
farið fjármögnuð með lánum. Lánin
eru í japönskum jenum. Lánin stóðu
í tæplega 430 milljónum króna í árs-
lok 2007, en vegna gengisfalls krón-
unnar standa þau nú í rúmlega ein-
um milljarði.
Á árinu 2007 hagnaðist Hvítsstað-
ir ehf. um 27 milljónir vegna styrk-
ingar gengis krónunnar, en samt var
eigið fé félagsins neikvætt um 24,4
milljónir í árslok. Ekki er búið að
leggja fram ársreikning vegna árs-
ins 2008, en áætla má að gengistap
félagsins á því ári nemi ekki undir
500 milljónum. Á sama tíma hefur
verð á jörðum lækkað.
Félagið Veiðilækur ehf, sem er í
eigu Sigurðar Einarssonar, fyrrver-
andi stjórnarformanns Kaupþings,
hefur selt fasteign sína á jörðinni
Veiðilæk í Borgarbyggð. Ekki liggja
fyrir upplýsingar um hvort kaupandi
er Sigurður sjálfur eða viðskipta-
banki hans. Veiðilækur ehf. tapaði 63
milljónum í fyrra. Eigið fé félagsins
er neikvætt um 50 milljónir og það
skuldar um 103 milljónir í dag.
Skulda milljarð eftir
jarðakaup á Mýrum
Sex stjórnendur Kaupþings lögðu fram 100 þúsund og fengu 400 milljónir að láni
Morgunblaðið/Einar Falur
Veiði Langárfoss við Langá er ein verðmætasta laxveiðijörð landsins. Hvítsstaðir ehf. keypti jörðina af Jóhannesi
Kristinssyni á 300 milljónir. Kaupin voru fjármögnuð með kúluláni. Myndin sýnir neðsta veiðistað Langár.
Í HNOTSKURN
»Jarðirnar fjórar sem fé-lagið Hvítsstaðir á eru all-
ar við Langá á Mýrum, eina
bestu laxveiðiá landsins. Fé-
lagið keypti þrjár jarðir af
Sparisjóði Mýrasýslu, en hann
lánaði líka til kaupanna.
Lögðu fram 600 þúsund | 6
Eftir Sigtrygg Sigtryggsson
sisi@mbl.is
VEGNA þrengsla, aðstöðuleysis og
mannfæðar hjá embætti rík-
issaksóknara við Hverfisgötu, þarf
að senda öll dómsgögn sem ætluð
eru dómstólum landsins til ljósrit-
unar úti í bæ.
Þetta kemur fram í bréfi, sem Val-
týr Sigurðsson ríkissaksóknari sendi
Hæstarétti í síðasta mánuði. Orðrétt
segir Valtýr í bréfinu:
„Þessu tengt má benda á að rík-
issaksóknari þarf að senda öll máls-
skjöl á stofu úti í bæ til fjölföldunar
dómsgerða fyrir Hæstarétt. Eins og
gefur að skilja er hér um að ræða
einhverjar þær viðkvæmustu per-
sónuupplýsingar sem um getur,
framburði barna í kynferðisbrotum,
sjúkraskýrslur svo ekki sé talað um
ljósmyndir af brotaþolum og klám-
myndir. Reynt er að hafa eftirlit
með starfsfólki ljósritunarstofunnar
og kom nýlega í ljós að aðili sem þar
starfaði hafði hlotið fangelsisdóm.
Aðbúnaður og skortur á starfsfólki
hjá embætti ríkissaksóknara er hins
vegar slíkur að enginn möguleiki er
við óbreyttar aðstæður að sinna
þessu verki af skrifstofunni.“ Fram
kemur í bréfinu að kostnaður við
ljósritun ágripsgerða hafi numið
fjórum milljónum króna árið 2008.
Segir Valtýr að hann telji að þessi
ljósritun eigi að fara fram hjá emb-
ætti ríkissaksóknara.
Ragna Árnadóttir dóms-
málaráðherra segir að hér sé um að
ræða verklag sem ríkissaksóknari
hafi ákveðið fyrir sitt embætti og
hún telji að svona fyrirkomulag ætti
að heyra sögunni til.
„Þess má geta að upplýs-
ingatæknin sýnist stórlega vannýtt í
samskiptum dómstóla, ákæruvalds
og lögreglu. Er verklagið nú al-
mennt til endurskoðunar með það
fyrir augum að auka skilvirkni og
lækka kostnað,“ segir dóms-
málaráðherra.
Ljósritað úti í bæ
Dæmdur maður ljósritaði dómsgögn fyrir ríkissaksóknara
Ljósritun Kostnaður vegna dóms-
skjala í fyrra var fjórar milljónir.
Fyrirmyndin varð martröð | 8
GRÆNN
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
.
RAUÐUR
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
R.
HVÍTUR
TILBÚINN TIL NOTKUNAR
GULUR
TILBÚINN
TIL NOTK
UNAR
lsi 3 - 11
0 R.
Sunnudags Mogginn
er nú borinn út með
laugardagsblaðinu