Morgunblaðið - 07.11.2009, Blaðsíða 20
20 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2009
Eftir Boga Þór Arason
bogi@mbl.is
HERGEÐLÆKNIR varð 13 manns
að bana og særði 30 til viðbótar í
skotárás í Fort
Hood-herstöðinni
í Texas í fyrra-
kvöld. Ættingjar
hans segja að
honum hafi ný-
lega verið til-
kynnt að hann
yrði sendur til
Afganistans.
Maðurinn er
múslími og hon-
um hraus hugur við því að gegna
herþjónustu í Írak eða Afganistan
og taka þátt í hernaði gegn trú-
bræðrum sínum.
Árásarmaðurinn, Nidal Malik
Hasan, særðist þegar herlög-
reglumaður skaut á hann til að binda
enda á blóðsúthellingarnar.
Áreittur fyrir að vera múslími
Hasan er 39 ára, fæddist í Virg-
iníu og ólst þar upp. Foreldrar hans
fluttu þangað búferlum frá palest-
ínskum bæ nálægt Jerúsalem.
Hasan gekk í herinn eftir að hafa
lokið námi í almennum framhalds-
skóla. Í hernum lauk hann námi í
geðlækningum og starfaði eftir það í
lækningamiðstöð hersins í Was-
hington. Hann var síðan sendur í
Fort Hood-herstöðina í júlí.
Haft er eftir ættingjum Hasans að
hann hafi séð eftir því að ganga í
herinn eftir hryðjuverkin 11. sept-
ember 2001 vegna þess að hermenn
hafi lagt hann í einelti og áreitt fyrir
að vera múslími.
Ættingjar Hasans segja að síð-
ustu mánuði hafi hann haft miklar
áhyggjur af því að hann kynni að
verða sendur til Íraks eða Afganist-
ans. Hann hafi verið ráðgjafi margra
hermanna, sem hafa orðið fyrir
miklu sálrænu áfalli á átakasvæðum.
„Hann hryllti við þeirri tilhugsun að
verða sendur á átakasvæðin,“ hafði
The New York Times eftir frænda
Hasans. „Hann hafði hlustað á
hverjum degi á menn segja honum
frá hryllingnum sem þeir urðu vitni
að þarna.“
Ættingjar Hasans segja að hann
hafi gert allt sem hann hafi getað til
að komast hjá því að gegna herþjón-
ustu í Írak eða Afganistan. Hann
hafi m.a. leitað til lögfræðings til að
athuga hvort hann gæti rift samn-
ingnum við herinn en lögfræðing-
urinn sagði honum að herinn myndi
ekki sleppa honum jafnvel þótt hann
endurgreiddi kostnaðinn vegna há-
skólanámsins.
Óaði við því að verða
sendur til Afganistans
Reuters
Blóðsúthellingar Særður maður fluttur á sjúkrahús eftir árásina í Texas.
Í HNOTSKURN
» Fort Hood er stærstabandaríska herstöðin í
heiminum og þar starfa um
40.000 manns.
» Herlögreglumenn hindr-uðu að árásarmaðurinn
kæmist inn í kvikmyndahús
þar sem 600 manns voru.
Hergeðlæknir
varð 13 manns að
bana í herstöð
50 km
Waco
Forth Worth
Dallas
TEXAS
SKOTÁRÁS Í TEXAS
Þrettán manns voru skotnir til bana og
30 særðust.
Árásin var gerð í miðstöð
þar sem metið er hvort
hermenn séu tilbúnir til að
berjast í Írak eða Afganistan
Howze
kvikmyndahús
M t bi ð tjó
FORT HOOD
HERSTÖÐIN
Fort Hood
herstöðin
Þjónustu-
svæði
BANDARÍKIN
Fort Hood
Estudio R. Carrera fyrir
50 km
1 km
Waco
Forth Worth
Dallas
TEXAS
Árásin var gerð í miðstöð
þar sem metið er hvort
hermenn séu tilbúnir til að
berjast í Írak eða Afganistan
Howze
kvikmyndahús
Matarbirgðastjórn Prichard
völlur
FORT HOOD
HERSTÖÐIN
Clear Creek
hlið
Fort Hood
herstöðin
Þjónustu-
svæ i
Bernie Beck
hlið
BANDARÍKIN
Fort Hood
Nidal Malik Hasan
GORDON Brown, forsætisráðherra
Bretlands, segir Breta ekki munu
gefast upp í baráttunni gegn talí-
bönum, þrátt fyrir aukið mannfall.
,,Við getum ekki og megum ekki og
munum ekki hverfa frá verkefninu
í Afganistan,“ sagði Brown í gær.
En Brown virðist einnig vera að
undirbúa útgönguleið. Hann varaði
Hamid Karzai, forseta Afganistan,
við en stjórn hans þykir gerspillt.
„Ég er ekki reiðubúinn að að hætta
lífi breskra karla og kvenna fyrir
ríkisstjórn sem lætur spillingu af-
skiptalausa,“ sagði breski forsætis-
ráðherrann. Ný könnun sýnir að
aðeins 33% aðspurðra Breta álíta
að hægt sé að vinna stríðið í Afgan-
istan. Forsætisráðherrann sagði á
þingi að með baráttunni gegn talí-
bönum í Afganistan væri fyrst og
fremst verið að sporna við hryðju-
verkaárásum í framtíðinni.
kjon@mbl.is
Varar Karzai við
REINHARD Marx, erkibiskup München og Freising, prédikar fyrir framan
fólk sem tók þátt í Leonhard-skrúðgöngu í Kreuth í Þýskalandi í gær.
Leonhard-skrúðgangan er árlegur viðburður sem hófst á sautjándu öld.
Þátttakendurnir biðja fyrir heilögum Leonhard, verndardýrlingi dýra.
BEÐIÐ FYRIR DÝRLINGI
Reuters
68 ÁRA gömul
kona í Suður-
Kóreu er himin-
lifandi þessa
dagana vegna
þess að henni
tókst loks að ná
skriflegu öku-
prófi í 950. til-
raun.
Cha Sa-soon
tók prófið fyrst
13. apríl 2005 og hélt áfram í fjögur
og hálft ár þar til henni tókst að ná
tilskildum 60 stigum af 100. Hún
hafði greitt alls sem svarar hálfri
milljón króna í prófgjöld.
Cha þarf nú að standast aksturs-
próf til að geta fengið ökuskírteini
og hún ætlar sér að ná því hvað sem
það kostar.
Hún kveðst vilja fá ökuréttindi til
að geta notað bíl til að selja græn-
meti og fleiri vörur, að sögn suður-
kóreska dagblaðsins Korea Times.
Cha býr í borginni Jeonju, um
210 km sunnan við Seoul, og stað-
festa hennar hefur vakið mikla at-
hygli þar.
„Ég tel að fólk geti náð mark-
miðum sínum ef það gefst aldrei
upp,“ var haft eftir Cha í febrúar
þegar hún hafði reynt 775 sinnum
að ná skriflega prófinu. „Fólk þarf
bara að vera sterkt og gera sitt
besta.“ bogi@mbl.is
Náði skrif-
lega prófinu
í 950. tilraun
Cha Sa-Soon í
skriflegu prófi.Þau safna fyrir
Hjálparstarf
kirkjunnar
9. og 10. nóvember