Morgunblaðið - 07.11.2009, Page 24
24 Daglegt líf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2009
Sekkjapípuleikur hljómaði um Djúpavog nærri heilan dag í júní. Skoskt skemmtiferðaskip kom þar
við og skemmti sekkjapípuleikarinn gestunum á meðan þeir voru selfluttir í land og aftur til baka.
Bæjarbúar nutu góðs af og Andrés Skúlason myndaði gestinn góða.
Morgunblaðið/Andrés Skúlason
Sekkjapípuleikarinn
Fálkinn herjar sífellt meira á Húsavík sem er í nágrenni aðalútbreiðslusvæðis hans. Þar nær hann sér í
endur og sjófugla og hefur nóg að bíta og brenna. Gott útsýni er yfir mannlífið og fuglalífið af ljósastaur-
unum. Hafþór Hreiðarsson fréttaritari myndaði þennan tignarlega fugl þegar hann tók flugið á ný.
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Hefur sig til flugs
Afréttarsvæðið Hvítmaga er girt jöklum og jökulfljóti. Bændurnir í Brekkum í Mýrdal þurftu því að reka féð yfir
Sólheimajökul til að koma því til byggða. Jónas Erlendsson fréttaritari í Mýrdal fylgdist með smöluninni og á
mynd hans sést að margar hættur eru í rekstrinum sem bændur þurfa að verjast, meðal annars stórar sprungur.
Morgunblaðið/Jónas Erlendsson
Á sprungusvæði
Morgunblaðið/Atli Vigfússon
Lært að jarma
Þórður Ívarsson fór með páfagaukinn sinn, Maggý, í Hraunsrétt í Aðaldal til að
reyna að bæta við kunnáttuna, kenna honum að jarma. Atli Vigfússon fréttarit-
ari á Laxamýri myndaði Þórð með páfagaukinn í réttinni. Fjöldi fólks safnaðist
að kennslunni sem gekk ágætlega og skilaði ýmsum hljóðum þótt jarmið væri
með undarlegu lagi.
Filippseyingar minnast píslargöngu Krists og krossfestingar eins og aðrir kristnir menn á föstudaginn langa. Sumir
strangtrúaðir ganga svo langt að láta festa sig á kross. Alfons Finnsson ljósmyndari í Ólafsvík fylgdist með því í bænum
San Fernando og hann rakst einnig á fólk á götunum sem lét húðstrýkja sig til að bæta fyrir syndirnar.
Morgunblaðið/Alfons Finnsson
Yfirbót á föstudaginn langa
Af lífi
og sál
Af lífi og sál er yfirskrift ljós-
myndasamkeppni fréttaritara
Morgunblaðsins. Vísar heitið
til áhuga ljósmyndaranna og
viðfangsefnis þeirra sem er líf
og starf fólksins á landsbyggð-
inni.
Ljósmyndasamkeppnin tók til
mynda sem teknar voru á síð-
asta ári. Dómnefnd hefur valið
úr fimm myndir sem fá við-
urkenningar auk aðalverð-
launamyndarinnar. Eru þær
birtar hér á síðunni.
Úrslit í keppninni verða til-
kynnt við athöfn að loknum að-
alfundi Okkar manna, félags
fréttaritara Morgunblaðsins,
sem haldinn verður í Morg-
unblaðshúsinu við Hádeg-
ismóa í dag.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Á sauðburði
Börnin í sveitinni lifa sig inn í sauðburðinn.
Gaman er að fylgjast með lömbunum koma í
heiminn og stíga fyrstu skrefin. Anna María
Magnúsdóttir í Haukholtum í Hrunamanna-
hreppi fékk að halda á fallegu lambi. Sigurður
Sigmundsson fréttaritari fylgdist með henni.