Morgunblaðið - 07.11.2009, Qupperneq 28
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2009
– meira fyrir áskrifendur
JÓLAGJAFIR FRÁ
FYRIRTÆKJUM
Fáðu þér áskrift á
mbl.is/askrift
Pöntunartími auglýsinga er fyrir klukkan
16.00 mánudaginn 9. nóvember.
Nánari upplýsingar veitir Sigríður Hvönn
í síma 569 1134 / 692 1010,
sigridurh@mbl.is
Glæsilegur blaðauki um
allt sem snýr að jólagjöfum
frá fyrirtækjum til starfs-
fólks og viðskiptavina
fylgir Viðskiptablaði
Morgunblaðsins
12. nóvember.
Þetta er handbókin í ár fyrir
stjórnendur sem eiga eftir að
ákveða hvað fyrirtækið ætlar að
gefa samstarfsaðilum, viðskipta-
vinum og eigin starfsfólki í
jólagjöf.
GESTIR þáttarins Orð skulu standa
í dag eru Jóna Ingibjörg Jónsdóttir
kynfræðingur og Ólafur Sindri
Ólafsson stuðningsfulltrúi. Þau fást
m.a. við „blóðnætur“ og „að vera
eins og eldi ausinn“.
Fyrriparturinn er svona:
Nú er upphaf nóvember,
næstum komin jólin.
Um nýliðna helgi var fyrripart-
urinn þessi:
Blóðmörskeppur, krásin ein,
kaldri ornar minni sál.
Í þættinum botnaði Hlín Agnars-
dóttir:
Aldrei fæ ég innanmein
ef innmat fæ í sérhvert mál.
Davíð Þór Jónsson minntist lið-
inna daga:
Einnig læknar öll mín mein
ákavítissopi – skál!
Einar Sveinbjörnsson lagfærði
fyrripartinn:
Blóðmörskeppur, krásin ein,
köldum ornar sálum.
Látum ekki kreppukvein
klúðra okkar málum.
Úr hópi hlustenda botnaði Þór
Gils Helgason:
Hann bætir líka magamein
meir en bæði gras og kál.
Magdalena Berglind Björnsdóttir:
Lifrarpylsa, lúðubein,
lækna og kveikja í mér bál.
Þorkell Skúlason í Kópavogi:
Huggun ljúf við holdsins mein,
hans ég neyti í sérhvert mál.
Jónas Frímannsson:
Bæði gleymast böl og mein,
batnar geð en liðkast mál.
Fyrripart-
ur um jólin
Orð skulu standa
Hlustendur geta sent botna og til-
lögur að fyrripörtum í ord@ruv.is
eða til Orð skulu standa, Rík-
isútvarpinu, Efstaleiti 1, 150
Reykjavík.
Morgunblaðið/Kristinn
Jólaljós Kerti eru ómissandi um jól.
Eftir Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
ANNA Peggy Friðriksdóttir, ráð-
gjafi í innflytjendamálum í Kanada,
verður á Íslandi næstu daga til að
kynna Íslendingum atvinnu- og
námsmöguleika í Kanada og aðstoða
þá sem það vilja til þess að fylla út
umsóknir og koma þeim í réttan far-
veg.
„Ég hef fengið margar fyrir-
spurnir eftir að ég var á Íslandi í
sumar og ákvað því að koma aftur og
kynna málið betur,“ segir Peggy, en
hún verður með
einstaklings-
kynningu á Hótel
Loftleiðum
klukkan 10 til 16 í
dag. Hún er svo
sem ekki
ókunnug landinu,
bjó hér frá frá
1978 til 1994 og
rak meðal annars
samtals 13 veit-
ingastaði hérlendis.
Snemma árs komu fulltrúar frá
Manitoba og kynntu Íslendingum
atvinnumöguleika í fylkinu. Peggy
segist hafa fundið fyrir því að fólk
vissi ekki hvernig það ætti að bregð-
ast við í kjölfarið og þar sem hún
hafi útskrifast úr ráðgjafanáminu í
sumar hafi hún ákveðið að leggja Ís-
lendingum lið.
Margir möguleikar
„Ég get hjálpað fólki við að sækja
um vinnu alls staðar í Kanada,“ segir
Peggy á lýtalausri íslensku. Hún
bætir við að tækifærin séu mörg og
sérstaklega fyrir menntað fólk á
ýmsum sviðum.
Kynnir tækifæri og möguleika
fyrir Íslendinga í Kanada
Aðstoðar við að fylla út umsóknir og koma þeim áfram
Anna Peggy
Friðriksdóttir
Keflavíkurgangan hefur verið endur-
vakin. Á morgun kl. 11.30 ætlar hóp-
ur Suðurnesjamanna að ganga frá
Vogaafleggjara að Kúagerði til þess
að skora á stjórnvöld að standa að at-
vinnubótavinnu á Suðurnesjum. Þar
eru rúmlega 1.600 manns án atvinnu.
Yfirskrift þessarar göngu er „At-
vinna strax“ og eru aðstandendur
þverpólitískur hópur sem hefur vel-
ferð og uppbyggingu á Suðurnesjum
að leiðarljósi. Koma í Kúagerði er
áætluð kl. 14 og þar munu forsvars-
menn allra stjórnmálaflokka taka við
áskorun hópsins.
Skansinn er heiti á markaðstorgi sem
opnað hefur verið í gamla Ramma-
húsinu við Fitjar í Njarðvík. Almenn-
ingur getur leigt bás til þess að selja
vörur, notaðar sem nýjar og vinalegt
kaffihús er á staðnum, oft með lifandi
tónlist. Það eru hjónin Karen Hilm-
arsdóttir og Einar Árnason sem hafa
umsjón með markaðstorginu.
Keflavík fagnaði 80 ára afmæli í
haust. Í tilefni af afmælinu var sett
upp vegleg sögusýning í félagshúsi
Keflavíkur við Hringbraut og félagið
réð Eðvarð T. Jónsson til þess að
skrá 80 ára sögu þess. Bókin kom út
nýverið. Þá hófust á afmælisárinu
framkvæmdir við aðalvöll Keflavíkur,
en völlurinn verður bæði stækkaður
og tekinn upp. Gamla grasið verður
nýtt á æfingasvæði Keflavíkur vestan
við Reykjaneshöll. Stækkunin mun
leiða til eflingar í barna- og unglinga-
starfi Keflavíkur, auk betri aðstöðu
fyrir meistaraflokkana. Áætluð verk-
lok eru 31. desember nk.
Ár verður á morgun liðið frá því að
Velferðarsjóður Suðurnesja var
stofnaður. Af því tilefni verður efnt til
málþings í Keflavíkurkirkju undir yf-
irskriftinni „Velferð, hamingja og lífs-
gildi.“ Markmiðið með stofnun sjóðs-
ins var að starfrækja á Suðurnesjum
öflugan sjóð sem hefði yfirumsjón
með öllum styrkveitingum. Með
stofnun sjóðsins hefur skapast far-
vegur fyrir einstaklinga, fyrirtæki og
stofnanir sem vilja rétta bágstöddum
hjálparhönd. Það ár sem sjóðurinn
hefur verið starfræktur hefur þörfin
sannast og verður öllum þeim sem
hafa gefið í Velferðarsjóð afhent við-
urkenningarskjöl á málþinginu á
morgun, öðrum til hvatningar.
Mikil gróska er í leiklistarlífi ungs
fólks í Reykjanesbæ. Unglingadeild
Leikfélags Keflavík sýnir um þessar
mundir söngleikinn Bugsy Malone í
Frumleikhúsinu. Alls 60 ungmenni
taka þátt í uppfærslunni og gaman er
að geta þess að leikstjórinn Ingólfur
Níels Árnason sleit barnsskónum í
Njarðvík.
Gróskuna er ekki síst að þakka því
mikla leiklistarstarfi sem verið hefur í
grunnskólum bæjarins á und-
anförnum árum. Þá stofnaði Guðný
Kristjánsdóttir, leiklistaráhugakona
fyrirtækið „Gargandi snilld“ fyrir
rúmu ári en þar býður Guðný upp á
námskeið í leiklist, söng og tjáningu
fyrir börn á aldrinum 8-12 ára.
ÍKeflavíkurkirkju standa nú yfir æf-
ingar á jólasöngleiknum „Kraftaverk
í Betlehemsstræti“ sem ætlunin er að
frumsýna síðar í þessum mánuði. Um
tónlistarstjórn sér Arnór B. Vilbergs-
son, organisti Keflavíkurkirkju, en
leikstjóri er Guðjón Davíð Karlsson
leikari.
Barnahátíð verður í Reykjanesbæ
helgina 14. og 15. nóvember. Ým-
islegt verður á boðstólnum fyrir börn
og barnafjölskyldur, s.s. heimboð hjá
Skessunni, sjóræningjaleikur í
Vatnaveröld, ratleikur, pappírsbrot
og leiksmiðja með gömlum leik-
föngum og nýjum í gömlum stíl í
Duushúsum, barnaball í Fjörheimum
og sögustund á Bókasafninu. Þá taka
víkingar á móti börnum í Víkinga-
heimum, segja sögur um borð í Ís-
lendingi og yngri kynslóðinni býðst
að smíða eigið víkingasverð.
Strandleið er heitið á nýju útivist-
arleiðinni meðfram ströndinni frá
Gróf að Stapa. Almenningi gafst kost-
ur á að greiða atkvæði um heiti leið-
arinnar, en yfir 80 hugmyndir bárust
frá íbúum. 20 þeirra voru settar í
skoðanakönnun og síðan valið úr 6 at-
kvæðamestu. Gönguleiðin var form-
lega opnuð á Ljósanótt og við hana
hafa verið sett upplýsingaskilti um
fuglalíf við strandlengjuna, auk sögu-
skilta sem segja frá útræði við
ströndina. Sannarlega upplífgandi að
fara þessa leið.
Morgunblaðið/Svanhildur Eiríksdóttir
Í nýjan búning Keflavíkurvöllur gengur nú í endurnýjun lífdaga.
REYKJANESBÆR
Svanhildur Eiríksdóttir fréttaritari