Morgunblaðið - 07.11.2009, Side 35
Umræðan 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2009
geti ekki skapað ríkinu skaðabóta-
skyldu að breyta lánasamningum al-
mennt með þessum hætti?
Varaðu þig!
Ég vil í það minnsta gera það sem
ég get til að vara fólk við að fara
greiðslujöfnunarleiðina. Það eru ein-
ungis þeir sem eru nánast komnir í
greiðsluþrot sem þessi leið gagnast,
fyrir aðra verður þetta dýrara þegar
upp er staðið eins og margir hafa nú
þegar bent á. Eins myndi ég vilja vara
fólk við því að taka boðum bankanna
um mun minni leiðréttingar en efni
standa til. Þeir tóku stöðu gegn lán-
þegum sínum, ætla síðan að leika
góða gæjann núna og bjóða hlutaleið-
réttingar, en það sem við eigum að
gera er að segja: „Nei takk, ég vil ekki
láta ræna mig, vera áhorfandi að því
og þurfa síðan að þola boð frá ræn-
ingjanum um að gefa mér smáafslátt
á ránvörunni sem ég þarf að borga
honum!“
Stöndum saman
Krefjumst réttlætis – förum fram á
að lánin okkar verði leiðrétt til stöð-
unnar 1. janúar 2008. Það er réttlæt-
iskrafa okkar allra, ekki síst í ljósi
nýrra upplýsinga úr skýrslu AGS þar
sem sagt er að rými sé til um 600
milljarða leiðréttinga lána. Í fram-
haldinu þarf að afnema tengingu lána
við allar vísitölur.
Á borgarafundi Hagsmunasamtaka
heimilanna á mánudaginn var troðið
út úr dyrum og mátti þar heyra fram-
sögu um framkvæmanlega leið til
leiðréttingar á höfuðstól lána og
tæknilega útfærslu hennar. Skorað er
á stjórnvöld til að kynna sér þá leið og
hætta að berja hausnum við stein af
þrjósku. Það er nauðsynlegt að vinna
skuldamálin í samvinnu við þjóðina,
það er forsenda fyrir sáttum í þjóð-
félaginu. Skráðu þig á heimilin.is!
Höfundur er stjórnarkona
í Hagsmunasamtökum heimilanna.
Á DÖGUNUM
stakk minn gamli fé-
lagi og vinur, Páll
Magnússon útvarps-
stjóri, niður penna um
málefni Ríkisútvarps-
ins og hvatti nýjan rit-
stjóra Morgunblaðsins
til þess að atast á póli-
tískum vígvelli þar sem
óvini sé að finna en
skammast ekki út í
RÚV sem ekki sé óvin-
ur Moggans. Allt gott um það. Rit-
stjórinn hafði skammað RÚV fyrir
að leiðbeina fólki um að segja upp
Mogga og spinna vef um uppsagnir á
blaðinu. Framgangan hafði beint
kastljósinu að Ríkisútvarpinu.
RÚV auglýsir að fjölmiðlar séu
háðir eigendum sínum. RÚV sé engu
háð nema 319.326 eigendum. Þetta
er auðvitað rétt hjá RÚV. Ef engir
væru skattgreiðendur þá væri auð-
vitað ekkert Ríkisútvarp. Þeir sem á
annað borð hafa náð aldri greiða
RÚV-skattinn – borga, hvað sem
raular og tautar. En sjálfsagt er
ekki við þetta átt heldur hitt að Rík-
isútvarpið eigi að vera opið öllum
sjónarmiðum og skoðunum sem sé
gert jafnrétthátt undir höfði.
En er svo?
Gegnsæi skortir
Eftir að ný lög um Ríkisútvarpið
tóku gildi snemma árs 2007 hefur
gagnsæi í starfsemi horfið; engar
stöður eru auglýstar og mál sveipuð
hulu. Í fréttareglum er sérstaklega
kveðið á um að Ríkisútvarpið skuli
veita „hlutlæga fréttaþjónustu og
vera vettvangur fyrir mismunandi
skoðanir á málum sem efst eru á
baugi hverju sinni …“
Því miður er alloft mis-
brestur á og þeir sem
telja á sér brotið hafa
engan vettvang til þess
að skjóta máli sínu til.
Um fjölmiðla gilda
siðareglur. Fólk getur
skotið máli sínu til siða-
nefndar blaðamanna.
Telji einhver að frétta-
menn RÚV brjóti
fréttareglur þá einfald-
lega horfa þeir ofan í
hyldýpi þöggunar því
fréttareglur RÚV eru ekki hinar
sömu og siðareglur annarra fjöl-
miðla. Það hefur enginn neitt um
það að segja hvort fréttareglur RÚV
séu virtar. Eigendur RÚV geta ekki
fengið úrskurð um það hvort hvort
RÚV fari að fréttareglum – sé „vett-
vangur mismunandi skoðana“.
Ríkisútvarpið er sumsé fyrir ofan
lög og reglur – ósnertanlegt ríki í
ríkinu.
Og í krafti þessa er að þróast
fréttamennska sem þekkist ekki í
rótgrónum vestrænum ríkjum –
helst þarf að fara til Ítalíu Berlúsk-
ónís og Rússlands Pútíns til þess að
finna hliðstæður þar sem fréttum er
stýrt á lævíslegan hátt.
RÚV-rællinn
Þessa fréttamennsku kalla ég
RÚV-rælinn.
Ræll er gamall sjómannadans þar
sem „parið stígur rangsælis“. RÚV
sumsé dansar bara við annan aðila
máls – og það rangsælis. Dansherrar
eru hin sósíalíska Samfylking og
Vinstri grænir. Aðrir mega sitja á
bekk líkt og bólugrafnir strákar á
skólaballi.
Á mektarárum íhaldsins birtist
RÚV-rællinn meðal annars í ótal
fréttum þar sem reiðir prófessorar
við Háskólann steyttu hnefa og út-
húðuðu stjórnvöldum. Nú hefur
RÚV-rællinn breytt um takt enda
sósíalísku flokkarnir við völd.
Spuni, þöggun og smjörklípur
Það er nýr taktur.
Raddir reiðra prófessora eru
þagnaðar en þöggun, spuni og
smjörklípur hafa tekið völd.
Dæmin eru fjölmörg.
Mogginn birti viðtal við brottrek-
inn seðlabankastjóra. RÚV sagði frá
viðtalinu og birti í kjölfarið „frétt“ til
þess að koma höggi á bankastjórann
sem væri tvísaga og ótrúverðugur.
Dálagleg smjörklípa.
Viðskiptaráðherra flutti dæma-
lausa ræðu á Alþingi um bankahrun-
ið sem væri íslenskum aulum einum
um að kenna. Landsmenn ættu að
skammast sín og borga. Þingmaður
sakaði ráðherra um að spila í röngu
liði; taka evrópska hagsmuni fram
yfir íslenska. Það þarf að fara aftur
til árdaga kaldastríðsins til þess að
finna sambærilega ásökun, stórpóli-
tísk tíðindi.
Sjónvarpið þögult sem gröfin.
Formaður Framsóknarflokksins
fór utan og bað um norska aðstoð.
Förin varð ekki inntak frétta RÚV
heldur að ráðgjafar formannsins
hefðu unnið fyrir Björgólfa!
Snotur smjörklípa þrautþjálfaðra
spunameistara.
Formaður Sjálfstæðisflokksins
sakaði Norðurlönd um að svíkja Ís-
land, taka þátt í evrópskri aðför að
íslenskri þjóð með þátttöku Alþjóða-
gjaldeyrissjóðsins. Þetta var sögu-
leg ásökun á vettvangi Norður-
landaráðs, stórmerkilegur pólitískur
viðburður.
Viðbrögð Sjónvarps – þöggun.
Tvívegis sama kvöld voru „sóma-
fréttir“ um forsætisráðherra. Í ann-
arri skammaði hún Alþjóðagjaldeyr-
issjóðinn fyrir að fresta lánveit-
ingum meðan hún sat til borðs með
norrænum meðreiðarsveinum AGS
og hafði ekki þrek til þess að beina
orðum sínum til norrænna kollega
sem taka þátt í aðförinni að þjóð
hennar.
Við brostum að slíkri fjölmiðlun í
sovétblokkinni í gamla daga.
Svona vinnur Ríkisútvarp 319.326
Íslendinga.
Páll hefur að vísu ekkert um málið
að segja enda fréttastofan ríki í rík-
inu.
Um svona Ríkisútvarp verður
aldrei sátt.
Eftir Hall Hallsson »Eigendur RÚV geta
hvergi fengið úr-
skurð um það hvort Rík-
isútvarpið fari að frétta-
reglum – sé „vettvangur
mismunandi skoðana“
Hallur Hallsson
Höfundur er blaðamaður.
Af RÚV-ræl, spuna og smjörklípum
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is ● netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið