Morgunblaðið - 07.11.2009, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 07.11.2009, Qupperneq 36
36 Umræðan MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 7. NÓVEMBER 2009 Áhættuhegðun er það kallað, þegar börn, unglingar og ungt fólk leiðist inn í það lífs- munstur sem ógnar velferð þeirra sjálfra. Að halda börnum og unglingum frá áhættu- hegðun er í daglegu tali kallað forvarnir. Rannsóknir hafa sýnt að skipulagt æskulýðs- og íþróttastarf er best til þess fallið að halda börnum, unglingum og ung- mennum frá áhættuhegðun. Vandað æskulýðs- og íþróttastarf eflir fé- lagslega hæfni einstaklinga, byggir þá upp og styrkir. Leiðir þá til manns. Velferð æskunnar er ekki aðeins mál viðkomandi einstaklinga og fjöl- skyldna þeirra. Einstaklingar sem farið hafa út af sporinu með ein- hverjum hætti kosta þjóðfélagið há- ar fjárhæðir á hverju ári. Það er því ekki aðeins samfélagsleg og siðferð- isleg skylda að stuðla að velferð barna, unglinga og ungs fólks. Að halda æskunni frá áhættuhegðun er þjóðinni fjárhagslega arðbært. En hvað gerist ef forvarnastarfið er vanrækt? Það þekkja Finnar. Þegar þeir mættu sinni kreppu á síð- asta áratug 20 aldar, var skorið nið- ur á öllum sviðum þjóðlífsins. Stuðn- ingur við æskulýðsstarf var þar engin undantekning. Í dag eiga Finnar sína „týndu kynslóð“ með miklum þjóðfélagslegum vanda- málum. Einstaklingar sem áttu ung- lingsár í skugga kreppunnar og eng- inn hafði efni á að halda frá áhættuhegðun. Finnar ráðleggja okkur eindregið að skera ekki niður á þessu sviði. Æskulýðs- og íþróttastarf á Ís- landi er að stærstum hluta unnið í sjálfboða- vinnu. Gífurlegur fjöldi fólks leggur sitt af mörkum í stjórnum, nefndum og ráðum, við skipulag og fram- kvæmd viðburða o.s.frv. Við eigum fjöl- mörg dæmi um það hvernig fjárstuðningur við æskulýðsstarf margfaldast í jákvæð- um spíral út í öflugt sjálfboðastarfið. Á sama hátt er mik- il hætta á að niðurskurður á opinber- um styrkjum skapi neikvæðan spíral og berji á eldmóð og áhuga sjálf- boðaliðanna. Það eru blikur á lofti. Útlit er fyrir að komandi kynslóðum mæti annað samfélag en það sem mætti minni kynslóð er við stigum út á vinnu- markaðinn. Því þurfum við sterka einstaklinga og öflugt fólk til að taka við keflinu. Hlustum á Finna og lærum af reynslu þeirra. Á svona tímum eig- um við ekki að skera niður styrki til æskulýðs- og íþróttastarfs. Þvert á móti þurfum við standa vörð um æskuna og leita leiða til að efla markvisst forvarnastarf. Íslenskt samfélag hefur ekki efni á því að gera það ekki. Stöndum vörð um æskuna á óvissutímum Eftir Tómas Torfason »Hlustum á Finna og lærum af reynslu þeirra. Á svona tímum eigum við ekki að skera niður styrki til æsku- lýðs- og íþróttastarfs. Tómas Torfason Höfundur er formaður KFUM og KFUK á Íslandi. Í FRÉTTAAUKANUM, þætti Boga Ágústssonar og Elínar Hirst í sjónvarpinu á sunnudögum, er margt gamalt og gott rifjað upp. Fyrir nokkru birtu þau þrjátíu ára gamalt viðtal við Eystein Jónsson alþingis- mann og ráðherra, en hann var jafn- framt formaður Framsóknarflokksins í allmörg ár og einn virtasti stjórn- málamaður okkar fyrr og síðar. Ey- steinn var heiðarlegur og hugsjóna- ríkur baráttumaður. Við minnumst hans fyrir margt, en sérstaklega bar- áttuna fyrir náttúruvernd og fjöl- skyldustefnu, útivist og gönguferð- um. Hann var leiðandi í þessum mála- flokkum bæði sem stjórnmálamaður og einnig eftir að pólitískum ferli lauk. Viðtalið við Eystein í þættinum varpaði ljósi á hugsun hans fyrir sam- heldni fjölskyldunnar og föstum sið- venjum gagnvart þúsund ára hefð og siðgæði um að halda hvíldardaginn heilagan. Eysteinn var staddur á skíðum í Hveradalabrekkunni með fjölskyldu sinni og vinum. Fréttamaðurinn spurði: „Hvað ert þú að gera hér á sunnudegi?“ Hann svaraði að bragði: „Ég tók upp á þessu fyrir þrjátíu ár- um til að hafa frið fyrir símanum á sunnudögum.“ Yndislegt svar í nú- tímanum þegar gemsinn hringir í hverju horni, jafnvel við jarðarfarir. Hvað varð um sunnudaginn? En hvað varð um sunnudaginn? Hvers vegna er hann orðinn hversdagslegur dagur sem er í raun eins og allir hinir dagarnir? „Hverjir stálu sunnu- deginum,“ spurði al- vörugefinn gestur minn þetta kvöld. Nær er að spyrja: Var það rétt að rjúfa þann heimilisfrið og þann helga frið, þann sáttmála sem um þennan dag ríkti um víða veröld í þúsundir ára? Hverj- ir rufu friðinn? Var það versl- unarvaldið og sölumennirnir og svo auðvitað tóku stjórnmálamennirnir sinn þátt í því? Kirkjan og bar- áttumenn hennar hafa orðið undir. Hvar stóð verkalýðshreyfingin sem marga sigra vann? Hins vegar er það heimilisfriðurinn sem galt mest af- hroð í þessari byltingu nútímans, kannski upphafið að græðgisvæðing- unni, ekkert var heilagt lengur. Hvíldardagurinn friðhelgur; að eiga frí á sunnudögum var sáttmáli um virðingu og góða háttsemi. Mikilvæg- asta mannréttindamál allra tíma sennilega fyrir menn og dýr. Þeir voru bræður þessa bandalags kola- námuþrællinn og gamli klárinn, báðir áttu örugga hvíld á sunnudögum eftir sex daga törn og þrældóm. Hvernig voru sunnudagarnir? Hvernig voru sunnudagar á Ís- landi fyrir fjörutíu árum þegar Ey- steinn mælir sín viturlegu orð? Þeir voru dagar með hvíld, fríi, betri föt- um, öllu hreinu frá laugardags- hreingerningunni. Maturinn var há- tíð hjá mömmu eða ömmu, öll fjölskyldan saman ef það var hægt. Lambalæri eða hryggur í hádegi, brúnaðar kartöflur með grænum ora- baunum og rabarbarasultu og sveskjugraut á eftir. Þarna fór fram manntalsþing fjölskyldunnar, sem ekki væri vanþörf á í dag. Allar versl- anir lokaðar, enginn að rífast um pólitík í út- varpi eða sjónvarpi. Fólk fór í heimsóknir, í bíó, í gönguferð, í reið- túr, til kirkju eða á skíði eins og Eysteinn. „Gömlu dagana gefðu mér,“ var sungið hér áð- ur. Nú hvarflar ekki að mér að allt sem var sé til bóta, en sumt. Þegar við metum hin gengnu spor eigum við að kalla það besta fram sem nýtt innlegg í líf okkar. Eigum við að loka öllum stórverslunum á sunnudögum? Gefa verslunarfólkinu frí og gera helgarverslunina fyrir helgina? Skag- firðingar brutu aldrei lögmálið um sunnudaginn því Skagfirðingabúð hefur alltaf verið lokuð á sunnudög- um, öllum að skaðlausu fyrir norðan. Er sofið út á sunnudögum? Sunnudagarnir voru dagarnir sem allir áttu að sofa út hér áður. Hvernig er því háttað hjá ungu foreldrunum? Önnur sjónvarpsstöðin rífur börnin upp klukkan sjö á morgnana, hin klukkan átta, allt er komið í bál og brand ef ekki er vaknað í bítið. Eru stjórnmálamennirnir í fríi eins og Eysteinn taldi mikilvægt? Nei, Bylgj- an ræsir þá í deilur upp úr tíu á sunnudögum. Egill Helgason í Silfr- inu er mættur í hádeginu og hellir silfri sínu yfir pólitíkusana sem deila sem aldrei fyrr og allt heimilisfólkið er farið að rífast heima í stofu. Dans- leikjunum lauk klukkan tvö hér áður, nú fer fólkið út um það leyti að skemmta sér. Herra Sigurbjörn Ein- arsson biskup sagði í einni af sínum síðustu ræðum, sem ég heyrði hann flytja: „Í dag snýst allt um féþúfur og Glæsivelli.“ Við höfum brennt okkur og verið brennd með stríðinu um að allt skuli keypt og allt sé leyfilegt. Það er þörf að velta um borðum, sem forðum. Þeir stálu líka sunnudeginum Eftir Guðna Ágústsson » Þeir voru dagar með hvíld, fríi, betri föt- um, öllu hreinu frá laug- ardagshreingerning- unni. Maturinn var hátíð hjá mömmu eða ömmu... Guðni Ágústsson Höfundur er fyrrverandi alþing- ismaður og landbúnaðarráðherra. Birt með fyrirvara um prentvillur. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku. Ath. að verð getur breyst án fyrirvara. Kanarí Jólaferð 19. desember - 14 nætur 24. nóvember – haustferð Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is Frá kr. 49.000 Síðustu sætin! Nú bjóðum við síðustu sætin í sólina á Kanaríeyjum 24. nóvember í 25 nætur á frábæru tilboði. Í boði er m.a. frábært stökktu tilboð þar sem þú bókar fllugsæti og gistingu og fjórum dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir (stökktu tilboð með hálfu fæði eða með "öllu inniföldu" jafnframt í boði). Einnig bjóðum við mjög takmarkað magn sæta í jólaferðina 19. desember á frábærum kjörum og m.a. sértilboð á Green Park Apartments, sem er einfalt og vel staðsett íbúðahótel á ensku ströndinni. Fjölbreytt gisting í boði. Ótrúleg sértilboð ! Verð kr. 49.900 Netverð á mann. Flugsæti báðar leiðir með sköttum. Sértilboð 24. nóv. Verð kr. 99.900 - Flug og gisting Netverð á mann, m.v. 2-4 í herbergi / stúdíó / íbúð í 25 nætur. Stökktu tilboð 24. nóvember. Aukalega m.v. stökktu tilboð með hálfu fæði kr. 30.000 og með "öllu inniföldu" kr. 50.000. Aukalega m.v. 2 í íbúð á Club Green Oasis *** með "öllu inniföldu" kr. 60.000. Verð kr. 109.900 - Jólaferð í 14 nætur Netverð á mann, m.v. 2 fullorðna og 2 börn, 2-11 ára, í íbúð á Green Park Apartments í 14 nætur. Aukalega m.v. gistingu í smáhýsi m. 2 svefnherb. á Parquesol kr. 18.050. Verð m.v. 2 í íbúð á Green Park kr. 134.900. Sértilboð 19. des.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.