SunnudagsMogginn - 17.01.2010, Blaðsíða 40
F
riðgeir Ingi rekur veitingastaðinn á
Hótel Holti jafnframt því að vera yfir
eldhúsinu. Hann er því mikið í
vinnunni en passar sig að eiga alltaf
reglulega kvöld heima. „Kokkar vinna alveg frá
morgni til kvölds. En þar sem ég er kokkur og
rekstraraðili þá er kannski ekki alveg að marka
hvernig þetta er hjá mér því vinnan er óregluleg
og meiri. Yfir veturinn, þegar mest er, í nóv-
ember og desember til dæmis, þá næ ég kannski
einum degi í viku heima. Þá er svo mikil traffík
á veitingastaðnum en til dæmis núna, þá vil ég
reyna að eiga eins og þrjú kvöld í viku heima. Þá
er nóg að vera hér allan daginn og ég get þá ver-
ið heima á kvöldin.“
Friðgeir segist vera mjög duglegur að elda
heima þegar hann getur og þegar hann er spurð-
ur hvort hann verði aldrei leiður á matreiðslunni
þá hefur hann mjög ákveðnar skoðanir á því.
„Mitt álit á því er þannig að ef að löngunin er
farin heima fyrir, þá er ástríðan farin og þá er
þetta orðin bara vinna þegar þú mætir í vinn-
una. Ef þú hefur ástríðu fyrir matreiðslunni ertu
alveg jafn glaður að elda heima eins og í
vinnunni.“
Friðgeir segist elda ekta fjölskyldumat heima
fyrir en viðurkennir að þó að matreiðslan heima
fyrir sé oftast einfaldari en á veitingastaðnum, þá
vilji hún stundum verða flóknari þegar mikið
stendur til. Hann segir engan ákveðinn mat vera
meira áberandi en annan á borðum fjölskyld-
unnar heldur leggi hann áherslu á að halda mat-
aræði heimilisfólks sem fjölbreyttustu. „Við
reynum að hafa þetta eins fjölbreytt og hægt er.
Eins og gert er annars staðar í Evrópu, þar sem
matarmenningin er kominn lengra en hjá okkur,
þá byggist þetta oft upp á því að dreifa þessu á
vikuna. Þú borðar augljóslega ekki allt á einum
degi heldur reynir að fá alla fæðuflokkana jafnt
og þétt yfir vikuna. Svo kannski veit maður
aldrei hvenær maður er í fríi en svo þegar maður
er í fríi og klukkan er orðin fimm og maður fer
að kaupa í matinn þá hugsar maður hvað var
síðast og hvað var þar áður. Það mikilvægasta
fyrir börnin er að fá hollt og fjölbreytt fæði,“
segir Friðgeir, sem á tvo syni, fimm og tveggja
ára, með konu sinni sem einnig vinnur á Holt-
inu.
Þrátt fyrir að matseðillinn heima sé í einfaldari
kantinum leggur Friðgeir áherslu á að matreiðsla
sé engin töfrabrögð og að allir eigi að getað eldað
góðan mat. Gallery Restaurant býður upp á
námskeið fyrir fólk sem vill fá nasasjón af því
hvernig það er að matreiða að hætti meistaranna
og fer kennslan fram í eldhúsi veitingastaðarins.
„Fólk lærir að búa til þriggja rétta matseðla og
það eldar allt frá upphafi með okkur inni í eld-
húsi. Svo í lok námskeiðsins fer það inn í sal og
snæðir það sem var eldað á námskeiðinu. Og allt
eru þetta réttir sem eru á matseðlinum þannig
að það er ekki verið að auðvelda þetta neitt, og
við sýnum fólki að það sem við erum að gera er í
rauninni ekkert mál. Af því að þetta er heiðarleg
matreiðsla, ekki krukkur og mix og eitthvað.
Það geta allir eldað.“
Í eldhúsinu heima
Friðgeir Ingi Eiríksson er
yfirmatreiðslumeistari á
Gallery Restaurant. Hann
segir jafn mikilvægt að hafa
ástríðu til matreiðslunnar
heima og í vinnunni.
Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is
Friðgeir Ingi Eiríksson yfirmatreiðslumeistari á Gallery Restaurant í eldhúsinu heima.
Morgunblaðið/Golli
40 17. janúar 2010
Matur