Morgunblaðið - 29.01.2010, Síða 9
Fréttir 9INNLENT
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 29. JANÚAR 2010
www.rita.is
Eddufelli 2, sími 557 1730
Bæjarlind 6, sími 554 7030
Ný sending
Kjólar - pils - jakkar -toppar - bolir
Hæðasmára 4 · 201 Kópavogur
- Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind
Símar 555 7355 og 553 7355 - www.selena.is
25-50% afsláttur
af völdum vörumÚtsala
Opið 11-18 virka daga, 11-15 laugard.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins í Hafnarfirði verður 30. janúar n.k.
Helga Ingólfsdóttir
3. sæti
Ágæta sjálfstæðisfólk!
Rekstur Hafnarfjarðarbæjar verður erfiður á næstu árum. Þá reynir
á nýjan kraft, áræði og samstöðu til að bæta hag bæjarbúa undir
forystu Sjálfstæðisflokksins.
Ég býð mig fram í 3. sæti á lista sjálfstæðismanna því ég vil leggja
fram krafta mína og reynslu til að ná árangri fyrir alla Hafnfirðinga.
Samtaka til sigurs fyrir Hafnarfjörð
Baráttukveðjur,
Helga Ingólfsdóttir
Eftir Andra Karl
andri@mbl.is
AÐALMEÐFERÐ í máli ákæru-
valdsins gegn lögreglumanni hjá
lögreglu höfuðborgarsvæðisins fór
fram í gær. Lögreglumanninum er
gefið að sök að hafa ráðist að ungum
manni sem hann handtók og að hafa
ekki gætt lögmætra aðferða við
handtöku. Hann neitar sök og segist
hafa beitt hefðbundnum aðferðum.
Atvik átti sér stað 18. janúar 2009.
Lögreglumaðurinn ásamt öðrum
svaraði tilkynningu frá skemmtistað
í miðborginni en grunur lék á að
maður vopnaður hnífi væri þar inn-
andyra. Fyrir utan hittu þeir fyrir
ungan og kjaftforan mann, fórnar-
lambið í málinu.
Lögreglumaðurinn bar við að ungi
maðurinn hefði komið út af
skemmtistaðnum og þegar í stað
verið til ama. Hann hefði ausið úr
skálum reiði sinnar yfir sig og fúk-
yrðaflaumurinn staðið upp úr hon-
um.
Snúinn niður
af sérsveitarmanni
Þegar annan lögreglubíl bar að fór
ungi maðurinn að honum og hellti
sér yfir lögreglumennina sem í hon-
um sátu. Þegar maðurinn sinnti ekki
fyrirmælum sneri einn þeirra hann
niður og handjárnaði. Ungi maður-
inn var færður í stóran lögreglubíl
og honum gert að liggja á gólfinu.
Að sögn lögreglumannsins lét
maðurinn afar ófriðlega eftir að í bíl-
inn var komið. Hann hafi beðið fyr-
irmæla frá lögregluþjóninum sem
sneri hann niður og handjárnaði, en
sá var sérsveitarmaður. Lögreglu-
maðurinn segir að sérsveitarmaður-
inn hafi sagt sér að „koma honum
burt“. Það hafi hann og gert.
Ungi maðurinn játaði að hafa
brúkað kjaft við lögreglu en ekki að
hafa atast í bíl þeirra. Kvaðst hann
hafa verið handtekinn fyrir kjaft-
brúkið og enga mótspyrnu veitt,
hvorki þá né í lögreglubílnum. Hann
sagðist hafa iðrast mjög fljótlega,
beðist afsökunar og spurt hvort
hann færi ekki örugglega upp á lög-
reglustöð. Því hefðu lögreglumenn-
irnir neitað og sagt of seint að biðj-
ast fyrirgefningar auk þess að
hreyta í hann frösum á við: „Þú ert
ekki jafnmikill töffari núna og áðan“
og „Ætlar þú að rífa kjaft við lög-
regluna aftur!“
Ungi maðurinn segir að sér hafi
verið haldið niðri og lögreglumaður-
inn ákærði hafi lagt þunga á höfuð
sitt og háls til skiptis með hnjánum.
Auk þess hafi lögreglukylfa verið
sett undir handjárnin og lyft upp. Í
áverkavottorði kemur fram að mað-
urinn var með sár á enni hægra
megin, glóðarauga, kúlur víðs vegar
á höfði, mar á eyrum og hálsi, sár á
höku og roða og bólgur á úlnliðum.
Hann segir lögreglu hafa kastað
sér út og skilið sig eftir úti á Granda.
Hann hafi verið klæddur í gallabux-
ur, skyrtu og jakkafatajakka. Og þar
sem sími hans var rafmagnslaus
þurfti hann að ganga niður í miðbæ
og taka þaðan leigubíl heim til sín.
Lögreglu-
maður neitar
harðræði
Aðalmeðferð í máli ákæruvaldsins gegn
lögreglumanni fór fram í gærdag
Lögreglumaðurinn vísaði m.a. í 15.
grein lögreglulaga til að réttlæta
handtöku unga mannsins. Í henni
segir meðal annars: „Óhlýðnist
maður fyrirmælum lögreglu […]
getur hún gripið til nauðsynlegra
ráðstafana á hans kostnað til að
koma í veg fyrir að óhlýðni hans
valdi tjóni eða stofni almenningi í
hættu.“
Morgunblaðið/Júlíus
Vísað í 15. grein
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær karl-
mann í átta mánaða fangelsi fyrir að
hafa viðhaft hótanir í garð annars
manns og 10 ára gamallar dóttur hans
í því skyni að reyna að fá manninn til
að draga til baka kæru. Hæstiréttur
þyngdi dóm Héraðsdóms Austur-
lands, sem hafði dæmt manninn í sex
mánaða fangelsi. Fram kemur í dómi
héraðsdóms að maðurinn hótaði
stúlkunni því í símtali í desember árið
2008 að faðir hennar kæmi aftur blóð-
ugur heim. Síðan hótaði hann föðurn-
um því að honum yrði ekki líft á Ís-
landi. Forsaga málsins er að
maðurinn sem varð fyrir hótuninni
lagði fram kæru á hendur tveimur
mönnum vegna líkamsárásar og ólög-
mætrar nauðungar frá því í febrúar
2008. Mennirnir voru sakfelldir fyrir
líkamsárás með því að slá manninn
hnefahögg í andlit, toga eyrnalokk úr
eyra hans og sveigja aftur þrjá fingur.
Dæmdur
fyrir hótanir
VILLA var í tilkynningu um verk-
efnið Léttari æska fyrir barnið þitt,
sem sagt var frá í Morgunblaðinu á
miðvikudag. Í tilkynningunni og
fréttinni sagði að 35% níu ára barna
á Íslandi væru of þung eða feit, en
rétt hlutfall er 21,7%.
LEIÐRÉTT
21,7% barna of feit
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær karl-
mann á fimmtugsaldri í 18 mánaða
fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn
stúlku þegar hún var á aldrinum 12 til
15 ára. Stúlkan býr við alvarlegar af-
leiðingar kynferðisbrotsins og óvíst
er hvort hún mun ná sér að fullu.
Maðurinn hafði umgengist stúlk-
una mikið en faðir stúlkunnar er
æskuvinur hans. Hann var dæmdur
fyrir að hafa í nokkur skipti á árunum
2004-2007 brotið gegn stúlkunni. Átti
þetta sér stað á heimili mannsins en
stúlkan gætti oft barna hans.
Brot mannsins voru tilkynnt lög-
reglu af barnaverndarnefnd í janúar
2008, en nefndin hafði fengið upplýs-
ingar frá skólastjóra stúlkunnar um
hugsanlegt kynferðisbrot gegn henni.
Maðurinn staðfesti við yfirheyrslur
hjá lögreglu að hafa átt nánar sam-
ræður við stúlkuna um kynlíf þegar
hún var að gæta barna hans. Þetta
hefði gerst þegar hún var fimmtán
ára.
Að sögn stúlkunnar hafði áreitnin
hins vegar byrjað mun fyrr eða þegar
hún var 12 ára. Hann hefði byrjað að
snerta kynfæri hennar utan klæða er
hún var 12 til 13 ára en innan klæða er
hún var 14 til 15 ára.
Í niðurstöðu héraðsdóms kom fram
að stúlkan býr við skerta greind og að
maðurinn hefði verið sem annar faðir
hennar. Þar kom einnig fram að mað-
urinn hefði með atferli sínu tælt unga
stúlku, sem honum var trúað fyrir, til
annarra kynferðismaka en samræðis,
auk þess sem hann áreitti hana kyn-
ferðislega. Maðurinn var einnig
dæmdur til að greiða stúlkunni 800
þúsund krónur í bætur.
Beitti dóttur vinar
kynferðisofbeldi
Afleiðingarnar alvarlegar og óvíst hvort stúlkan nær sér