SunnudagsMogginn - 17.04.2011, Page 2
2 17. apríl 2011
Við mælum með …
Sumardaginn fyrsta, hinn 21. apríl
Ýmsir ratleikir og þrautir verða í boði í Þjóðminjasafni Íslands sem eru
góð leið fyrir alla fjölskylduna til að kynnast sögu landsins á léttan og líf-
legan hátt. Eins gefst kostur á að skoða hina nýopnuðu sýningu Ekki
snerta jörðina! Leikir 10 ára barna. Þar má prófa ýmsa leiki.
Morgunblaðið/Heiddi
Ratleikjum og þrautum
18 Flókið að vera foreldri
Uppeldishættir hafa gjörbreyst á undanförnum áratugum. Anna Lilja
Þórisdóttir rýnir í málið í fyrstu grein sinni af þremur.
20 Síðan drynur í sleðunum
Svalbarði er kalt ævintýri, en spennandi eins og önnur slík. Ferða-
mennska, námavinnsla og vísindi setja svip á samfélagið.
29 Hér um bil sparkfall …
Minnstu munaði að aflýsa þyrfti Íslandsmótinu í knattspyrnu 1943
vegna skorts á fótknattarblöðrum. Þetta kemur fram í nýrri bók.
31 Pólitíkin líklega erfiðust
Hjálmar Hjálmarsson ber ábyrgð á Einari blaðamanni, Hauki Hauks-
syni ekki-fréttamanni og einum bæjarfulltrúa í Kópavogi.
36 Allt önnur ELLA
ELLA er nýtt íslenskt tískumerki, sem stefnir
líka út í heim, og leggur áherslu á svokallaða
hæga tísku.
40 Púl í pokahlaupi
Eins og það er gaman að kaupa sér ný föt þá
geta verslunarferðir tekið verulega á. Þá er
gott að hafa fótakrem og svalandi drykk við höndina.
Lesbók
42 Hátíðir fara í hönd
Frídagar eru framundan, tími sem fjölskyldur nota gjarnan til þess að
gera eitthvað annað en hversdags.
44 Viðvarandi sturlun
Ævisaga Jerúsalem eftir Simon Sebag Montefiore spannar þrjú þús-
und ára sögu og er rakin gegnum lífshlaup margra merkra manna.
24
38
Efnisyfirlit
Forsíðumyndin er af Ernst Backman innan um nokkrar af brúðum sínum.
Umsjón Sunnudagsmoggans: Pétur Blöndal, pebl@mbl.is Umsjón Lesbókar: Einar Falur Ingólfsson, efi@mbl.is Ritstjórn Sunnudagsmoggans:
Arnar Eggert Thoroddsen, Árni Matthíasson, Bergþóra Njála Guðmundsdóttir, Helgi Snær Sigurðsson, Inga Rún Sigurðardóttir, Ingveldur Geirs-
dóttir, Kolbrún Bergþórsdóttir, Kristín Heiða Kristinsdóttir, María Ólafsdóttir, Orri Páll Ormarsson, Signý Gunnarsdóttir, Skapti Hallgrímsson.
Augnablikið
J
immy Fisher er á þönum þennan daginn
eins og venjulega. Enda er hann svokallaður
„bellman“ eða vikapiltur á stóru hóteli í
Boston og atgangurinn tilheyrir starfinu.
Að hjálpa fólki með töskur og pinkla og sjá til þess
að allt heila klabbið komist haganlega inn í lyft-
una. Hann segir íslenskar konur elska að versla.
Þær kaupi það besta og svo telur hann upp nokkur
merki, Eileen Fisher, Victoria’s Secret, Lady Go-
diva … Sumar komi árlega fyrir jólin og versli þar
til þær geti ekki meira. Þá þurfi hann að aðstoða
þær með allan varninginn þegar þær snúi örmagna
aftur á hótelið. Jafnvel þurfi hann að hjálpa þeim
að pakka niður. Þetta er kannski ekki sérlega
óvenjulegt miðað við starf Jimmys en hann sker
sig þó rækilega úr að einu leyti. Hann verður
nefnilega 86 ára í október og hefur starfað í 62 ár á
Lenox-hótelinu í Boston. „Ég held mér í góðu
formi með því að synda og ganga á hverjum degi.
Ég bý í Flórída yfir vetrarmánuðina og er nú ný-
kominn aftur,“ segir Jimmy sem er sólbrúnn og
sællegur eftir dvölina. Jimmy er upprunalega frá
Bretlandi en var í bandaríska sjóhernum í seinni
heimsstyrjöldinni. „Við vorum eitt sinn á leið frá
Halifax til Skotlands og stoppuðum á Íslandi til að
taka bensín. Þetta var árið 1941 og við máttum
ekki fara í land þar sem landið var ekki hlutlaust
en það var þá enn hernumið af Bretum. Við vörð-
um því heilum degi í höfninni á Íslandi og fórum
upp á dekk til að kíkja á stelpurnar í gegnum kíki.
Enda vorum við allir ungir menn þá. Þær voru all-
ar saman ljóshærðar,“ segir Jimmy sem minnist
liðinna tíma með blik í auga og bros á vör. Hann
hefur ekki heimsótt Ísland eftir þetta en sá þátt
um landið í sjónvarpinu og þótti áhugaverð sú
staðreynd sem þar kom fram að húsþökin á Íslandi
væru öll með mismunandi lit. Jimmy segir að það
besta við starfið sé að hitta fólk alls staðar að úr
heiminum. Starfið veiti honum lífsfyllingu og
hann ætli að vinna eins lengi og guð og heilsan
lofi. Jimmy lítur vel út og segir okkur systrunum
að hann haldi andlitinu unglegu með Olay-
hrukkukremi. Þetta þykir okkur skemmtileg
staðreynd og punktum hjá okkur að kaupa eins og
eina krukku í næsta apóteki. Svo bætir hann við að
flotarommið góða hafi nú sjálfsagt haft sitt að
segja. Á hverjum degi hafi herlæknirinn sagt við
hópinn að nú gæfi hann þeim meðalið þeirra og
þessu hafi hann viðhaldið. Ekki of mikið samt.
Bara örlítinn dreitil en annars þurfi hann ekki að
taka nein lyf. Svo hefur Jimmy engan tíma til að
spjalla lengur, „þakka ykkur fyrir elskurnar,“
segir hann glaður í bragði og smalar okkur góðlát-
lega inn í lyftuna. Síðan er hann þotinn aftur af
stað til að sinna sínum störfum.
María Ólafsdóttir maria@mbl.is
Jimmy Fisher viðheldur unglegu útliti með daglegu sundi, göngu og Olay-kremi.
Sá elsti í Boston
16. apríl
Sýning Möguleikhússins, Gýpu-
garnagaul, sýnd í Gerðubergi. Sýn-
ingin er ætluð yngstu kynslóðinni.
19. apríl
Síðustu hádeg-
istónleikar vetr-
arins í Íslensku
óperunni. Á
efnisskránni
eru aríur og samsöngvar. Gesta-
söngvari verður Maríus Sverr-
isson.
19. apríl
Forystulið þjóð-
arinnar?
Kvennaíþróttir,
karlmennska
og þjóðerni. Fyr-
irlestur Hafdís-
ar Erlu Hafsteinsdóttur um sam-
spil íþrótta, þjóðernis og kvenna á
fyrstu áratugum tuttugustu aldar í
Þjóðminjasafni Íslands.
Mikki gamli mús var í banastuði á föstudag, þegar Asíu-athvarf
hans, Disneyland í Tókýó, var opnað á ný eftir mánaðar hlé vegna
afleiðinga náttúruhamfaranna í Japan 11. mars. Nokkurn tíma tók að
opna skemmtigarðinn vinsæla á ný vegna skorts á rafmagni á svæð-
inu en garðurinn er í Urayasu, austur af höfuðborginni. Mikki var
sérstaklega kvensamur þennan dag og faðmaði hverja snótina á fæt-
ur annarri eða hvíslaði þeim ástarorð í eyra. Ekki er annað að sjá en
þeim hafi líkað það vel enda Mikki annálað séntilmenni.
Veröldin
Innileg mús
Reuters