SunnudagsMogginn - 17.04.2011, Blaðsíða 40

SunnudagsMogginn - 17.04.2011, Blaðsíða 40
40 17. apríl 2011 Lífsstíll N ei, ég bara get ekki meira,“ styn ég þungan og næ að klifra upp í rúmið mitt þar sem ég leggst og læt fara vel um mig. Stuttu síðar er ég komin með hvítvín í hönd og kælandi fótakrem á lappirnar. Mikið sem ellikelling er nú farin að segja til sín hugsa ég í léttum en þó dálítið ábúðarfullum dúr þar sem ég nudda aumt mjóbakið. Fæturnir eru ekki jafnaumir en þreyttir þó og ég velti því fyrir mér hvað ég geti pínt þá áfram lengi. Þetta hljómar dálítið eins og upphafið á mjög langri sjúkrasögu. En svo er reyndar alls ekki. Í raun og veru er ég stödd í af- ar indælli verslunarferð með familí- unni þar sem inn á milli er stoppað til að fá sér gott að borða. Veðrið er gott, maturinn enn betri og fé- lagsskapurinn skemmtilegur. Þá er vissulega skemmtilegt að kaupa sér ný föt, skó og fylgihluti en mikið sem það getur tekið á. Ég hlýt að geta borðað á mig gat því eftir þramm dagsins, þar sem borgin hef- ur verið gengin þver og endilöng, og ótal klæði mátuð í svitaboga í þröngum mátunarklefum hlýt ég að vera búin að brenna því sama og í tveimur leikfimistímum. Það tekur á að troða sér í föt, sérstaklega of lítil föt, og buxur eru þar verstar. Enda ákvað ég að eyðileggja ekki ferðina fyrir öllum hinum og sleppa því að setja þær á innkaupalistann. Glingur, skór og alls konar fallegir hlutir eru mun auðveldari viðfangs. Slíkt þarf ekki að máta með jafnmiklu erfiði þótt vissulega geti verið erfitt að finna réttu hælahæðina. Það er sér- staklega skemmtilegt að versla þeg- ar maður fellur fyrir einhverju. Fyrsta kvöldið sé ég bleikan og svartan kjól sem hangir bara þarna einn og yfirgefinn. Mér sýnist hann brosa til mín og segja „ég passa þér, ég passa þér“! Það gerir hann líka og daginn eftir heimsæki ég hann aftur. Við smellpössum saman og ég brosi breitt fyrir framan spegilinn þegar ég sný mér í hring. Svona uppsker maður nú stundum vel og þá gleym- ir maður fljótt öllum verkjum, svitaköstum og harð- sperrum eftir pokahlaup. Ekkert verður eftir nema sælan og tilhlökkunin að skarta þeim nýja við gott tækifæri. Kynna hann fyrir fólkinu í kringum sig og njóta samverunnar. Já og stundum vill líka rjúka úr vísakortinu eftir svona verslunarbrjálæði. En þau eru jú úr plasti og bráðna því auðveldlega eins og smjör … best að hafa bara áhyggjur af því síðar … Púl í poka- hlaupi Eins og það er gaman að kaupa sér ný föt þá geta verslunar- ferðir tekið verulega á. Þá er gott að hafa fótakrem og svalandi drykk við höndina. María Ólafsdóttir maria@mbl.is Oftast er auðveldara að máta skó en buxur, þó getur verið erfitt að finna nákvæmlega rétta hælahæð. Reuters ’ Mér sýnist hann brosa til mín og segja „ég passa þér, ég passa þér“! Það gerir hann líka og dag- inn eftir heimsæki ég hann aftur. Það fylgir því notaleg tilfinning að kaupa sér nýja flík. Máta hana og finnast maður vera fínn og sætur í henni. Þetta getur þó farið út í öfgar og sumir gera of mikið af því að kaupa sér hluti til að líða betur eða fylla upp í tómarúm innra með sér. Í þeim tilvikum er talað um verslunarista eða shopaholics. Kaup þeirra og eyðsla fara úr böndunum og fylgifiskur þess er oftast miklar skuldir. Þá þarf fólk að leita sér hjálpar en smá- verslunaræði við og við er allt í lagi. Svo lengi sem það er gert á réttum forsendum. Hlutir veita nefnilega oft- ast bara tímabundna sælu. Hófleg eyðsla Sumir bara ráða ekki við sig á útsölum. Reuters Góður innkaupalisti er algjör nauðsyn í öllum innkaupa- ferðum. Alveg sama hvort þú ert á leið- inni að kaupa í mat- inn eða ætlar að kaupa þér nýtt dress fyrir sérstakt tilefni. Það vill nefnilega oft henda að þegar búið er að fara í nokkrar búðir vill hálfgert meðvitundarleysi gera vart við sig. Þér er orðið heitt og úrvalið er hálfringlandi. Þá er auðvelt að gleyma því að þig vantaði líka nýjar sokkabuxur með nýja kjólnum. Eða bara glært naglalakk ef það kæmi nú lykkjufall á nýju sokkabuxurnar. Það er svekkjandi að koma heim og uppgötva þá að maður hafi gleymt einum litlum hlut. Vertu því vel undirbúin/n og veltu vel fyrir þér hvað þig vantar. Það er líka sniðugt að rúnta niður Laugaveginn eða kíkja í verslunarmiðstöðvarnar fyrst svona til að kíkja í gluggana og sjá aðeins hvað er til. Þá þarftu ekki að byrja alveg frá grunni og veist nokkurn veg- inn í hvaða búðir best er að fara. Skipulögð búðaferð Verslunarmiðstöðvar má finna víða um heim en segja má að uppruna þeirra megi rekja til Bandaríkjanna. Þar spruttu upp slíkir kjarnar verslana eftir seinni heimsstyrjöldina en það þótti af- ar hentugt að geta keyrt í verslanirnar og verslað síðan innandyra. Sú stærsta er í Kína Í dag er stærsta verslunarmiðstöð heims þó ekki í Bandaríkjunum heldur í Suður-Kína. Hana er að finna í borginni Dongguan og er 892.000 fermetrar að flatarmáli. Þá næststærstu má líka finna í Kína, hið svokallaða Golden Resources Mall í Peking. Flatarmál hennar er þó mun minna eða 680.000 fermetrar. Kanada stóð sig þó vel í þessum málum til ársins 2004 en missti þá titililinn um stærstu versl- unarmiðstöðina til Kína. Í Dúbaí er að finna stærstu miðstöð Mið-Austur- landa en sú stærsta í Evrópu er Dolce Vita Tejo í Lissabon. Hvað sem öllum tölum líður um fjölda gesta og aðsókn að verslunarmiðstöðvum víða um heim er þó vinsælasti áfangastaðurinn í þessum hópi Mall of America í Minne- sota. Þar er að finna yfir 500 verslanir á fjórum hæðum og örugglega enginn vandi að eyða öllum peningunum sín- um þar á einum degi ef sá gállinn væri á manni. Ófáir verslunar- fermetrar Það er allt í Mall of America, meira að segja skemmtigarður með öllu tilheyrandi.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.