SunnudagsMogginn - 17.04.2011, Side 8
8 17. apríl 2011
Brottrekstur þjálfara er eins og mænuviðbragð þegar
illa gengur, en breytir litlu. Sú var að minnsta kosti
niðurstaða fræðimanna í Münster og Kassel, sem
greindu rúmlega 150 þjálfaraskipti á árunum 1963 til
2009. „Það hefur engin áhrif að skipta um þjálfara,“
segir Andreas Heuer, sem stýrði rannsókninni. Lið
sem skipti um þjálfara spili nákvæmlega jafn vel eða
illa og lið sem ekki skipti um þjálfara.
Heuer og félagar notuðu ýmis viðmið í rannsókninni
og var ekki bara miðað við hversu mörg stig lið fengu,
heldur einnig hversu mikið var skorað. Til að sjá mætti
árangur urðu þjálfaraskiptin að hafa átt sér stað eftir
tíundu umferð og fyrir þá 24.
Í skýrslunni kemur meðal annars fram að þjálfarar
séu iðulega reknir hafi tveir síðustu leikir tapast stórt.
Í fyrstu leikjunum eftir skiptin gangi yfirleitt betur.
Höfundar rannsóknarinnar segja að það komi hins veg-
ar þjálfaraskiptunum ekkert við. Reglan sé sú að lið
rétti úr kútnum eftir að hafa fengið slæma útreið í tví-
gang hvort sem þau skipta um þjálfara eða ekki.
Þá sé ekki óalgengt að liðum, sem gangi illa og spili
undir getu á fyrri hluta leiktímabils, gangi betur á því
síðara, hvað sem líður þjálfaraskiptum.
„Það hefur engin áhrif
að skipta um þjálfara“
Thomas Schaaf, þjálfari Werder Bremen, er
undantekningin í þýsku þjálfararúllettunni. Hann
hefur verið við stjórnvölinn í tólf ár og virðist ætla að
lifa af slæmt gengi Brimaborgara í vetur.
Reuters
J
afntefli FC Bayern Münc-
hen við Nürnberg um
helgina gerði útslagið. Ljóst
var að liðið myndi ekki
vinna titil á þessari vertíð og nú
virtist þriðja sætið í Búndeslíg-
unni og þar með sæti í meistara-
deild Evrópu einnig ætla að ganga
liðinu úr greipum. Í München
hafa menn aðrar væntingar.
München á að verða Þýskalands-
meistari, bikarmeistari og að lág-
marki komast í úrslit meistara-
deildar Evrópu – á hverju ári. Nú
var ekki annað hægt en að láta
Louis Van Gaal þjálfara taka pok-
ann sinn. Reyndar lá fyrir að Van
Gaal myndi ekki vera við stjórn-
völinn í München á næstu leiktíð,
en nú lá á að koma honum burt.
Við liðinu tekur Andries Jonker, aðstoðarþjálfari
og vinur Van Gaals, og á að bjarga því sem bjargað
verður, en hann verður aðeins þjálfari næstu fimm
leiki. „Ég er ekki glaður,“ sagði hann. „Á síðasta
tímabili náðum við ótrúlegum árangri. Og síðan fer
allt úr böndunum hjá hópnum.“
Á næsta tímabili er afráðið að Jupp Heynckes taki
við liðinu. Hann hefur verið þjálfari Bayer Lever-
kusen og þykir hafa staðið sig afbragðsvel. Um
helgina verður hann í þeirri undarlegu stöðu að
leiða Leverkusen gegn Bayern, liðinu sem hann
tekur við. Sigri Leverkusen gæti það endanlega gert
út um vonir Bæjara – og þar með hans – um að etja
kappi við þá bestu í Evrópu.
Van Gaal er síður en svo eina dæmið um hvað
þjálfarastöður hafa verið ótryggar í Þýskalandi í
vetur. Helmingur liðanna 18 í Búndeslígunni er ekki
með sama þjálfara þegar fimm umferðir eru eftir og
í upphafi tímabilsins.
Tveimur dögum eftir að Van Gaal var rekinn var
Marco Pezzaiuoli þjálfara sagt upp störfum hjá 1899
TSG Hoffenheim, sem aðeins hefur unnið einn leik
af síðustu átta og er fallið niður í tíunda sæti í deild-
inni. Pezzaiuoli staldraði því ekki lengi við sem að-
alþjálfari hjá Hoffenheim. Hann tók við 2. janúar
þegar Ralf Rangnick, sem unnið hafði kraftaverk
með liðið, lét af störfum vegna ágreinings við stjórn
og eiganda Hoffenheim. Holger Stanislawski, nú-
verandi þjálfari Hamborgarliðsins
St. Pauli, sem á í harðri fallbar-
áttu, mun fara þaðan til Hoffen-
heim í sumar.
Schalke 04 er annað dæmi.
Miklar væntingar voru gerðar
þegar Felix Magath tók við liðinu
á sínum tíma eftir að hafa gert
Wolfsburg að meisturum. Magath
þótti ekki standa undir þeim og
gengi liðsins í Búndeslígunni varð
til þess að ákveðið var að reka
hann. Gilti þá einu að Schalke var
komið í úrslit í bikarnum og hafði
gengið vel í meistaradeild Evrópu.
Þátttaka liðsins í henni er reyndar
orðin að öskubuskuævintýri eftir
að liðið lék Inter Mílanó sundur
og saman í 5-2 sigri í Mílanó og er
nú komið í fjögurra liða úrslit,
nokkuð sem enginn hefði þorað að spá. Magath er
hins vegar aftur kominn til Wolfsburg og um liðna
helgi mátti hann þola 1-0 ósigur gegn sínu gamla liði
Schalke. Magath er reyndar þriðji þjálfari Wolfsburg
þetta tímabil. Steve McClaren byrjaði með liðið í
haust, þá kom Pierre Littbarski, sem tók Eyjólf
Sverrisson með sér og var eiginlega farinn áður en
hann kom.
Þá er ljóst að Armin Veh mun ekki nýta rétt sinn
samkvæmt samningi til að vera áfram þjálfari
Hamburger Sportverein heldur hætta með liðið í
vor. Hjá Hamborg hefur lítið gengið á tímabilinu.
Eintracht Frankfurt byrjaði tímabilið vel og vann í
síðasta leik fyrir jól fyrst liða sigur á Dortmund. Eftir
jól hefur lánleysið hins vegar verið algert og það
kostaði Michael Skibbe þjálfarastólinn. Nú á Chri-
stoph Daum að sjá til þess að liðið falli ekki. Slæmt
gengi Kölnar varð til þess að Zvonimir Soldo var lát-
inn fara og Frank Schaefer kom í staðinn. Strax í
desember var Jens Keller rekinn frá VFB Stuttgart og
Bruno Labbadia tók við. Keller hafði verið ráðinn í
október þegar Christian Gross var rekinn. Stuttgart
hefur enn ekki losnað við falldrauginn.
Meira að segja landsliðsþjálfaranum, Joachim
Löw, ofbýður þjálfararúllettan í þýskum fótbolta:
„Það sem hér er á ferðinni er undarlegt. Hjá félög-
unum og sérstaklega leikmönnunum veldur þetta
óróa og jafnvel taugaveiklun.“
FC Bayern München rak Louis Van Gaal þjálfara fyrir viku. Ljóst er að
Bæjarar vinna enga titla á þessu ári og gætu misst af Evrópusæti.
Reuters
Þjálfari óskast í ótryggt starf
Í þýska fótboltanum eru þjálf-
arar skammlífir er á móti blæs
Vikuspegill
Karl Blöndal kbl@mbl.is
Marco Pezzaiuoli var ekki lengi
í náðinni hjá Hoffenheim, liði Gylfa
Þórs Sigurðssonar.
Reuters
„Vissulega verður að meta
hvert tilfelli fyrir sig, en stöðug-
leiki og samfella í þjálfaramál-
um hjá félögum þar sem stefn-
an er skýr tryggir til lengri tíma
ávallt betri árangur en stöðug
þjálfaraskipti.“ Joachim Löw,
þjálfari þýska landsliðsins,
telur tíð þjálfaraskipti hjá þýsk-
um liðum til vandræða.
Samfella betri en tíð skipti
Hlý og
mjúk
Verð aðeins 13.900,-
100% bómullaráklæði
750 gr hvítur gæsadúnn
Frábær fermingargjöf
Holtagörðum 2. hæð • Sími 512 6800 • www.dorma.is