SunnudagsMogginn - 17.04.2011, Síða 24
24 17. apríl 2011
A
kureyringum og gestum
þeirra verður boðið að
rifja upp anda liðinna
tíma í Hofi á næstunni.
Hipparnir og þær frjálsu ástir,
eiturlyfjanotkun og fleira sem þeim
fylgdi eru yfir og allt um kring. Eins
og músíkin vitaskuld; þessi frábæra
músík sem hvert mannsbarn síðustu
kynslóða þekkir.
New York - Glaumbær - Hof
Leikið er á sviðinu í Hofi, sem vart
þarf að taka fram, en áhorfendur
verða þar líka en ekki úti í sal. Sumir
í hefðbundnum sætum en einhverjir
á púðum í mikilli nálægð við leik-
arana/söngvarana.
Söngleikurinn Hárið var frum-
sýndur seint á sjöunda áratug síðustu
aldar í New York og var fyrst settur
upp hér á landi árið 1971 í Glaumbæ.
Á Akureyri er um að ræða samstarf
nokkurra vina úr Rocky Horror, sem
Leikfélag Akureyrar sýndi við miklar
vinsældir fyrr í vetur. Þau fengu til
liðs við sig fáeina til viðbótar og er
óhætt að fullyrða að hér sé á ferðinni
einvala lið söngvara: Úr Rocky, Ey-
þór Ingi Gunnlaugsson, Mattthías
Matthíasson, Jana María Guðmunds-
dóttir og Magni Ásgeirsson, og í hóp-
inn bættust Pétur Örn Guðmunds-
son, Ólöf Jara Skagfjörð, Erna Hrönn
Ólafsdóttir og Ívar Helgason. Leik-
stjóri er Jón Gunnar Þórðarson, sem
líka hélt um stjórnartaumana í
Rocky.
„Þetta er lítill hópur að búa til
stóra sýningu,“ segir Jón Gunnar við
Morgunblaðið um daginn. Gjarnan er
fjölmenni á sviðinu, helst stór kór,
en áttmenningarnir sjá um allan leik
og söng í þetta skipti.
Boðskapur
Ekki er allt til fyrirmyndar sem fram
fer á sviðinu, eins og nærri má geta
þegar hippatíminn er rifjaður upp en
margir hafa örugglega gaman af, ekki
síst ungt fólk þess tíma, og ungu
kynslóð dagsins í dag verður sýn-
ingin eflaust víti til varnaðar.
Stéttaskipting, fordómar, andúð á
stríðsrekstri: „Daginn sem þessi
boðskapur hættir að eiga erindi
verður gaman að vera til,“ sagði
Magni við Morgunblaðið.
Hendur í hári
söngvaranna
Söngleikurinn Hárið var frumsýndur í
menningarhúsinu Hofi á Akureyri í gær.
Texti og myndir: Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Í förðunarherberginu; Magni Ásgeirs-
son breytist á undraskömmum tíma úr
hörundsljósum, sköllóttum Íslendingi
í harðsvíraðan, þeldökkan og hár-
prúðan bandarískan hippa.
Jana María Guðmundsdóttir í hlutverki Sheilu.
Þórhallur Jónsson
ljósmyndari (gestur
á sviðinu!) og Ívar
Helgason bregða
á leik á æfingu.
Bak við tjöldin