SunnudagsMogginn - 17.04.2011, Side 36
36 17. apríl 2011
T
ískumerkið ELLA er góð viðbót við íslenskan
tískuheim, já og líka alþjóðlegan því fyr-
irtækið skilgreinir sig sem alþjóðlegt fyrirtæki
með aðsetur á Íslandi.
Fyrirtækið framleiðir einungis úr vönduðum efnum í
evrópskum verskmiðjum sem leitast við að setja gæði
framar öllu öðru. Auk fatnaðarins er boðið upp á ilm-
vötn og fylgihluti hjá ELLU.
Tískumerkið leggur áherslu á gæði umfram magn og
kennir sig við hæga tísku.
Katrín María Káradóttir er yfirhönnuður fyrirtækisins
og tekur að sér að útskýra hugmyndafræðina nánar.
„Hæg tíska snýst fyrst og fremst um að gefa sér tíma
til að hanna, þróa og framleiða gæðafatnað í stað þess
að umbylta öllu oft á ári svo viðskiptavinurinn fái á til-
finninguna að það sem hann keypti í gær sé um það bil
að verða hallærislegt. Við kaupum góð efni og fáum
fagaðila til að framleiða fatnað úr þeim. Með aukinni
meðvitund um áhrif gegndarlausrar neyslu á samfélög
og vistkerfi jarðar hefur áhugi á að eiga færri og betri
flíkur aukist og er þessi hreyfing í raun svar við því,“
segir Katrín og verður áherslan því ekki á mikil um-
skipti með haust- og vorlínum eins og jafnan tíðkast í
tískuheiminum.
Engar byltingar
„Við erum nú þegar byrjaðar að vinna í fatnaði fyrir
haustið en hugmyndin er ekki að umbylta öllu og koma
með allt nýtt á einum degi. Við munum alltaf þurfa að
spyrja okkur að því hvaða flíkur við viljum þróa áfram,
hvað okkur finnst vanta í línuna og hvert við viljum
halda næst. Hugmyndin er ekki að hjakka í sama farinu
og því munum við halda áfram að leita nýrra efna, þróa
ný snið, verða fyrir áhrifum frá lífinu í kringum okkur
en með báða fætur á jörðinni.“
Sniðin virka klassík og klæðileg og er stílhreinn brag-
ur á litavalinu. Hvaðan kemur innblásturinn?
„Innblásturinn kemur héðan og þaðan. Við verðum
öll fyrir áhrifum af umhverfi okkar en hönnuður leitar
bæði ómeðvitað og kerfisbundið að hlutum sem vekja
hjá honum undrun, aðdáun og löngun til að þróa sína
eigin túlkun á upplifun sinni. Í okkar tilfelli eru áhrif
frá klassískum fatnaði óneitanlega sterk því við höfum
áhuga á fatnaði sem stenst tímans tönn. Minn grunnur
sem kjólaklæðskeri og sníðagerðarnörd hefur svo auð-
vitað sín áhrif líka.“
Sem fyrr segir er lögð áhersla á að útkoman verði
vönduð. „Við leggjum mikla vinnu í að velja efni því
vönduð efni eru alger forsenda þess að úr verði góð flík.
Efnin okkar eru flest náttúrleg og allur okkar fatnaður
er framleiddur í Evrópu.“
Ætlum að vaxa lífrænt
En hvernig hafa viðtökurnar verið?
„Við vissum svosem ekki alveg við hverju við mætt-
um búast þrátt fyrir að vera sannfærðar um að tíminn
fyrir ELLU væri réttur, en viðtökurnar hafa verið fram-
ar okkar björtustu vonum og við erum virkilega glaðar
og þakklátar fyrir það. ELLA var kynnt fyrir umheim-
inum 8. apríl síðastliðinn á vefnum. Við ætlum að ein-
blína á þrjá markaði til að byrja með, Reykjavík, Lond-
on og New York, en höfum einnig mikinn áhuga á
Japan. Þrátt fyrir háleit markmið ætlum við að vaxa líf-
rænt og taka gæði fram yfir magn.“
ELLA er til sölu í Kronkron og á www.ellabyel.com
og að lokum upplýsir Katrín leyndardómsfull í bragði
að hún vonist til þess að innan tíðar verði ELLA líka í
boði „í lítilli og fallegri verslun í New York“.
Ljósmynd/Phaedra Brodie
Allt önnur ELLA
ELLA er nýtt íslenskt tískumerki, sem stefnir líka út
í heim, og leggur áherslu á svokallaða hæga tísku.
Það þýðir að áherslan er á vönduð efni, klassísk
snið og gæðaframleiðslu.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Fatalínan var kynnt með tískusýningu á 1919 síðustu helgi.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tíska