SunnudagsMogginn - 17.04.2011, Side 38
38 17. apríl 2011
S
teven Tyler, söngvari banda-
rísku glysrokksveitarinnar
Aerosmith, lýsti því einhverju
sinni yfir í viðtali að eina skýra
minning sín frá áttunda áratugnum væri
þegar hann var látinn síga niður á tón-
leikasvið úr þyrlu. Annað væri í móðu.
Eflaust eru þetta engar ýkjur hjá kapp-
anum en hann var um langt árabil bund-
inn á klafa áfengis- og eiturlyfjafíknar.
Í þessu ljósi verður gaman að sjá
hvernig Tyler tæklar þetta tímabil í end-
urminningum sínum sem koma munu út
í byrjun næsta mánaðar undir yfirskrift-
inni „Hefurðu ama af hávaðanum í höfð-
inu á mér?“ Þetta er raunar ekki í fyrsta
sinn sem hann fer á trúnó með aðdáend-
um sínum, en söngvarinn hermdi einnig
af lífi sínu í bókinni „Á röltinu“ eða
„Walk This Way“ árið 1997, ellefu árum
eftir að hann braut af sér fjötra eitursins.
Frá því fyrri bókin kom út hefur mikið
vatn runnið til sjávar. Tyler skildi við
seinni eiginkonu sína, fyrri eiginkona
hans andaðist, hann undirgekkst skurð-
aðgerð vegna dularfulls meins í hálsi,
upplýsti að hann væri með lifrarbólgu C,
fór í meðferð vegna verkjalyfjafíknar og
bar ágreining sinn við félagana í Aero-
smith á torg. Það er sumsé af nógu að
taka.
„Ekkert verður dregið undan,“ sagði
Tyler þegar hann kynnti bókina á dög-
unum. „Þetta er yfirgengileg, nærgöngul
og átakanleg saga Stevens Tylers með
mínum eigin orðum.“
Margir bíða eflaust með öndina í háls-
inum eftir að heyra Tyler lýsa risi Aero-
smith á áttunda áratugnum, hnignuninni
Gamla glyströllið
Steven Tyler baðar
sig enn í ljóma
frægðarinnar og er
í þann mund að senda
frá sér endurminn-
ingar sínar.
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Reuters
Glyströll opnar ginið
Tyler og ástkonan, Erin Brady. Hann er orðinn 63 ára.
Steven Tyler ásamt dóttur sinni, leikkonunni Liv.
E
r búið að semja?“ spurði amma þegar dillandi músík heyrð-
ist í útvarpinu. Staðfesting fékkst þegar Jón Múli sagði
fréttir þar sem helst bar til tíðinda að verkfalli BSRB væri
lokið. Þetta er minning blaðamanns um verkfall opinberra
starfsmanna haustið 1984 sem lamaði allt þjóðfélagið í heilan mánuð.
Óhætt er að fullyrða að engin átök á vinnumarkaði hafi á síðari ára-
tugum orðið jafn hörð.
Í septemberbyrjun samþykkti forysta BSRB að boða til verkfalls frá
og með 19. september. Ríkissáttasemjari nýtti sér svigrúm í lögum og
framlengdi það til 4. október. Var þá orðið einsýnt að til verkfalls
kæmi og því ákvað fjármálaráðherra að opinberum starfsmönnum
yrðu ekki greidd laun í októberbyrjun. Hleypti sú ákvörðun illu blóði
í fólk sem lagði niður vinnu þá þegar. Starfsemi skóla og opinberra
þjónustustofnana lagðist niður, lögregluþjónar sinntu aðeins neyð-
armálum og eftirlit tollvarða var laust í reipum. Það sem var einna
válegast var þó, að strax á fyrsta degi októbermánaðar lögðu starfs-Kröfuganga í miðborg Reykjavíkur í víðtæku verkfall BSRB á haustdögum fyrir bráðum 27 árum.
Morgunblaðið
Myndasafnið Október 1984
Verkfallsráð
var ríkisstjórn
Frægð og furður