SunnudagsMogginn - 17.04.2011, Qupperneq 39
17. apríl 2011 39
í kringum 1980 og einni glæsilegustu
endurkomu sem um getur í rokksögunni
um miðjan níunda áratuginn. Þá var
ákvörðun hans um að ganga söngvara-
keppninni vinsælu American Idol á hönd
á síðasta ári umdeild og ýmsir hafa legið
Tyler á hálsi fyrir að leggja nafn sitt við
slíka „lágkúru“. Kannski þvær hann
hendur sínar af þeim glæp í bókinni?
Aðrir munu hafa meiri áhuga á einkalífi
kappans sem verið hefur með litríkara
móti. Frægt var þegar Tyler gerði sam-
komulag við foreldra fjórtán ára stúlku
um að hefja sambúð með henni. Hann var
þá 27 ára gamall. Þremur árum og all-
mörgum lyfjaskömmtum síðar skilaði
Tyler stúlkunni til föðurhúsanna.
Tyler er tvígiftur og tvískilinn. Fyrri
eiginkona hans (frá 1978 til ’88) var fyr-
irsætan Cyrinda Foxe, sem þekktust er
fyrir samstarf sitt við Andy Warhol. Hún
lést af völdum heilaæxlis árið 2002.
Seinni eiginkonan (frá 1988 til 2006) var
fatahönnuðurinn Teresa Barrick. Hann
býr nú með Erin nokkurri Brady. Tyler á
fjögur börn með þremur konum, þeirra á
meðal leikkonuna Liv Tyler.
Tyler hefur verið í dómarateymi hæfileikakeppninnar American Idol í vetur ásamt Jennifer Lopez.
’
Þetta er yfir-
gengileg, nærgöngul
og átakanleg saga
Stevens Tylers með
mínum eigin orðum.
menn Ríkisútvarpsins niður vinnu. Slíkt þótti slæmt í alla staði og
hálfu verra varð málið sakir þess að á sama tíma voru prentarar í
verkfalli sem stoppaði alla blaðaútgáfu í landinu. Þannig stöðvuðust
upplýsingar í landinu um stundarsakir. Reyndar hófust útsendingar
útvarpsfrétta fáum dögum síðar og var þar vísað til þjóðaröryggis. Þá
hófu DV og NT útgáfu fjölritaðra blaða þar sem fullyrt var að slök
tollgæsla í verkfallinu leiddi til þess að fíkniefni flæddu inn í landið.
Mesta harkan í verkfallinu var við höfnina þar sem flutningaskip
fengust ekki tollafgreidd. Bar því fljótlega á vöruskorti.
Þegar líða tók á októbermánuð náði Reykjavíkurborg samningum
við þá starfsmenn sína sem voru innan vébanda BSRB. Með því
komst nokkur skriður á viðræður og samningar náðust 30. október,
þegar Kristján Thorlacius, formaður BSRB, skrifaði undir samning
við fjármálaráðherra. Voru kjarabæturnar m.a. uppbætur ýmiss
konar auk þess sem mánaðarlaun allra hækkuðu um 800 kr. Þá var
sínu litlu af hverju öðru breytt sem opinberir starfsmenn létu sér vel
líka, enda samþykktu þeir samninginn í allsherjaratkvæðagreiðslu
með 82% greiddra atkvæða.
„Þetta er líklega síðasta stóra verkfallið á Íslandi. Verkfallið var
víðtækt og það eru engar ýkjur að verkfallsráðið, sem veitti undan-
þágur, hafi í raun haft ríkisstjórnarvald meðan þetta ástand varði,“
segir sr. Baldur Kristjánsson sem á þessum tíma var blaðafulltrúi
BSRB. „Þessari kjaradeilu fylgdi mikill æsingur og fólki hljóp kapp í
kinn eins og oft gerist við svona aðstæður. Á endanum lauk verkfall-
inu í hálfgerðum styttingi, að minnsta kosti varð ávinningurinn ekki
mikill og kjarabæturnar sem fengust voru ekki það sem vænst var.“
Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is
’
Óhætt er að
fullyrða að
engin átök
á vinnumarkaði hafi
á síðari áratugum
orðið jafn hörð.
Baldur
Kristjánsson
Þ
að er bara allt of sjaldan maður í matinn hér í
mötuneyti Hádegismóanna, hugsaði kona ein
þar sem hún sat og graðgaði í sig grautinn og leit
dreymnum augum út um gluggann. Kannski
konur ættu að gera meira af því að virkja sína
sjálfsbjargarviðleitni og skokka út í móann til að leita
manna sem þær gætu svo gætt sér á í hádeginu.
Hvur veit hvað leynist milli trjánna, þúfna og steina
þegar rölt er í kringum Rauðavatn. Alltaf einhverjir
föngulegir hestamenn að hreyfa klárana sína á þessu
svæði, svo ekki sé minnst á lærvöðvaþrútnu mennina sem
hlaupa eins og enginn sé
morgundagurinn. Tilvalið að
bregða fæti fyrir þá og hjúkra
þeim og strjúka aðeins eftir fall-
ið. Og kannski það séu kynóðir
vatnamenn að svamla um í
Rauðavatninu. Mætti reyna að
veiða þá.
Þessir hugarórar létu á sér
kræla í hádegisspjalli í gær í
fyrrnefndum Hádegismóum
þegar eyrun námu orðin:
Járnsmiður í salati.
Þá var spurt hvort átt væri við svarta dýrið sem kennt
er við járnsmið eða manninn sem smíðar úr járni.
Spurningin segir allt sem segja þarf um hungur þeirra
kvenna sem við borðið sátu.
Þær tækju fagnandi vörpulegum iðnaðarmanni sem
leyndist milli salatblaðanna eða træði marvaðann í súp-
unni.
Eða smeygði sér löðrandi upp úr sósunni.
Munnfylli af handlögnum karlmanni væri kærkomið
krydd í hádegissnæðinginn.
Og þegar hugurinn er á annað borð farinn af stað í að
tengja saman mat og holdsins lystisemdir þá stekkur hún
Samantha úr Beðmálsþáttunum fram á sjónarsviðið,
svona líka sólgin í að láta borða sig, konan sú.
Minnisstætt er atriðið þar sem hún bar sig á borð fyrir
einn af sínum elskhugum, í bókstaflegri merkingu:
Hún lá alsnakin á borðinu og hafði þakið sig sushi-
bitum, mat sem hún vissi að karlinn væri sólginn í.
Annað eftirminnilegt átsatriði, en kannski síður þokka-
fullt, er úr kvikmynd Peters Greenaways, Kokkurinn,
þjófurinn, kona hans og elskhugi hennar:
Þegar konan lét heilsteikja elskhuga sinn sem eigin-
mannsóþverrinn hennar drap, bara til að vera vondur við
hana.
Hún lét kokkálinn borða vel steiktan loverinn.
Dugandi menn og karlmannlegir taka á járninu.
Járnsmiður
í salatinu
’
Þær tækju
fagnandi
vörpulegum
iðnaðarmanni
sem leyndist milli
salatblaðanna
eða træði marvað-
ann í súpunni.
Stigið í
vænginn
Kristín Heiða
khk@mbl.is
Áströlsku turtildúf-
urnar Melanie og
Rene Schachner
langaði að gera brúð-
kaup sitt eftirminni-
legt og létu fyrir vikið
eftir sér að standa
kviknakin frammi fyr-
ir prestinum að við-
stöddu fjölmenni. „Við erum stolt af líkömum okkar og ég
sparaði stórfé á brúðarkjól,“ sagði brúðurin hróðug. Gest-
um virtist hvergi brugðið, alltént mynduðu þeir parið í bak
og fyrir og fliss var í lágmarki. Einn gestanna hafði þó orð
á því að heppilegt hafi verið að ekki var svalt í veðri.
Nakin í hnapphelduna
Engin spéhræðsla hér á ferð.
Manni nokkrum í bænum Lebanon
í Ohio-ríki í Bandaríkjunum brá
heldur betur í brún þegar hann kom
heim úr ferðalagi á dögunum og
fann eiginkonu sína hangandi hálfa
út um kjallaraglugga á húsinu. Hún
var látin. Nokkrum klukkustundum
áður hafði konan sent bónda sín-
um sms-skilaboð þess efnis að
hún óskaði að varalykillinn væri á sínum stað. Svo var
ekki, þannig að konan reyndi að skríða inn um gluggann
með þessum skelfilegu afleiðingum. Glugginn er mjög
þröngur og niðurstaða dánardómstjóra var sú að konan
hefði kafnað u.þ.b. níu tímum áður en hún fannst.
Kafnaði í kjallaraglugga
Þröngir gluggar geta
verið varasamir.