SunnudagsMogginn - 17.04.2011, Síða 43
17. apríl 2011 43
Ekki lesa bækur!
Ekki söngla ljóð!
Þegar þú lest bækur visna augasteinarnir
og skilja eftir tómar tóftir.
Þegar þú sönglar ljóð vætlar hjarta þitt
hægt út með hverju orði.
Fólk segir að bóklestur sé ánægjulegur.
Fólk segir að það sé gaman að söngla ljóð.
En ef varir þínar eru sífellt að búa til hljóð
einsog krybbur sem tísta að hausti,
þá muntu aðeins breytast í veiklaðan gamlingja.
Og jafnvel þó þú verðir ekki veiklað gamalmenni
er það öðrum til angurs að þurfa að hlusta á þig.
Það er svo miklu betra
að loka augunum, sitja í kytru sinni,
draga tjöldin fyrir, sópa gólfið,
brenna reykelsi.
Það er unaðslegt að hlusta á vindinn,
hlusta á regnið,
fara í göngu þegar hugurinn býður,
og sofna þegar þreytan sækir að.
Úr Tunglið braust inn í húsið, Ljóðaþýðingar Gyrðis Elíassonar.
Ekki lesa bækur
Jang Wan Li
H
arry Hole, söguhetja Rauð-
brystings, Nemesis og nú
Djöflastjörnunnar, er erki-
týpa skandinavíska reyf-
aralögregluforingjans – drykkfelldur,
tæpur á geði og í sífelldu basli með
ástamálin. Hann er að sama skapi eit-
urskarpur, ekki vandur að meðulum
og skilgreinir réttlæti iðulega öðruvísi
en dómstólar. Djöflastjarnan er dæmi-
gerð Harry Hole-bók, þrælspennandi
með groddalegum glæpum og
þrælsnúinni fléttu. Bókin hefst þar
sem lík ungrar konu finnst í fjölbýlis-
húsi í Ósló og verksummerki benda til
þess að þetta hafi ekki verið hefð-
bundið morð, ekki venjulegur ástríðu-
glæpur. Þegar annað lík finnst stuttu
síðar bendir flest til þess að raðmorð-
ingi sé á ferðinni sem skreytir fórn-
arlömb sín með rauðum stjörnulaga
demöntum, sker af þeim fingur og
mjög upptekinn af tölunni fimm.
Fljótlega eru menn komnir á slóð
morðingjans, eða það halda þeir í það
minnsta því Hole áttar sig fljótlega á
því að ekki er allt sem sýnist. Inn í allt
saman fléttast svo langvinn glíma Hole
við samstarfsmann sinn, Tom Waaler,
sem hann grunar um sitthvað misjafnt
og ekki að ófyrirsynju.
Aðdáendur Harry Hole ættu að kæt-
ast því ekki er bara að framvinda í
bókinni er hröð og æsileg, heldur eru
gerð upp í henni ýmis mál sem flækst
hafa fyrir Hole í fyrri bókum, gömlum
spurningum svarað og loks kemur
uppgjörið á milli Hole og Waaler sem
er magnþrungið og blóðugt eins og
vera ber. Víst er fullmikið lagt í auka-
persónur eins og gjarnan í bókum
Nesbø og margt óþarflega flókið og
snúið, aukinheldur sem fyllerís-
ástandið á Hole verður þreytandi til
lengdar, en bókin er þrælspennandi og
snúningar í restina virðast til þess
fallnir að fækka geðflækjum Hole sem
gefur von um framhaldið.
Þrælsnúin flétta
Bækur
Djöflastjarnan bbmnn
Eftir Jo Nesbø. Uppheimar gefa út, 475 bls.
Norski rithöfundurinn Jo Nesbø.
Árni Matthíasson
’
Hvíldardagshelgin,
fyrst gyðinganna,
síðan hins kristna
heims, eru vafalaust merk-
ustu mannverndarákvæði
mannkynssögunnar.
Morgunblaðið/Sigurgeir S