SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Síða 26
26 21. ágúst 2011
Veitingastaðurinn sem var í Boeing 377 en maturinn var víst ekkert slor, að sögn Gunn-
ars Eyjólfssonar, og pantaður af bestu veitingahúsum þess tíma.
G
unnar Eyjólfsson þjónaði mörgu frægu
fólki þegar hann vann sem flugþjónn
hjá flugfélaginu Pan Am á sjötta ára-
tugnum. Hann þjónaði aðalsfólki
margra landa, keisaraynjunni af Íran, heims-
frægum leikurum einsog Gary Cooper, velflestum
mógúlum viðskiptalífsins og kvikmyndaheimsins í
Bandaríkjunum og forsætisráðherrum margra
landa. Hann minnist sérstaklega þess þegar stór
hluti afgönsku ríkisstjórnarinnar var um borð og einn
ráðherrann kom til hans á þriggja klukkustunda fresti
til að spyrja í hvaða átt austur væri. „Þeir þurftu að
vita í hvaða átt þeir áttu að snúa við bænir sínar,“ segir
Gunnar til útskýringar, en múslimar verða að snúa í átt
að Mekka þegar þeir fara með þær.
Þrátt fyrir að hafa gengið vel í leiklistinni heima á
Íslandi eftir tveggja ára nám í Royal Academy of
Dramatic Arts í London að þá ákvað hann snögglega
að fara til Bandaríkjanna og vinna fyrir sér þar og
koma aldrei aftur. Rómantík og ástarævintýri hans á
Íslandi hafði snúist upp í andstæðu sína þegar hon-
um var sagt frá því að konan sem hann var ást-
fangin af væri hálfsystir hans. Hann kom sér af
landi brott og langaði aldrei að koma aftur til Ís-
lands. Hann fór að vinna sem barþjónn í New York
en vinur hans benti honum síðan á að sækja um
hjá Pan Am-flugfélaginu því þar var óskað eftir
flugþjónum sem kynnu ensku, íslensku, dönsku,
sænsku, norsku, þýsku og fleiri tungumál. En um
þessi lönd flaug flugfélagið meðal annars. Gunnar
var ráðinn eftir að hafa talað við íslenskt fisk-
útflutningsfyrirtæki og fengið með þeirra leyfi að
skrifa um sig stórkostlegt meðmælabréf í þeirra
nafni.
Rómantík
Með stór-
stjörnum
Á gullaldarárum flugsins gistu flugfreyjurnar alltaf margar nætur í hverri borg á milli fluga.
Karlmaður í ein-
kennisbúningi var
nokkuð sem enginn
kvenmaður gat
staðist á gullald-
arárum flugsins.
Flugmenn og flugfreyjur
voru eftirsótt við makaval á
Vesturlöndum á þessum
tíma.