SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Page 47

SunnudagsMogginn - 21.08.2011, Page 47
21. ágúst 2011 47 G estir á Bókakaffinu á Selfossi fletta ýmist bók- um eða vöfflum. Elín Gunnlaugsdóttir sér um veitingarnar og nýju bækurnar, en í ytri saln- um bóndi hennar Bjarni Harðarson um heim fornbóka. Ranghalarnir eru fleiri, því salan fer einnig fram á veraldarvefnum og fyrir örlagabókaorma liggur leiðin í bílskúr handan götunnar. Skúrinn stendur við húsið hans Denna á Sólbakka, eins og Bjarni kallar húsið sem hann býr sjálfur í. „Það hafa aldrei verið teknar myndir þar og hann er náttúrlega hræðilegur,“ segir Bjarni með áherslum á rétt- um stöðum, orðið hræðilegt verður alveg hræðilegt í hans meðförum. Hann lætur sig hafa það að opna dyrnar fyrir blaðamanni og ljósmyndara. Eins og nærri má geta blasa við sneisafullar hillur af bókum – einn veggur í bílskúrn- um alþakinn ævisögum. „Ég á eftir að raða þeim í stafrófsröð,“ lýgur Bjarni blá- kalt. „Ég hélt þær væru aðalmálið þegar ég byrjaði, en þær hreyfast sáralítið. Merkar ævisögur seljast, eins og Árna Þórarinssonar og Björns Eysteinssonar, en almennt er dræm sala á ævisögum sem skrifaðar eru um fólk í lifanda lífi. Það er skemmtilegt við fornbókaverslun að slíkar bækur afhjúpa sig og verða í endursölu álíka merkilegar og gömul tímarit, sem eru óseljanleg. Og kannski voru þær aldrei meira en löng tímaritsviðtöl.“ – Hvaða bækur eru eftirsóttastar? „Mikið er spurt um Guðrúnu frá Lundi. Og hraðasta endurnýjunin er í rekkanum undir ljóðabækur, þar er líka mest af bókum, þannig að út frá sjónarhóli kaupmannsins er það arðbærasta hilla hússins.“ – En aðrar skáldsögur? „Örfáir klassíkerar seljast, Laxness, Gunnar og Þór- bergur, ákveðnar bækur Sigurðar A. og Fátækt fólk Tryggva Emilssonar, sem reyndar er vafamál hvort er ævisaga eða skáldsaga og það á líka við um ævisögu séra Árna. Ágætir höfundar eins og Hagalín, Kristmann og Guðmundur Dan. hreyfast ekki, en það er vakning í bók- um gömlu kvenhöfundanna, Jakobínu, Málfríðar og Svövu. En mest verðmæti eru í ljóðabókum, þjóðsögum og fræðiritum, allt frá sagnfræði til rita sem reyna að höndla sannleikann. Sumir kalla það andleg rit, sumir nota óvirðulegri orð, sem ég ætla ekki að skemmta les- endum með – spíritismi, sjálfsrækt og allt þetta sem þykir ekkert voðalega bókmenntalegt.“ Hann teygir sig í bók í hillunni. „Þetta er ósköp tilviljanakennt, ekki þarf annað en að lesin sé saga í útvarpi, eins og Monika á Merkigili, þá kemur fjöldinn og spyr eftir henni. Ég átti eitt stakt ein- tak, seldi það og sagði nei við hina. Ég hálfsá eftir því, því ég átti fjögur heil sett af Hagalín og tímdi ekki að selja Moniku út úr þeim, fyrir vikið á ég enn þessi fjögur sett.“ Skyndilega rifjast upp fyrir Bjarna að ljósmyndari er í bílskúrnum. „Er ég eins og andskotinn nokkuð?“ Svo hristir hann hausinn. „Nei, ég er bara eins og ég er.“ Ekki fer hjá því. Enginn flýr sjálfan sig. Penni og blað gægist upp úr brjóstvas- anum. Bækurnar vaxa á honum. Enn teygir hann sig í bók: „Hérna er Theodór Friðriksson, sjálfsævisaga hans er ein af örfáum sem standast tímans tönn, enda heimild um eitt- hvað sem er horfið.“ Þó að sumar bækurnar standist tímans tönn, þá gildir ekki endilega það sama um hillurnar. Bækurnar sjálfar stoðirnar, sumar svigna undan þunganum og í „asanum í byrjun“ hrundu nokkrar í gólfið. En þá festi Bjarni upp staura sem varna því að hillurnar hallist fram eða loftið hrynji, sem farið er að síga undan bókastöflum. Bjarni opnar dyrnar í innra herbergi með gryfju í gólfinu. „Denni á Sólbakka byggði húsin, en þá var stefnan að allir fylltu lóðirnar af kartöflum og væru með rollur,“ segir hann. „Denni sótti um fjárhús eins og aðrir. Gísli Bjarnason frá Lambhúskoti í Tungum, velti umsókninni lengi fyrir sér, en sagði á endanum nei, því Denni bjó við Austurveginn. Þá endurnýjaði Denni umsóknina; hann var vörubílstjóri, sótti um bílskúr með hlöðu og fékk. Nú erum við í hlöðunni, sem varð um leið fjárhús og voru grindur yfir gryfjunni. Þetta var því nútímalegt! Þegar ég kom hingað fyrst voru enn lambaspörð í kjallaranum. Þess vegna finnst mér við hæfi að nefna húsið bókhlöðu.“ Ósjálfrátt er hann kominn með bók í hendurnar. „Þetta er dæmi um kláðabókmenntir,“ missir hann út úr sér og flýtir sér að bæta við: „Þú mátt ekki hafa þetta eftir mér í blaðinu.“ Of seint fram komið. Hann les á káp- una: „Lífsgleði njóttu, bók um varnir gegn áhyggjum eftir Dale Carnegie, hún selst alltaf. Það á líka við um Skugga og Jóhannes Birkiland. Þeir seldust illa í lifanda lífi, tróðu bókum sínum inn á menn og enginn vildi gefa þá út, en urðu sígildir á jaðrinum. Þetta er bókaflokkur sem ég var sjálfur svag fyrir, skrítnir kallar.“ – Enda höfundur Sigurðar sögu fóts! „Hún sækir fyrirmynd í annað uppáhald hjá mér, ridd- arasögurnar. Ég var spurður hvort þetta væri sunnlensk beyging. Ég tel það, en jafnt sunnlensk sem íslensk. Beyg- ingar voru ekki svona akkúrat fyrir tíma málvöndunar, Benedikt Gröndal beygir aldrei nafn Egils bróður síns í Dægradvöl, bara frá Egili, og var hann þó enginn aukvisi í stíl. Ég man gamla menn í minni sveit sem beygðu ekki Hjört í Austurhlíð og ekki bæinn Gölt í Grímsnesi. Sama er með Sigurðar sögu fóts, það er gömul alþýðleg beyging á heit- inu.“ Hann færir til stiga til að ná í bækur. „Hérna eru bækur sem bera vott um ís- lenska bókmenningu, fallega innbundnir þýddir alþýðureyfarar, gylltir og hvaðeina, oft nokkrar bækur saman. Einu sinni rakst ég á Lilju Eysteins Ásgríms- sonar með Rétti Íslendinga í ríkjasambandi við Noreg eftir Boga Melsteð frá 1913 og sögunni um Alfred Dreyfus.“ – Það verður að nýta bókbandið! „Já, og úr verður einstök bók alveg. Það er líka gaman hvað maður sér stundum aftast í svoleiðis bókum. Kyn- blöndnu stúlkuna hef ég séð tvisvar, það var allt að því djörf bók um múlattastúlku á tímum þrælaverslunar. Ég held að Jónas frá Hriflu hafi sagt að í þeirri bók megi finna fleiri villur á einni blaðsíðu en annars í heilu bókasafni. Hann var reiður yfir því að þjóðin læsi hana í stað Njálu, en auðvitað er gott að lesa þetta allt í bland. Ég er með skúffu úti í búð sem á stendur: Bannað börnum. Þar eru ekki myndablöð, það þýðir ekkert að vonast eftir því, en þetta er bókmenntagrein og miklu meinlausara en önnur teg- und af …“ Hann klárar ekki setninguna. „Kynblendingsstúlkan var önnur bók með svipaðan titil en mun grófari,“ heldur hann áfram. „Við lásum velkt eintak af innlifun úti í dæluskúr í Laugarási í Biskups- tungum tólf ára, en síðan hef ég ekki séð hana. Nafnið er svo líkt að ég var að velta fyrir mér hvort þetta væri sama bókin og komst þá að því að Kynblendingsstúlkan var svona hryllilega bönnuð að hún finnst ekki einu sinni í Gegni. En eitt eintak hefur einhvern veginn sloppið upp í Biskupstungur, þá heilögu sveit!“ Texti: Pétur Blöndal pebl@mbl.is Ljósmynd: Kristinn Ingvarsson kring@mbl.is Síðasta orðið … Bjarni Harðarson Er ég eins og andskotinn nokkuð? ’ Eitt eintak slapp í Bisk- upstungur, þá heilögu sveit!

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.