SunnudagsMogginn - 28.08.2011, Page 15
L
andmannalaugar,“ segir Ragnar Ax-
elsson eða RAX, er hann er spurður
um sinn sælureit. „Þar er svo fallegt
að maður þarf að klípa sig til að vita
hvort maður er ekki dauður. Og ef það er
svona þegar maður er dauður, þá er næstum
því í lagi að drepast strax! En ég verð senni-
lega að bíða í fimmtíu ár enn.“
Hann hefur unnið að bókaverkefni und-
anfarin tuttugu ár, fylgst með smalamennsku
á þessu svæði, og ætlar að ljúka við það í
réttum í haust.
„Ég hef verið þarna með góðu fólki í gegn-
um tíðina og hlakka alltaf til,“ segir hann.
„Mér finnst Ísland ein ríkasta þjóð í heimi að
eiga þennan stað. Það er ótrúleg tilfinning að
sitja í lauginni og horfa á stjörnurnar eftir að
hafa smalað. Og líka í vondu veðri! Ég hef
farið í öllum veðrum og það er alltaf fallegt.
Fólkið hefur elst á þessum tuttugu árum og
þetta er falleg saga, Ísland í hnotskurn –
svona hefur lífið í landinu verið í gegnum
aldirnar.“
Pétur Blöndal pebl@mbl.is
Landmannalaugar