SunnudagsMogginn - 11.09.2011, Blaðsíða 31
11. september 2011 31
T
alið er að í heiminum svipti sig
einhver lífi á 40 sekúndna
fresti. Mun algengara er að
karlar séu þar að verki en kon-
ur, en þær gera reyndar töluvert fleiri
sjálfsvígstilraunir sem enda ekki með
dauða.
Staðreyndin er sú að á Íslandi taka
tveir til þrír eigið líf í hverjum mánuði.
Sjálfsvígum hefur samt fækkað að með-
altali hér á landi á síðustu þrjátíu árum
en vert er að geta þess að tölur fyrir árið
2010 liggja enn ekki fyrir.
„Mikið er horft til þess hver áhrif
efnahagshrunsins hafa orðið,“ segir
Högni Óskarsson, geðlæknir og formað-
ur fagráðs Landlæknisembættisins um
forvarnir gegn þunglyndi og sjálfsvígum.
„Af Norðurlöndunum hafa Íslendingar
orðið langverst úti efnahagslega og að
einhverju leyti félagslega. Í samfélaginu
hafa undanfarið verið fantasíur í gangi
um mjög mikla fjölgun sjálfsvíga en þær
sögur eru sem betur fer ekki réttar.
Vissulega hafa þau komið í bylgjum, til
dæmis á Reykjanesi á síðastliðnum vetri
en af því er ekki hægt að draga afgerandi
ályktanir,“ segir Högni við Sunnudags-
moggann.
Eitt sjálfsvíg þykir að sjálfsögðu einu
of mikið, því er stöðugt unnið að for-
vörnum á þessu sviði og Hjálparsími
Rauða krossins, 1717, hefur komið mörg-
um til góða. Mjög margir hringja árlega
þangað, bæði fólk í sjálfsvígshugleið-
ingum og þeir sem telja aðra í sjálfsvígs-
hættu.
Fagráðið sem áður var nefnt var stofn-
að 2003 en starfsemi þess hefur verið
minni síðustu þrjú ár en áður vegna fjár-
skorts. Dráttur hefur orðið á að tölur um
tíðni sjálfsvíga fyrir árið 2010 liggi fyrir,
en óyggjandi tölur fyrir það ár verða
mikilvægur mælikvarði á þróunina.
„Segja má að í lok árs 2009 séu áhrif
kreppunnar ekki alveg komin fram,
maður heldur því niðri í sér andanum og
krossar fingur.“ Fjárhagserfiðleikar fólks
hafi aukist og örvænting þeirra sem leita
eftir hjálp sé meiri en áður. Hann hafi þó
á tilfinningunni að tíðni sjálfsvíga hafi
ekki aukist á milli ára.
Högni hefur unnið með öðrum sér-
fræðingum, bæði annars staðar á Norð-
urlöndunum og annars staðar í Evrópu.
Sífellt er reynt að draga lærdóm af þróun
mála.
Tölur yfir sjálfsvíg karla 15 ára og eldri
voru lægri að meðaltali á Íslandi árið
1980 en annars staðar á Norðurlönd-
unum og enn árið 2009. Sjálfsvígum
fjölgaði að vísu hérlendis í tvígang, árin í
kringum 1990 og aftur 2000, en Högni
segir að það hafi verið innan tilvilj-
unarmarka.
Sjálfsvíg voru næstum tvöfalt algeng-
ari í Danmörku og Finnlandi en hér
heima árið 1980, ástandið var sambæri-
legt í Noregi og á Íslandi en meðaltalið
hærra í Svíþjóð.
Sjálfsvíg hafa lengi verið mun algeng-
ari í Finnlandi en annars staðar á Norð-
urlöndum. Flest voru þau í byrjun tí-
unda áratugarins, í efnahagshruninu þar
í landi, en næstu ár á eftir dró verulega
úr. Í árslok 2009 voru tölur yfir sjálfsvíg
í Finnlandi samt sem áður um 60%
hærri en í hinum löndunum.
„Finnar eru af annarri ætt en við, sbr.
tungumálið; Það er talið að þeirra ætt-
stofn komi meira að austan, og það er
merkilegt að hjá þjóðum og þjóð-
arbrotum sem eru erfðafræðilega skyldar
þeim – til dæmis Ungverjum og hluta
Slóvena – er töluvert hærri sjálfs-
vígstíðni en hjá öðrum nágrönnum
þeirra allra.“
Þegar tölfræði yfir sjálfsvíg kvenna er
skoðuð kemur í ljós að tíðni er líka lægst
á Íslandi áratugina þrjá. Mun meiri
sveiflur eru annars staðar; tölur að vísu
sambærilegar hér og í Noregi við upphaf
tímabilsins en hærri bæði í Finnlandi og
Svíþjóð og miklu hærri í Danmörku. Í
árslok 2009 voru tölur lítt breyttar í
Finnlandi, íslenskar tölur fyrir konur
voru áfram með þeim lægstu. Mjög dró
úr sjálfsvígum kvenna í Danmörku á
tímabilinu.
„Ef við lítum á þetta sem keppni eru
Danir ótvíræðir sigurvegarar því sjálfs-
vígstíðnin þar hefur lækkað mjög mik-
ið,“ segir Högni. Hann segir erfitt að
benda á eitthvað sérstakt sem skýrir
þessar breytingar. Hér á landi séu þung-
lyndislyf vissulega notuð í meiri mæli en
annars staðar, en forvarnir gegn sjálfs-
vígum séu öflugar í Danmörku. Engar
einhlítar skýringar eru á þessum góða
árangri.„Það er hægt að tína margt til,
en staðreyndirnar í málinu eru töl-
urnar.“
www.sjalfsvig.is
Sögur um
fjölgun
sjálfsvíga
ósannar
Morgunblaðið/Golli
Sögusagnir um mikla
fjölgun sjálfsvíga á
Íslandi eftir efnahags-
hrunið eiga ekki við
rök að styðjast, að sögn
Högna Óskarssonar
geðlæknis. Runninn er
upp alþjóðlegur dagur
sjálfsvígsforvarna.
Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is
Sjálfsvíg á Íslandi fjöldi/100.000 í aldursflokki
Karlar 15 ára + Karlar 15-24 ára Konur 15 ára + Konur 15-24 ára
35
30
25
20
15
10
5
0
1980-84 1985-89 1990-94 1995-99 2000-04 2005-09
25,27
23,09
8,70
2,78
21,31
18,99
7,31
0,91