SunnudagsMogginn - 11.09.2011, Blaðsíða 41
11. september 2011 41
LÁRÉTT
1. Meitla holt einhvern veginn í innheimtu. (10)
8. Andlegt fer fram til að verða annarlegt. (11)
9. Við strit verkum málm í málefni atvinnuveganna.
(10)
11. Siðleg borði einhvern veginn með svipbrigðinu.
(11)
13. Afli mun fást með skurðaðgerð. (7)
14. Hvað var tilefni þess að mér var gert áskynja?
(6)
15. Systir Maríu þrátt fyrir allt sýnir það sem er upp-
tekið. (8)
17. Krónu fyrir skel, kiðling og mergðina. (8)
20. Sveium! Slekk aftur þrátt fyrir vonbrigði. (9)
23. En snúa við við að braska í fylki. (8)
24. Plaffaði í keltu. (5)
25. Ó kyssti við mas að sögn þess sem hefur gam-
an af kvölum. (9)
28. Mildi með aur er ljósfyrirbrigði. (8)
29. Algjör færni finnst venjulega. (7)
31. Menntaðar í MS þvælast fyrir þeim sem lifa á
svipuðum tíma. (12)
32. Skaði og rugli lið sem er ekki saman. (8)
LÓÐRÉTT
1. Talaður er varla ruglaður. (7)
2. Hæna með engil ruglar slána. (10)
3. Afl eggjar einn með græðling. (10)
4. Svipti sorgmætt vinnu beint. (8)
5. Duglegur með varning og seðilinn. (9)
6. Ná í veröld með að hitta. (9)
7. Klunnaleg með vigtað á erfitt með mál. (9)
10. Rugla baunum með því að endurgjalda. (6)
12. Fletta létt án pappírs. (10)
16. Mjólkurdrykkur erlends höfðingja. (5)
18. Klukka ef eitt er í herbergi. (5)
19. Arabísk kona kaupi föt meðal annars. (6)
20. Kynlíf með Bandaríkjamanni endar með herp-
ingi. (10)
21. Skemmi ullarhnoðri ónýtan. (10)
22. Fíruðu að ríki með fugl. (9)
24. Keyri á ásýnd. (6)
25. Sigrar fótboltafélag sjúkdóm. (7)
26. Ef til vill kann og skilur að hálfu (7)
27. Fimmtíu og ein fjöl myndar byggingu að sögn. (7)
30. Síma í rugli eftir grænmeti. (4)
Verðlaun eru veitt fyrir rétta lausn
krossgátunnar. Senda skal þátt-
tökuseðilinn í umslagi merktu:
Krossgáta Morgunblaðsins, Hádeg-
ismóum 2, 110 Reykjavík. Frestur
til að skila úrlausn krossgátu 11.
september rennur út á hádegi 16.
september. Nafn vinningshafans
birtist í blaðinu 18. september.
Heppinn þátttakandi hlýtur bók í vinning. Vinningshafi
krossgátunnar 4. september er Steinunn Þorbergs-
dóttir, Litlu-Heiði, Vík. Hún hlýtur í verðlaun bókina
Sláttur eftir Hildi Knútsdóttur. JPV gefur út.
Krossgátuverðlaun
André Danican Philidor (1726-
1795) var einn þekktasti óp-
eruhöfundur Frakka á sinni tíð
og á gólfi þekktasta kaffihúss
skáksögunnar, Café de la Re-
gence í París, bar hann af öðrum
skákmönnum. Eftir hann liggur
mikið verk á sviði skák-
bókmennta og nafn hans tengist
mörgum snjöllum endatafls-
lausnum. Hagnýtt dæmi sem
hann leysti er þegar upp kemur
staða þar sem annar aðilinn hef-
ur kóng, hrók og biskup gegn
kóng og hrók. Tiltölulega einfalt
er að verjast með hrókinn í
næsta námunda við kónginn en
stundum villast menn í hina
svonefndu „Philidor-stöðu“.
Þar liggur lausnin m.a. í dul-
arfullum biskupsleik.
Á heimsbikarmóti FIDE sem
stendur yfir þessa dagana í
Khanty Manyisk í Síberíu hafa
fjölmargir skákmenn sýnt frá-
bæra takta. Þar eru fremst í
flokki Vasilí Ivantsjúk og Judit
Polgar. Hún hóf þátttöku sína
með 2:0 sigri yfir lítt þekktum
skákmanni en síðan lagði hún að
velli Movsesian og Karjakin að
velli. Í 4. umferð vandaðist mál-
ið, hún tapaði fyrri skákinni
gegn Kúbverjanum Dominguez
og varð að vinna þá seinni með
svörtu. Eftir 95 leiki var „Phili-
dor-staðan“ komin upp:
Dominguez – Polgar
96. … Bf1
Lausnarleikur Philidor.
97. Hg4 Hb5 98. Hg3 Bd3 99.
Hg4 Hb1 100. Hg2 Hb3+ 101. Ka4
Hb5 102. Hg4 Hf5 103.Ka3 Hf1
104. Hg2 Hb1 105. Hh2 Bf5 106.
Hg2 Bd3 107. Hh2 Bf1 108. Hf2
Eða 108. Ka2 Hb5 109. Ka1 He5
og engin vörn finnst við hót-
uninni 110. Ha5+ og 111.Bd3+ og
mátar.
108. … Bc4 109. Hf3 Bd3 110.
Hf2 Hb3 111. Ka2 Hb6 112. Ka1
Hg6
og Dominguez gafst upp.
Til að útkljá þetta spennandi
einvígi var fyrst gripið til at-
skákar, 25 10. Enn jafnt 1:1. Aftur
jafnt eftir hraðskákir 10 10. Í
þeirri fyrri sleppti Judit gjör-
samlega fram af sér beislinu og
náði mátsókn. Hægt er að sanna
að hún hafi verið með tapað tafl
frá 21. – 27. leik en heppnin
fylgir hörkunni.
Judit Polgar – Lenier Dom-
inguez
Sikileyjarvörn
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4.
Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Bc4
Ein hvassasta leiðin gegn Naj-
dorf-afbrigðinu.
6. … e6 7. O-O b5 8. Bb3 Be7 9.
Df3 Db6 10. Be3 Db7 11. a3 O-O
12. Hae1 Bd7 13. g4 Rc6 14. g5
Re5 15. Dg2 Rh5 16. f4 Rc4 17.
Bxc4 bxc4 18. f5 g6 19. Rce2 e5
20. f6 Bd8 21. Rf5!?
Þó þessi fórn „standist ekki“
þá kom varla nokkrum á óvart
að hún skyldi grípa til hennar.
21. … gxf5 22. Rc3 Kh8! 23.
Dh3 Rf4
Á að duga til sigurs en einfald-
ara var 23. … Rxf6! 24. gxf6 f4 og
svartur vinnur.
24. Bxf4 exf4 25. Hxf4 Hg8 26.
Hh4 Hxg5 27. Kf1 Bxf6??
Í 10 mínútna skák er erfitt að
átta sig á muninum á þessum
leik og 27. .. Kg8. Eftir 28. Hxh7
Bxf6 29. Rd5 Bg7! vinnur svart-
ur.
28. Rd5 Dxb2?
Eftir 28. .. Bg7 getur hvítur
leikið 29. Re7!
29. Hxh7 Kg8 30. Dh6!
Hér loks rann upp fyrir Dom-
inguez að 30. … Hg6 eða 30. …
Bg7 strandar á 31. Hh8+! Bxh8
32. Re7 mát!
30. … Bd8 31. e5!
Línurof. Svartur er varnarlaus.
31. … Hg1+ 32. Kxg1 Dd4+ 33.
Kf1
– og Dominguez gafst upp.
Eftir að Dominguez jafnaði
metin var gripið til tveggja hrað-
skáka, 5 3. Fyrst jafntefli og svo
vann Judit og samanlagt því
4 ½ : 3 ½. Magnað einvígi. Eftir
standa átta skákmenn af 128 sem
hófu keppni: Ivantsjúk, Grisc-
huk, Svidler, Ponomariov,
Gashimov, Radjavov, Navara og
Judit Polgar.
Keppnisharkan fleytti Judit Polgar áfram
Helgi Ólafsson helol@simnet.is
Skák
Nafn
Heimilisfang
Póstfang
Krossgáta