SunnudagsMogginn - 11.09.2011, Blaðsíða 45

SunnudagsMogginn - 11.09.2011, Blaðsíða 45
11. september 2011 45 Lesbók E rtu búinn með bókina sem ég lét þig hafa?“ spyr kollegi minn mig nánast daglega, þegar ég mæti snemma morguns til vinnu með bauga niður á bringu. Svarið hefur verið það sama um nokkurra vikna skeið: Nei. Kolleginn ranghvolfir aug- um enda les hann eina bók á dag, stundum fleiri. Hann fær alltaf sömu skýringuna á þess- um skjaldbökulestrarhraða: Ég fæ engan frið til að lesa bækur. Frekar ótrúlegt en engu að síður satt (eða svona 95% satt). Málið er að ég, líkt og svo margt fjöl- skyldufólk með ung börn, hef um tvær klukku- stundir á sólarhring til að gera eitthvað annað en að vinna, kaupa í matinn, elda, sækja börn á leik- skóla og hafa ofan af fyrir þeim fram að háttatíma. Þegar börnin eru sofnuð, upp úr kl. 20, færist loks ró yfir heimilið, maður get- ur lagst upp í sófa og tekið sér bók í hönd. Að fimm blaðsíðum loknum hringir síminn, einhver þarf að ræða málin, allt upp í hálfa klukkustund. Þegar búið er að leggja á hefst bóklestur á ný. Hvar var ég nú aftur? Já, þarna. Bíddu, hver var aftur þessi Bill? Það þarf að fletta til baka til að komast að því. Já, al- veg rétt, Bill var þessi þarna í útilegunni. Bóklestur hefst þar sem frá var horfið. Fimm blað- síður lesnar. Aftur hringir sím- inn. Einhver þarf að ræða málin. Við ræðum málin. Tuttugu mín- útum síðar hefst bóklestur á ný. Fimm blaðsíður. Þá vaknar yngri sonurinn með öskrum. Það þarf að svæfa hann. Kortér þar. Bóklestur hefst á ný. Hver var aftur þessi Annie? Flett til baka. Já, einmitt, Annie var þessi þarna sem hann Bill hitti í útilegunni. Augnlokin þyngjast, stafasúpa flýtur yfir síðurnar. Ég verð að fara að sofa. Vonandi næ ég að klára bókina fyrir jól og verð þá búinn að eyðileggja hana fyrir mér með bútalestri. Svona á ekki að lesa bækur! En hvað getur maður gert? Maður þarf nú að sofa á nóttunni. Von- andi gefst friður til þess. Bækur í bútum ’ Hver var aftur þessi Ann- ie? Flett til baka. Já, einmitt, Annie var þessi þarna sem hann Bill hitti í útilegunni. Orðanna hljóðan Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Ó freskjan er svo sann- arlega nafn við hæfi á samnefndri glæpa- sögu eftir Roslund og Hellström. Bókin kom út í Sví- þjóð 2005 og fékk þá Glerlykil- inn, norrænu glæpasagnaverð- launin. Það segir margt um ágæti sögunnar. Ekkert er eins slæmt og mis- þyrming á börnum og höfund- um tekst að yfirfæra raunveru- leikann í sögu sem er svo trúverðug að lesandinn getur vart annað en lifað sig inn í hana og tekið harða afstöðu gegn ófreskjunni og kerfinu. Í því felst ákveðinn tvískinnungur með lög og reglur í huga en þegar á reyn- ir er ekki um annað að ræða. Þetta er saga um hvernig pó- temkíntjöld bitna fyrst og fremst á saklausum. Tvær stúlkur á grunnskólaaldri finnast látnar og um fjórum árum síðar tekst banamanni þeirra að sleppa úr vörslu lögreglu. Skömmu síðar finnst ung stúlka látin og faðir hennar tekur til sinna ráða. Mál- ið tengist ekki aðeins smábæ heldur snertir alla sænsku þjóð- ina, yfirvöld eru harðlega gagn- rýnd og ekki síst þegar bakari er hengdur fyrir smið. Spegilmynd samfélagsins ein- kennir margar norrænar glæpa- sögur. Það er hvorki merki um ágæti þeirra né áfellisdómur en höfundar Ófreskjunnar koma efninu til skila á sérlega góðan hátt. Á stundum er eins og verið sé að lesa lýsingu á samtíma- atburðum frekar en skáldsögu og lesandi getur ekki annað en fyllst viðbjóði á ófreskjunni. Yf- irvöld eiga heldur ekki upp á pallborðið og í raun verður nor- ræna velferðarkerfið hjóm eitt við lesturinn, leikrit, sem al- menningur sér loks í gegnum. Umfjöllun um misþyrmingu á börnum og barnaníðinga í glæpasögum er ekki heillandi. Hins vegar verður ekki framhjá því horft að ófreskjur eru á hverju strái og börn eru hvergi óhult. Höfundar sýna svo sann- arlega fram á það. Með sögunni gagnrýna þeir einnig ýmislegt í kerfinu og þó að umfjöllunar- efnið eigi við um Svíþjóð getur hver sem er hvar sem er horft í eigin barm við lestur sögunnar. Helsti gallinn við þessa bók, eins og svo margar glæpasögur um þessar mundir, er hvað höf- undar eða útgefendur vilja teygja lopann. Fyrir vikið eru þær oft of langar. Endurteknar lýsingar á hugrenningum ófreskjunnar fóru líka aðeins fyrir brjóstið á gagnrýnanda, en að vissu marki ýta þær undir viðbjóðinn og gegna því ákveðnu hlutverki. Þýðingin er góð og í stuttu máli er þetta ekki aðeins góð glæpasaga heldur þörf þjóðfélagsádeila. Raun- veruleg skáldsaga sem er víti til varnaðar. Víti til varnaðar Bækur Ófreskjan bbbbn Glæpasaga eftir Roslund & Hell- ström. Þýðing: Sigurður Þór Salvars- son. 358 bls., kilja. Uppheimar 2011. Anders Roslund og Börge Hellström. Steinþór Guðbjartsson Verið velkomin LISTASAFN ÍSLANDS Söfn • Setur • Sýningar KONA / FEMME, LOUISE BOURGEOIS 27.5. -11.9. 2011 KJARVAL, Úr fórum Jóns Þorsteinssonar og Eyrúnar Guðmundsdóttur 27.5. -11.9. 2011 SUNNDUDAGSLEIÐSÖGN 11. SEPT. KL. 14 um báðar sýningar safnsins Halldór Björn Runólfsson safnstjóri SÍÐASTA SÝNINGARHELGI Á SÝNINGUNUM! SAFNBÚÐ Listaverkabækur, kort, plaköt, íslenskir listmunir og gjafavara. SÚPUBARINN, 2. hæð Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. Allir velkomnir! www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Þúsund ár - fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands frá 19. öld til nútímans. Fyrsti áfangi nýrrar grunnsýningar um þróun íslenskrar myndlistar. „Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“ Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar, undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar. Sýningin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri. Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna. Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is Listasafn Reykjanesbæjar Dúkka. Valgerður Guðlaugsdóttir. 1. sept. – 16. okt. Óvættir og aðrar vættir. Grafík. 1. sept.- 16. okt. Byggðasafn Reykjanesbæjar Bátasafn Gríms Karlssonar Opið virka daga 12.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Fjölbreyttar sýningar: Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár Pétur Thomsen: Ásfjall Kurt Dejmo: Ljósmyndir úr Íslandsheimsókn 1955 Guðvelkomnir, góðir vinir! Útskorin íslensk horn Rauðir gúmmískór og John Útskornir kistlar Stoppað í fat Glæsileg safnbúð og Kaffitár Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opið alla daga kl. 10-17 ALMYNSTUR Arnar Herbertsson JBK Ransu Davíð Örn Halldórsson Kaffistofa – Leskró – Barnakró OPIÐ: alla daga. kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði 26. ágúst – 23. október Í bili Bryndís Snæbjörnsdóttir & Mark Wilson, Daníel Björnsson, Grétar Reynisson, Haraldur Jónsson, Hildigunnur Birgisdóttir, Hugsteypan, Ingirafn Steinarsson, Jeannette Castioni, Magnús Árnason, Olga Bergmann, Ólöf Nordal og Skyr Lee Bob. Sýningarstjóri, Ólöf Gerður Sigfúsdóttir. Sunnudag 11. september kl. 15 Listamannaspjall – Hugsteypan Ingunn Fjóla Ingþórsdóttir og Þórdís Jóhannesdóttir Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri. www.hafnarborg.is sími 585 5790 - Aðgangur ókeypis 15. maí – 15. sept. Farandsýning Ekki snerta jörðina! Leikir 10 ára barna Opið alla daga kl. 11-18 www.husid.com Sími 483 1504 FIMMTÍU GÓÐÆRI ATH. Síðasta sýningarhelgi 6. ágúst til 11. september 2011 Sýning á verkum úr safninu eftir 65 listamenn. Sýningarstjórn: Kristín G. Guðnadóttir og Steinunn G. Helgadóttir. Opið 13-17, nema mánudaga. Aðgangur ókeypis. Freyjugötu 41, 101 Rvk www.listasafnasi.is LISTASAFN ASÍ

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.