SunnudagsMogginn - 11.09.2011, Blaðsíða 10

SunnudagsMogginn - 11.09.2011, Blaðsíða 10
10 11. september 2011 M ér hefur oft orðið hugsað til þess með hvaða hætti sagnfræðingar samtíðarinnar munu afgreiða í sögubókum þann svarta blett sem 33 þingmenn settu á sögu Alþingis í vetur er leið, er þeir ákváðu að draga Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, einan fyrrverandi ráðherra, fyrir landsdóm. Væntanlega munu þingmenn VG og þeir þingmenn Samfylk- ingarinnar sem greiddu atkvæði með þessum hætti fá sinn dóm, fyrir pólitískar ofsóknir á hendur pólitískum andstæðingi. Þessi blettur verður aldrei afmáður af sögu Alþingis. Hann mun fylgja þrjátíuogþremenningunum út yfir gröf og dauða. Raunar fannst mér að snilldarmynd félaga míns RAX (Ragnars Axelssonar) á forsíðu Morgunblaðsins sl. þriðjudag, sem er eins og nú- tímaútlegging á krossfesting- unni, segði allt sem segja þarf. Nú er það ekki svo, að ég ætli á nokkurn hátt að leggja þá að jöfnu, Jesú Krist og Geir, aldrei og alls ekki, en fréttalega var þessi mynd RAX svo sterk og táknræn, þar sem Geir situr og horfir alvörugefinn fram fyrir sig og við hliðina á honum er Andri Árnason, verjandi hans og horfir til himins. Bak við þá gnæfir svo krossinn í glugg- um Þjóðmenningarhússins, þar sem landsdómur kom saman á mánudagsmorgun, til þess að fjalla um frávís- unarkröfu lögmanns Geirs. Mér þóttu rök Andra verj- anda mjög sterk. Hann benti réttilega á að rannsókn máls- ins hefði verið verulegum annmörkum háð; engin skýrsla hefði verið tekin af ákærða eða vitnum áður en málið var höfðað, ákæruatriði væru óljós og orðalag oft afar loðið. „Ég lít svo á að búið sé að snúa sönnunarbyrðinni við, að hann eigi að sanna sakleysi sitt,“ sagði Andri m.a. við landsdóm. Og aumt var það yfirklórið hjá saksóknara Alþingis, Sigríði J. Friðjónsdóttur, þegar hún sagði, sem andsvar við þeirri gagnrýni verjanda Geirs að engin skýrsla hefði verið tekin af Geir við rannsókn malsins, „að verjandi Geirs hefði auðveldlega getað farið fram á að Geir fengi að skýra mál sitt“, eins og það var orð- að í frétt hér í Morgunblaðinu sl. þriðjudag. Bíðum nú við. Er það í verkahring grunaðs manns að óska eftir því við rannsakendur í sakamáli að fá að skýra mál sitt? Er það ekki hluti af því réttarfari sem við búum við, eða öllu heldur eig- um að búa við, að þeir sem rannsaka hugsanleg sakamál yf- irheyri þá sem grunaðir eru og komist til botns í því hvort grun- urinn á við rök að styðjast eða ekki? Átti Geir að hringja í Atlanefndina svokölluðu og segja við þau: „Mér er sagt að þið grunið mig um glæpsamlegt athæfi. Viljið þið ekki vera svo væn að yfirheyra mig og kanna hvort grunur ykkar á við rök að styðjast?“ Hér snýr saksóknarinn öllu á hvolf og lætur eins og það sé í verkahring hins grunaða að sjá til þess að rannsakendur yfir- heyri hann. Þetta er svo sorglegt, í septembermánuði árið 2011, að það nær ekki nokkurri átt. Vissulega er þessi framkoma saksóknara Alþingis, sem fyrr á þessu ári var skipuð ríkissaksóknari, fyrst kvenna, ekki gæfulegt veganesti yfir í það embætti. Innan þriggja vikna mun landsdómur svo ákveða hvort hann fellst á röksemdir verjanda Geirs og vísar málinu frá. Ekki ætla ég að halda því fram að slík frávísun myndi hreinsa þingmennina 33 af gjörðum sínum, en heldur myndi hún þó skána myndin af ís- lensku réttarfari. Landsdómur og sagan Agnes segir Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is ’ Mér er sagt að þið grunið mig um glæpsam- legt athæfi. Viljið þið ekki vera svo væn að yfirheyra mig og kanna hvort grunur ykkar á við rök að styðjast? Gunnhildur Ólafsdóttir er deild- arstjóri í búsetukjarna fyrir geð- fatlaða í Reykjavík: 07:15 Vekjaraklukkan hringir. Stutt djúpöndun og drífa sig svo á fætur. Ískalt vatn, hafragrautur með bláberjum – orkubomba út í daginn. Man eftir að taka lýsi. Róta í fatahrúgum og snyrtikörfum. Merkilegt hvað það virðist alltaf vera mun erf- iðara að finna hluti svona snemma morguns! 08:00 Mætt í vinnuna. Byrja vinnudaginn á að hella upp á kaffi og spjalla við íbúa. Notaleg morgunstund. Opna dagbókina og renni yfir verkefnin fram- undan. 09.00 Geng hring um hverfið með einum íbúa, eins og vana- lega mætum við nokkrum kött- um á vappi. 10.00 Starfsmannafundur. Rætt um hvernig hefur gengið undanfarið, allir nokkuð sáttir eftir sumarið. Farið yfir tenglavinnu og vaktabreytingar. Endalaust hægt að tala um starfið svo tíminn flýgur áfram. 12.30 Ávöxtum og öðru góð- gæti skellt í blandarann – nauð- synlegt fyrir samviskuna. 16:00 Trítla heim. Finn að líkaminn þarf nauðsynlega á frekari hreyfingu að halda. Verð að henda í eina þvottavél, ekki nógu dugleg við það undanfarið og því af nægu að taka. Blessuð húsverkin! 16:15 Íhuga að hendast í ræktina en hugsa svo að nægur tími verður til þess þegar kuld- inn kemur. Sit stundarkorn við gluggann og horfi á aldrað tréð í garðinum. Kveiki á tölvunni og kíki á netið, auðvelt að tapa tím- anum yfir frétta- og spjallsíðum, en eftir alla inniveruna brýst súrefnisþörfin snögglega út. Loka tölvunni án frekari um- hugsunar. Best að drífa sig út á meðan veðrið er svona! 16.30 Fer í Sundhöllina. Ætti auðvitað að taka sundsprett en heiti potturinn heillar meira þessa stundina. Losna við stress- ið og hreinsa hugann. Gufa í stutta stund og svo upp úr al- gjörlega endurnærð. Dásamlegt! 17.30 Rölti niður Skóla- vörðustíginn, flottasta gata borgarinnar. Sé að Súfistinn í Iðuhúsinu er horfinn, þar fékk maður besta kaffið! Finn annað kaffihús, langar í góðan kaffi- bolla og kíkja í blöðin. Mannlífið skemmtilegt, allskonar fólk á ferli. Örlítið byrjað að vera haustlegt úti, þægileg tilfinning sem því fylgir. 19:00 Horfi á kvöldfréttir. Man sem betur fer eftir að taka úr vélinni. Lítið um eldamennsku í kvöld. 20.30 Heyri í systur minni, fallegt kvöld svo við ákveðum að taka kvöldgöngu í kringum Rauðavatn, passleg vegalengd síðla dags. Dökkbrúnn Labra- dorprins kemur með, mikill orkubolti sem æðir áfram og við systur reynum að halda í við hann. Hressandi félagsskapur, svo sannarlega. Blankalogn og vatnið spegilslétt í rökkrinu. Alltaf er nú langbest að vera bara einhvers staðar úti í náttúrunni. 22.15 Komin í kotið og upp í sófa. Athuga sjónvarpsdag- skrána, ekkert þar sem vekur áhuga. Skoða stöðuna á Feisbúkk – þar er alltaf nóg að gerast! Ljúf tónlist í tækið, kveiki á kertum og slaka á. 23.45 Farin að sofa. Dagur í lífi Gunnhildar Ólafsdóttur, deildarstjóra í búsetukjarna Eftir vinnu fór Gunnhildur út að ganga við Rauðavatn með dökkbrúnum Labradorprinsinum. Spegilslétt vatnið Miðasala 568 8000 borgarleikhus.is Áskriftar- kortið mitt Högni Egilsson í Hjaltalín

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.