Morgunblaðið - 15.05.2010, Qupperneq 2
2 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti
vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is
Sigurður Elvar Þórólfsson, seth@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf.
Gera kröfu um 250 milljarða
Slitastjórn Landsbankans tiltekur 11 tilvik sem varða bótaskyldu stjórnenda
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Slitastjórn Landsbankans telur að stjórnendur
bankans séu bótaskyldir vegna 11 tilvika í rekstri
bankans. Kröfur vegna þessara mála hljóða sam-
tals upp á um það bil 250 milljarða. Herdís Hall-
marsdóttir, sem sæti á í slitastjórn Landsbankans,
sagði í samtali við Morgunblaðið að um væri að
ræða ýtrustu kröfur. Það væri ekki samhengi milli
ýtrustu krafna og væntanlegra endurheimtna.
Krefjast riftunar
Herdís sagði að verið væri að vinna áfram að
rannsókn á þessum 11 tilvikum. Eftir væri að taka
afstöðu til þess hvort það væri eftir einhverju
meiru að slægjast en tryggingunni einni. „Okkar
hlutverk er að endurheimta verðmæti inn í búið.
Við erum í þeirri sérstöku stöðu að tveir af upphaf-
legum kaupendum bankans, Björgólfur Guð-
mundsson og Magnús Þorsteinsson, hafa verið
lýstir gjaldþrota og við erum nú þegar stærstu
kröfuhafarnir í þrotabúi þeirra.“
Í gjaldþrotalögum er að finna ákvæði sem eru
sett til að endurheimta verðmæti sem fóru úr
bankanum með ótilhlýðilegum hætti ellegar þann-
ig að raskað væri jafnræði kröfuhafa. Herdís
nefndi sem dæmi að ef veitt væru lán til ógjald-
færs aðila án fullnægjandi trygginga en lánið hefði
verið nýtt til að greiða upp skuld gjaldfærs aðila
stuttu fyrir gjaldþrot þá væri heimilt að líta
framhjá því að þetta hefði verið veitt sem lán og í
staðinn væri litið á þetta sem gjöf til handa þeim
aðila sem fékk greiddar skuldir sínar með þessum
hætti. Gerð væri þá krafa um endurgreiðslu úr
hendi hins gjaldfæra aðila á þessari forsendu. „Við
erum þessa dagana að senda út yfirlýsingar um
riftun. Með því erum við að segja: Þessi ráðstöfun
er riftanleg og þið verðið að skila verðmætunum
sem fengust vegna ráðstöfunarinnar. Þær fjár-
hæðir sem við erum að krefjast endurheimtu á eru
90 milljarðar. Þessar yfirlýsingar beinast að hin-
um ýmsu aðilum, bæði stjórnendum bankans, öðr-
um fjármálastofnunum og fleirum.“
Rannsókn Deloitte á Landsbankanum er
langt á veg komin, en Herdís treysti sér ekki til að
svara því hvenær henni lyki.
Sérstakur sak-
sóknari er að rann-
saka nokkur mál sem
varða rekstur Lands-
bankans
Lagt hefur verið fram á Alþingi frumvarp um að stofnuð
verði sérstök rannsóknarnefnd á vegum Alþingis sem
rannsaki verklag og ákvarðanatöku íslenskra fjármála-
fyrirtækja frá gildistöku neyðarlaganna til ársloka 2009
þegar eftirlitsnefnd með starfsemi bankanna tók til
starfa. Fyrsti flutningsmaður frumvarpsins er Guðlaug-
ur Þór Þórðarson alþingismaður.
Nefndinni er ætlað að kanna starfsvenjur og verklags-
reglur fjármálafyrirtækja og framkvæmd þeirra með til-
liti til samkeppnis- og jafnræðissjónarmiða og hvernig
þau hafa framfylgt tilmælum stjórnvalda um aðgerðir til
að bæta rekstrarumhverfi fyrirtækja og áliti Samkeppn-
iseftirlitsins um ákvarðanir banka og stjórnvalda um
framtíð fyrirtækja á samkeppnismörkuðum. Nefndin á
að leggja mat á hvort mistök, mismunun eða óeðlilegir
starfshættir hafi átt sér stað á þessum tíma í rannsókn
sinni. Lagt er til að í nefndinni eigi sæti dómari við
Hæstarétt, skipaður af forsætisnefnd Alþingis, sérfræð-
ingur í banka- og fjármálarétti og sérfræðingur með
menntun á sviði viðskipta. Nefndinni er ætlað að skila
skýrslu 1. janúar 2011. egol@mbl.is
Tillaga um rannsókn á
starfsemi banka eftir hrun
Þriggja manna nefnd skili
skýrslu um næstu áramót
Magnús Guðmundsson, fyrrverandi
forstjóri Kaupþings í Lúxemborg,
segist hafa sýnt yfirvöldum fullan
samstarfsvilja við að gefa upplýs-
ingar í rannsókn þeirra mála sem
beinast að stjórnendum Kaupþings.
Telur hann að sak-
leysi sitt verði á
endanum staðfest.
„Ég tel mikil-
vægt að það komi
fram að við hand-
töku mína var ég
staddur hér á landi
sjálfviljugur í þeim
eina tilgangi að
mæta í yfirheyrslur
hjá sérstökum sak-
sóknara,“ segir í yf-
irlýsingu frá Magn-
úsi. „Ég tel því að þvingunaraðgerðir
þær sem sérstakur saksóknari beitir
gegn mér hafi verið fullkomlega
óþarfar enda hef ég frá upphafi verið
fús til samvinnu vegna þessa máls og
mætt í allar boðaðar yfirheyrslur
vegna þess. Liðnir eru 540 dagar frá
því að Kaupþing banki á Íslandi féll
og vandséð er hvernig rannsókn-
arhagsmunum er ógnað með frelsi
mínu nú.
Tek á ábyrgð á störfum mínum
Þau mál sem til rannsóknar eru hjá
sérstökum saksóknara beinast nær
eingöngu að Kaupþingi banka á Ís-
landi. Undanfarin 12 ár hef ég starfað
sem forstjóri Kaupþings Lúxemborg
og síðar Banque Havilland. Gegndi
ég því starfi með samþykki fjármála-
eftirlits Lúxemborgar, sem end-
urnýjað var við endurskipulagningu
bankans árið 2009 með fulltingi belg-
ískra og lúxemborgískra yfirvalda.
Ljóst er að margt fór úrskeiðis í
skipulagi fjármálafyrirtækja, bæði á
Íslandi og annars staðar á und-
anförnum árum. Ég tek fulla ábyrgð
á mínum störfum og mun í engu víkj-
ast undan henni.
Sú reynsla að sitja í gæslu-
varðhaldi er nokkuð sem ég óska eng-
um að þurfa að upplifa. Vistin ein og
sér er þó ekki það versta. Ákvörðun
um að hneppa einstakling í gæslu-
varðhald er mikið áfall fyrir þann sem
fyrir því verður, æru hans, fjölskyldu
og stöðu í samfélaginu.“
Magnús losnaði úr gæsluvarðhaldi
í gær. Ingólfur Helgason var úr-
skurðaður í gæsluvarðhald í viku.
Þvingunar-
aðgerðir
óþarfar
Segist vera saklaus
Magnús var í
gær úrskurð-
aður í 2
vikna far-
bann
Gluggana á Háskólatorgi verður að þvo reglu-
lega; ekki dugar að helsta stofnun þjóðarinnar á
sviði vísinda og fræða búi við skerta sýn til um-
heimsins enda væri þá framtíðinni stofnað í
hættu. Hér hefur ötull þvottamaður reist stiga
sem speglast í gluggunum þannig að helst minn-
ir á undna DNA-stigann víðfræga sem fyrir
rösklega hálfri öld lagði grunninn að erfðavís-
indum nútímans.
Birtu veitt á Háskólatorg
Morgunblaðið/Kristinn
„Ýmsar sögusagnir hafa gengið um
ósamræmd og ógagnsæ vinnubrögð
og hafa margir leitt að því líkur að
fjármálafyrirtæki hafi mismunað
viðskiptavinum sínum og hvorki
hugað að samkeppnissjónarmiðum
né jafnræðissjónarmiðum. Þessu
hafa fjármálafyrirtækin vísað á bug
og haldið því fram að allar ákvarð-
anir hafi verið teknar á grundvelli al-
menns mats og í þeim eina tilgangi
að hámarka verðmæti og tryggja hagsmuni bank-
anna. Flutningsmenn telja mikilvægt að nefndin taki
í skýrslu sinni afstöðu til þess á hvaða hátt skuli
birta upplýsingar um afskriftir skulda til handa fyr-
irtækjum og eigendum þeirra,“ segir í greinargerð
með frumvarpinnu sem Guðlaugur Þór lagði fram.
Ógagnsæ vinnubrögð
FRUMVARPIÐ
Guðlaugur Þór
Þórðarson
Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • www.heimsferdir.is
Birt með fyrirvara um prentvillu. Heimsferðir áskilja sér rétt til leiðréttinga á slíku.
Ath. að verð getur breyst án fyrirvara.
Sértilboð á El Griego Mar
Heimsferðir bjóða frábært tilboð í 14 nátta ferð
til Costa del Sol í sumar. Í boði er frábært sér-
tilboð á El Griego með allt innifalið. Ath. mjög
takmarkaður fjöldi herbergja í boði á þessum
kjörum. Fyrstur kemur, fyrstur fær!
Gríptu þetta frábæra tækifæri og njóttu lífsins í
vor á Costa del Sol á ótrúlegum kjörum.
8. júní – í 2. vikur
Verð frá 144.900
Costa del Sol
Verð kr. 144.900
Allt innifalið. Ótrúlegt
verð.
Netverð á mann, m.v. flug
og gistingu fyrir tvo ful-
lorðna með eitt barn á El
Griego Mar, allt innifalið í
14 nætur.
Allt innifalið