Morgunblaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
Eldgosið í Eyjafjallajökli
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Við höfum alltaf orðið að taka áhættu í líf-
inu og tökum hana áfram. Ef við fáum tæki-
færi til að heyja í sumar verðum við að nýta
það,“ segir Eggert Pálsson, bóndi á Kirkju-
læk í Fljótshlíð. Hann er langt kominn með
að bera á túnin en fékk í gærmorgun öskuna
yfir. Hann segir að þótt ekki sé gott að fá
ösku núna verði það enn verra að fá hana í
heyskapinn í sumar því askan geti ónýtt
heyin.
Aska úr Eyjafjallajökli fór yfir stórt
svæði í gær sem að mestu hefur sloppið við
öskufall til þessa. Þetta er mikilvægt land-
búnaðarsvæði og þéttbýlt. Askan féll í Fljóts-
hlíð, á Hvolsvelli og Landeyjum – og enn og
aftur undir Eyjafjöllum. Minna öskufall varð
á Hellu og í ýmsum sveitum Rangarþings
ytra og síðan þynntist askan smám saman
eftir því sem fjær dró.
Vaknaði í myrkri
Eggert á Kirkjulæk stendur í sauðburði
og ekki bar á öskufalli þegar hann fór úr
fjárhúsunum um klukkan eitt í fyrrinótt. Enn
var dimmt þegar hann vaknaði klukkan sjö
og fannst honum það undarlegt. Ástæðan var
sú að aska hafði byrgt þakgluggana á svefn-
herberginu. Askan var rök og síðan kom
skúr þannig að askan festist á þökunum.
Eggert og fjölskylda hans var að skipta
um hey hjá lambfé sem var úti. Hann sagði
að fylgjast yrði vel með fénu og halda þeim
kindum áfram inni sem eftir er að sleppa.
Kindurnar voru gráar af ösku eftir nóttina
og lækurinn sem venjulega er tær var enn
mórauður. Guðmundur sonur Eggerts var
byrjaður að sópa af þakglugga hesthúsanna.
Síðan beið þeirra mikil vinna við að hreinsa
öskulag af bílum, dráttarvélum og öðrum
tækjum. Þökin ætlaði Eggert að láta eiga sig
í bili en taldi nauðsynlegt að taka þakrenn-
Undir öskumekki Kirkjurnar sleppa ekki undan öskufallinu frekar en önnur mannanna verk. Aska féll víða í Landeyjum í gær, þó bændur þar hafi sloppið mun betur en starfsfélagar þeirra undir Eyja
Verðum að heyja í sumar
Aska féll á nýtt svæði í gær Þykkt öskulag á Hvolsvelli og Landeyjarnar fengu sinn skammt
Íbúarnir þrífa umhverfið Bændur hafa áhyggjur af lambfé og þúsundum hrossa á útigangi
Nýtt hey Elvar Sverrisson í Seli sækir nýtt hey fyrir lambféð.
Búnaðarsamband Suðurlands hefur þegið
boð Landgræðslu ríkisins um afnot af
3.000 ha beitilandi fyrir sauðfé í afgirtu
landgræðsluhólfi á Leiðvelli í Meðallandi.
Búist er við að byrjað verði fljótlega að
flytja þangað fé undan Eyjafjöllunum.
Verið er að skoða fleiri möguleika.
Sveinn Runólfsson landgræðslustjóri
telur að upprekstrarlönd bæja í Austur-
Eyjafjöllum verði ekki nýtt í sumar. Þá sé
mikil aska á Ystheiði og Sólheimaheiði en
ástandið sé betra í upprekstrarlöndum
Mýrdælinga. Þá hafi enn ekki fallið aska á
Álftavers- og Skaftártunguafrétti.
Hópur ráðunauta, sem skoðað hafa að-
stæður á öskufallssvæðinu, telur aðkall-
andi að útvega fjós svo bændur geti haft
þann valkost að flytja kýr af þeim svæð-
um sem verst hafa orðið úti.
Hugmyndir um miðlun á heyi og túnum
eru nú ræddar í sveitarstjórnum í sam-
vinnu við samtök bænda. Bænda-
samtökin og Búnaðarsamband Suður-
lands vilja að komið verði á skipulagðri
afleysingaþjónustu fyrir bændur og hug-
að að flutningi búpenings og fóðurs á
milli svæða.
Beit boðin í Meðallandi
AÐKALLANDI AÐGERÐIR