Morgunblaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 46
46 MenningFRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
Söngfuglar, kór aldraðra í
Reykjavík, leggja land undir
fót og halda tónleika Grund-
arfjarðarkirkju í dag kl. 16.
Á efnisskránni eru þekkt
kórlög eins og Fanna skautar
faldi háum, Sól rís, sól sest, Þú
fagra blómið blóma, Kvæðið
um fuglana og svo má telja.
Einsöngvari verður Sveinn
Pálsson.
Kór félagsstarfs aldraðra í
Reykjavík hefur verið starfræktur alllengi, en
hann tók upp nafnið Söngfuglar fyrir rétt rúmum
áratug. Stjórnandi kórsins er eins og undanfarið
Margrét Sigurðardóttir söngkona. Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis.
Tónlist
Söngfuglar í
Grundarfirði
Margrét
Sigurðardóttir
Í dag kl. 17 verður opnuð á
Kjarvalsstöðum sýningin Ann-
að auga – Ljósmyndaverk úr
safneign Péturs Arasonar og
Rögnu Róbertsdóttur. Sýning-
arstjóri er Birta Guðjónsdóttir,
sem valdi sextíu verk úr safn-
eign Péturs og Rögnu. Við val-
ið kaus hún að leggja áherslu á
að gera skil íslenskum mynd-
listarmönnum sem nota ljós-
myndir í verkum sínum og
skoða verk þeirra í samhengi við ljósmyndaverk í
samtímalistum. Sýningin er á dagskrá Listahátíð-
ar í Reykjavík. Sunnudaginn 23. maí kl. 15 munu
Birta Guðjónsdóttir og Einar Falur Ingólfsson
ræða við Pétur Arason og gesti um sýninguna.
Myndlist
Annað auga á
Kjarvalsstöðum
Pétur
Arason
Í dag kl. 18 opna listamenn-
irnir Maria Dembek og Robin
McAulay sýninguna 111 í Kling
& Bang galleríi. Maria Dem-
bek er pólskur ljósmyndari og
Robin McAulay er breskur
ljósmyndari. Sýninguna vinna
þau í sameiningu með lífs- og
starfsumhverfi fjölmargra
samtímalistamanna með aðset-
ur að Torstrasse 111 í Austur-
Berlín fyrrverandi sem við-
fangsefnið.
Sýningin er hluti af Listahátíð í Reykjavík 2010
og stendur til 13. júní. Kling & Bang gallerí,
Hverfisgötu 42, er opið fimmtudaga til sunnudaga
frá kl. 14-18.
Myndlist
Torstrasse 111 í
Kling & Bang
Brot úr verki Dem-
bek og McAulay.
Þar fyrir utan þarf
hann að sanna sig
fyrir lafði Maríon og heyja
ofan í kýrnar 52
»
Í dag kl. 14 opnar Halla Har
myndlistarsýningu í Listasal
Garðabæjar á Garðatorgi 7. Á
sýningunni, sem stendur til 1.
júní, eru tólf olíumálverk og gler-
verk.
Halla á að baki langan feril sem
gler- og myndlistakona. Verk
hennar hennar má sjá á mörgum
opinberum stöðum, t.d. mósaík-
verkið Sundmaðurinn í sund-
miðstöð Reykjanesbæjar, glerverk
í Deutsches Glasmalerei-Museum
Linnich, Þýskalandi, skúlptúr í
Menningarsetri Dalvíkurbyggðar
og svo má áfram telja.
Olíuverkin sem sýnd verða eru
öll ný og hefur það verið markmið
Höllu að breyta um stíl og feta
nýjar slóðir á þessari sýningu.
Verkin hafa verið máluð með
nýrri nálgun þar sem hreinleiki
lita og forma fær að njóta sín.
Hreinleiki Listakonan Halla Har
sýnir í Listasal Garðabæjar.
Halla Har
sýnir í
Garðabæ
Olíumálverk og gler-
verk í Listasalnum
Árni Matthíasson
arnim@mbl.is
Kammerkórinn Carmina heldur tón-
leika í dag og á morgun í Krists-
kirkju, Landakoti. Tónleikarnir, sem
hefjast kl. 16 báða dagana, eru liður í
Listahátíð í Reykjavík og á efnis-
skránni nokkrar helstu perlur end-
urreisnartónlistarinnar, Maríu-
söngvar eftir Josquin des Prez,
Morales, Victoria og Dunstable, auk
söngva úr íslensku handriti frá því
um 1500. Þá verða flutt tvö verk við
harmljóð Jeremía.
Kammerkórinn Carmina sér-
hæfir sig í flutningi á tónlist endur-
reisnartímans. Stofnandi Carminu og
stjórnandi á tónleikunum er Árni
Heimir Ingólfsson, en meðlimir hóps-
ins koma víða að, eru ýmist búsettir á
Íslandi eða ytra.
Árni Heimir segir að víst sé stef
tónleikanna tónlist sem samin hafi
verið Maríu til heiðurs frá endur-
reisninni, en ekki eingöngu þó: „Mar-
íutónlist er ávallt auðmjúk og blíð,
þannig að við brjótum dagskrána að-
eins upp og tökum tvö verk sem
byggjast á harmljóðum Jeremía, en í
þeim er tilfinningaboginn spenntur til
fulls.“
Að þessu sögðu segir Ári Heimir
þá að ekki megi skilja orð hans svo að
Maríuverkin séu keimlík. „Það er
vissulega hætta á því að verkin hljómi
mjög svipað ef flytjandinn gætir ekki
að sér en við höfum lagt hart að okk-
ur að ná fram sérstöðu hvers verks og
meðal annars legið yfir textunum til
að fanga merkinguna sem best og ná
að krydda flutninginn.“
Engin erlend
fyrirmynd fundin
Á undanförnum árum hefur
Carmina einbeitt sér að því að flytja
og hljóðrita tónlist úr íslenskum
nótnahandritum sem lengi höfðu leg-
ið í gleymsku. Tvö verkanna sem flutt
verða eru úr íslenskum tónlistar-
handritum, annars vegar AM 687b
4to sem ritað var um 1500, hins vegar
úr Melódíu, íslensku tónlistarhandriti
frá 17. öld, en höfundar söngvanna
eru ekki þekktir.
Aðspurður hvort hægt sé að slá
því föstu hvort höfundarnir séu ís-
lenskir svarar Árni Heimir því svo: „Í
handritunum er tónlist af evrópskum
meiði og megnið af henni komið frá
meginlandi Evrópu. Þessi tvö verk
eru aftur á móti í hópi þeirra þar sem
engin erlend fyrirmynd hefur fundist.
Það þarf ekki þýða að þau séu ekki
erlend, en gefur þeim þó sérstöðu þar
til annað kemur í ljós.“
Carmina syngur í Kristskirkju
Carmina Sérhæfir sig í flutningi á tónlist endurreisnartímans.
Tilfinningabog-
inn spenntur
Carmina
» Geisladiskurinn Melódía
með Carmina hlaut Íslensku
tónlistarverðlaunin.
» Auk tónleikanna nú kemur
kórinn fram á tónlistarhátíð-
inni Við Djúpið á Ísafirði í júní,
og á Wege Durch das Land í
Þýskalandi í júlí.
» Væntanlegur er nýr
hljómdiskur með lögum úr
handritinu Hymnodia sacra,
sem ritað var árið 1742.
Þýska listakonan Friederike von
Rauch opnar sýningu í Hafnar-
borg á morgun kl. 15. Hún sýnir
þar myndir frá ýmsum stöðum
sem eiga allar sameiginlegan
grunntón að hún lýsir því.
Sumar myndanna tók von
Rauch á Íslandi þegar hún dvaldi
á listamannasetrinu Bæ í Skaga-
firði, aðrar í Berlín og enn aðrar í
Belgíu. Tvær myndanna eru mjög
stórar og vill svo til að það eru
einmitt myndir sem teknar voru
fyrir norðan.
Friederike von Rauch var hér
um sumar, í júlí og fram í ágúst,
og segist hafa hrifist svo af birt-
unni á þeim tíma að hún hafi átt
erfitt með svefn, verið uppfull af
orku og tekið myndir langt fram á
nótt. „Ég fékk ágæta blöndu af
skýjuðum dögum og björtum.
Næturbirtan heillaði mig mest,
hún var svo mjúk og gríðarlega
falleg.“
Von Rauch kallar sýninguna
Staði eða Sites enda eru allar
myndirnar af stöðum og arkitekt-
úr, án þess þó að vera beinlínis
myndir af tilteknum stað eða
mannvirki; „ég er ekki að skrá-
setja staði, þetta eru myndir af
andrúmlofti“, segir hún. Hún hef-
ur unnið að þessu verkefni síðasta
áratug og er enn að vinna í því.
Sýningin í Hafnarborg er því svip-
mynd af verki í mótun og sett
saman sérstaklega fyrir einmitt
það rými.
Sýning Friederike von Rauch er
á dagskrá Listahátíðar.
Friederike von Rauch sýnir í Hafnarborg
Staðir sem eru ekki staðir
Morgunblaðið/Ernir
Staðir Þýska listakonan Friederike von Rauch opnar sýningu í Hafnarborg
Thomsen & Thomsen heitir sýning
sem opnuð verður í dag kl. 14 í Ljós-
myndasafni Reykjavíkur. Á henni
eru portrett- og umhverfismyndir
frá Reykjavíkursvæðinu eftir Pétur
Thomsen eldri (1910–1988) og son-
arson hans, Pétur Thomsen yngri
(1973). Pétur yngri valdi umhverfis-
og portrettmyndir úr safni afa síns
og kallast á við þær í verkum sínum.
Pétur eldri starfaði sem ljósmyndari
frá lokum seinni heimsstyrjald-
arinnar og fram á 8. áratuginn.
Myndir hans gefa innsýn í veröld
reykvískra fjölskyldna á 6. og 7. ára-
tug síðustu aldar en myndir Péturs
yngri sýna veröld fjölskyldunnar á
árunum 2008- 2010, tíma breytinga
þar sem viðhorfið í garð hins mann-
gerða í landslagi hefur einkennst af
nokkurri spennu og ris og hnig sam-
félagsins sett sinn svip á mannfólkið.
Thomsen & Thomsen
Ljósmynd/Pétur Thomsen yngri