Morgunblaðið - 15.05.2010, Qupperneq 4
4 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
Allt flug var bannað yfir Íslandi og
Skotlandi í gær vegna öskunnar en
áætlað að hægt yrði að aflétta bann-
inu í dag. Askan berst sem fyrr um
háloftin til annarra landa og sam-
kvæmt spá er líklegt að hún nái
austurströnd Grænlands í dag.
Guðjón Arngrímsson, upplýsinga-
fulltrúi Icelandair, sagði að alls hefði
orðið að aflýsa 32 ferðum hjá félag-
inu, frá Íslandi og til landsins, en
einnig aflýsti Iceland Express
nokkrum ferðum. 10 farþega-
þotur félaganna munu hafa
strandað á Keflavíkurflugvelli.
„Vellinum var lokað rétt eftir mið-
nætti og þá var ljóst að ekkert yrði
af ferðum sem ráðgerðar voru um
morguninn. Þetta hefur sennilega
haft áhrif á ferðir um allt að 5000
farþega sem verða fyrir þessari
röskun, ef allt er talið,“ sagði Guðjón
þegar rætt var við hann í gær.
„Núna erum við að vinna við að
koma þessum farþegum á leiðarenda
með öðrum flugfélögum. Við reynum
að finna einhverjar leiðir fram
hjá Íslandi.“ kjon@mbl.is
Aflýsa varð yfir 30
flugferðum Icelandair
Búist við að flug verði með eðlilegum hætti í dag
FRÉTTASKÝRING
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Miklar verðhækkanir á áfengi stuðla
að smygli og heimabruggi, að sögn
Daða Más Kristóferssonar, dósents
við hagfræðideild Háskóla Íslands.
Samkvæmt smásöluvísitölu Rann-
sóknaseturs verslunarinnar dróst
sala áfengis á föstu verðlagi saman
um 31,0% í apríl miðað við sama
mánuð í fyrra og um 18,5% á breyti-
legu verðlagi. Verð á áfengi var
18,1% hærra í apríl síðastliðnum en í
apríl 2009.
Það sem af er árinu dróst sala á
áfengi í lítrum talið saman um rúm-
lega 7,8% miðað við sama tímabil í
fyrra og salan var 28,7% minni í apríl
en í apríl 2009. Salan hefur ekki verið
minni í neinum aprílmánuði síðan
2002. Gert var ráð fyrir að áfeng-
isgjaldið skilaði 2.953 milljónum
króna fyrstu fjóra mánuði ársins en
raunin varð 2.889 milljónir í ríkis-
sjóð.
Ákveðin þolmörk
Hagfræðingar ganga almennt
út frá því að áfengi sé nauðsynja-
vara. Daði Már segir að þess vegna
sé hægt að hækka verð á áfengi um-
talsvert án þess að það hafi áhrif á
sölu. Hins vegar viti enginn hvar
mörkin séu – hvað megi ganga langt
í hækkunum. Samt sé ljóst að eftir
því sem hækkunin sé meiri þeim
mun meiri „svört“ sala eigi sér stað
sem smygl og heimabrugg. „Lítil
neysla samkvæmt opinberum tölum
um áfengisneyslu á Íslandi og Nor-
egi endurspeglar að einhverju leyti
töluvert mikla dulda neyslu,“ segir
hann. Daði Már bætir við að sé verð-
munurinn á smygluðu áfengi og
áfengi í búðum meiri en tjónið, sem
smyglarinn getur reiknað með að
verða fyrir verði hann tekinn, þá
stundar hann þessa iðju. Þetta sé vel
þekkt kenning í hagfræðinni. „Verð-
hækkanir stuðla þannig að smygli og
heimabruggi og ýta þessum viðskipt-
um að einhverju leyti neðanjarðar,“
segir hann og bendir á að háir skatt-
ar hvetji til ólöglegrar iðju eins og
„svartrar“ vinnu. „Því meiri sem
álögurnar eru því minni eru auka-
tekjur ríkisins af því að hækka skatt-
ana.“
Að sögn Daða Más má halda því
fram að áhrif skattahækkana á
áfengi 2009 séu ekki að fullu komnar
fram og búast megi við því að ríkið
hagnist minna á áfengissölu næstu
mánuði og ár vegna þessara hækk-
ana. „Ég leyfi mér samt að fullyrða
að drykkjan hafi ekki dregist jafn
mikið saman,“ segir hann.
Stuðlar að
smygli og
svartri vinnu
Sala áfengis dróst saman um 31,0%
Verð á áfengi hækkaði um 18,1%
Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Rauði krossinn bauð í gær nem-
endum í grunnskólanum í Vík í
dagsferð til Reykjavíkur. Magnús
Sæmundsson skólastjóri sagði ferð-
ina hafa tekist afburða vel. „Þetta
var framúrskarandi flott ferð hjá
krökkunum og Rauða krossinum og
þeim sem tóku á móti okkur til mik-
ils sóma,“ sagði Magnús. Gosið í
Eyjafjallajökli hefur nú staðið í
réttan mánuð. Magnús var spurður
um áhrifin á börnin og skólahaldið
og svaraði hann að undanfarnar
vikur hefðu verið mjög erfiðar.
„Það segir sig sjálft að fyrir krakka
er vont að geta ekki dögum saman
farið út að leika sér. Óvissan skapar
líka streitu. Þess vegna var svo frá-
bært að fá svona tilbreytingu eins
og í dag.“
Hann sagði fyrirsjáanlegt að ef
ekki yrði lát á öskufallinu yrði að
grípa til einhverra ráðstafana.
Einkum væri nú hugað að því að tí-
undubekkingar gætu klárað sín
próf. Magnús stýrir hins vegar bæði
grunnskólanum og leikskólanum
og sagði börnin í þeim síðarnefnda
ekki síður þurfa að geta komist út.
Morgunblaðið/Ómar
Enga leti! Börnin frá Vík fóru á ylströndina í Nauthólsvík, síðan í Fjölskyldu- og húsdýragarðinn og loks Latabæ en
þar var myndin tekin. Nær 80 nemendur voru í hópnum, allt frá fyrsta bekk upp í tíunda auk nokkurra kennara.
Grunnskólabörn í Vík í dagsferð til Reykjavíkur í boði Rauða krossins
Ferðin var tilbreyting frá
öskunni úr Eyjafjallajökli
-28,7%
sala á áfengi í lítrum talið var
nær þriðjungi minni í apríl sl.
en í apríl 2009
64
milljónir króna vantar í ríkissjóð
miðað við áætlanir um tekjur af
áfengisgjaldi fyrsta þriðjung ársins
‹ ÁFENGI ER BÖL ›
»
Morgunblaðið/Golli
Talsvert öskufall var í Vestmannaeyjum í gær og var svo dimmt yfir að
kviknaði á götuljósum en þau eru stillt eftir birtustigi. Rykið var afar
fíngert en einnig rigndi nokkuð. Örlítils öskufalls varð vart á höfuðborg-
arsvæðinu en svifryksmengun mældist undir hættumörkum.
Öskufall í Eyjum
Ljósmynd/Júlíus G. Ingason
Þorsteinn Jónsson, veðurfræð-
ingur á Veðurstofu Íslands,
sagði í gærkvöld að vindurinn á
gossvæðinu væri að snúast í
nokkuð ákveðna norðanátt.
„Á þriðjudaginn gæti hann
snúist í suðaustanátt og
þá gæti askan aftur farið
að nálgast Suðvesturland
og Faxaflóa.“
Spáð norðanátt
ÖSKUHREMMINGAR
Fundist hafa tvö ný gen sem tengj-
ast Alzheimers-sjúkdómi og náðist
þessi árangur með samstarfi vís-
indamanna Rannsóknarstöðvar
Hjartaverndar og evrópskra og
bandarískra vísindamanna. Sagt var
frá rannsókninni í nýjasta hefti Jo-
urnal of the American Medical Asso-
ciation.
Rannsóknin náði til alls 34.000
einstaklinga og voru rúmlega 8.000
þessara einstaklinga með sjúkdóm-
inn. Tvö ný genasvæði fundust sem
bæði tengjast ferlum er hafa með
heilann að gera. Auk þessara nýju
gena staðfesti rannsóknin fyrri upp-
götvanir á öðrum genum sem nýlega
hefur verið lýst. Vonir eru bundnar
við að þáttur gena hjálpi til við að
skýra orsakir þessa alvarlega sjúk-
dóms.
Alzheimers-sjúkdómurinn er al-
gengasta form heilabilunar og leggst
aðallega á eldra fólk. Allt að fimmti
hver einstaklingur sem verður eldri
en 65 ára er talinn munu þróa með
sér Alzheimer.
Rannsóknir á heilabilun í öldr-
unarrannsókn Hjartaverndar eru
leiddar af prófessor Vilmundi
Guðnasyni, forstöðulækni Rann-
sóknarstöðvar Hjartaverndar og
prófessor Pálma V. Jónssyni öldr-
unarlækni.
Fundu ný gen sem
tengjast Alzheimer
Vilmundur
Guðnason
Pálmi V.
Jónsson