Morgunblaðið - 15.05.2010, Page 8
8 FréttirINNLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
Eitt hið kúnstugasta í opinberriumræðu er þegar forystumenn
ríkisstjórnarinnar og skilanefnda
vísa til „kröfuhafa“
til að skýra furðu-
legar ákvarðanir
sínar. Jafnan er því
bætt við að ekki sé
hægt að fá sann-
leiksgildi þessa
staðfest, því ekki
megi gefa upp
hverjir kröfuhaf-
arnir séu, og að auki
sé það alls ekki vitað
í mörgum tilvikum.
Landsbankinn hef-ur í tvígang eftir hrun veitt 365
miðlum fyrirgreiðslu, sem ekki þol-
ir dagsins ljós. „Bankaleynd“ er
notuð til að fela þá svívirðu.
Sami banki skipaði mesta tjónvaldíslenskrar efnahagssögu fyrr
og síðar í stjórn fyrirtækja í Bret-
landi, einnig eftir hrun. „Kröfuhaf-
ar vildu það“ var furðuskýringin
sem þeir gáfu.
Páll Vilhjálmsson skrifar: „JónÁsgeir Jóhannesson er knúinn
til að segja af sér stjórnarsetu í er-
lendum verslunarkeðjum. Á sama
tíma veitir Arion banki Jóni Ásgeiri
og fjölskyldu heimild til að stýra
verslunarveldinu Högum sem fer
með fákeppnisvald á íslenskum
matvörumarkaði. Landsbankinn
leyfir Jóni Ásgeiri að fara með for-
ræði 365 miðla.
Jón Ásgeir launar ofeldið með því
að breyta fákeppishagnaði Haga í
auglýsingafé fyrir 365 miðla. Jafn-
framt eru fyrirtækin bæði notuð til
að fjármagna einkaneyslu Jóns Ás-
geirs. Íslenskur almenningur er lát-
inn borga brúsann.
Vitorðsmenn Jóns Ágeirs í Arion
banka og Landsbankanum starfa í
skjóli ríkisstjórnarinnar sem leggur
línurnar fyrir endurreistu bankana.
Vitorðsmennirnir þjónusta Jón Ás-
geir á meðan þeir skynja að það sé
gert með velþóknun ríkisstjórnar
Jóhönnu.“
Páll
Vilhjálmsson
„Kröfuhafar vildu það“
Jón Ásgeir
Jóhannesson
Veður víða um heim 14.5., kl. 18.00
Reykjavík 11 skúrir
Bolungarvík 5 rigning
Akureyri 8 rigning
Egilsstaðir 6 rigning
Kirkjubæjarkl. 9 skýjað
Nuuk 6 heiðskírt
Þórshöfn 9 þoka
Ósló 13 skýjað
Kaupmannahöfn 12 skýjað
Stokkhólmur 15 skýjað
Helsinki 24 heiðskírt
Lúxemborg 8 skýjað
Brussel 10 léttskýjað
Dublin 14 léttskýjað
Glasgow 13 léttskýjað
London 14 heiðskírt
París 10 skýjað
Amsterdam 13 heiðskírt
Hamborg 12 skýjað
Berlín 10 skýjað
Vín 13 skýjað
Moskva 19 skýjað
Algarve 18 skýjað
Madríd 13 léttskýjað
Barcelona 13 skýjað
Mallorca 14 skúrir
Róm 17 skúrir
Aþena 28 léttskýjað
Winnipeg 15 léttskýjað
Montreal 11 alskýjað
New York 20 heiðskírt
Chicago 16 léttskýjað
Orlando 28 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
STAKSTEINAR
VEÐUR
15. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 4:13 22:37
ÍSAFJÖRÐUR 3:53 23:07
SIGLUFJÖRÐUR 3:35 22:50
DJÚPIVOGUR 3:36 22:12
FRÉTTASKÝRING
Andri Karl
andri@mbl.is
Innan veggja Héraðsdóms Reykja-
víkur er legið undir feldi vegna
mikillar aðsóknar og óláta í og við
dómsal 101 í tengslum við mál
ákæruvaldsins á hendur níu ein-
staklingum sem m.a. eru ákærðir
fyrir árás á Alþingi. Ekki síst er
mikilvægt að finna viðeigandi lausn
þar sem augljóst er að sett verður
fordæmi fyrir það sem koma skal
en búast má við að fjölmargir vilji
vera viðstaddir þegar og ef dóms-
mál vegna bankahrunsins verða
tekin fyrir.
Fyrir það fyrsta verður að
taka fram að í lögum um meðferð
sakamála er skýrt tekið fram að
„[þ]ótt þinghald sé háð í heyranda
hljóði er dómara rétt að takmarka
fjölda áheyrenda við þá sem rúm-
ast á þingstað með góðu móti“. Og
hann getur lokað þinghaldinu til að
tryggja þingfrið og til hlífðar vitn-
um.
Í ljósi mikils áhuga á máli ní-
menningana og þess að talið er víst
að fjölmenni vilji fylgjast með rétt-
arhöldum yfir bankamönnum, ef af
þeim verður, segir Ragna Árna-
dóttir dómsmálaráðherra að henn-
ar skoðun sé sú að leita eigi sátta-
leiðar ef hún fyrirfinnist. „Auðvitað
verður fólk að fá að vinna sín störf
í friði en ef það er svona mikill
áhugi finnst mér að það hljóti að
vera hægt að finna einhverja
lausn.“
Útsending skoðuð
Ein þeirra hugmynda sem eru
í skoðun er að sýna frá réttarhöld-
um á vefsvæði dómstólsins. Þetta
staðfestir Helgi I. Jónsson, dóm-
stjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, en
tekur fram að í raun sé allt til
skoðunar. Helst vildi Helgi sjá
stærra húsnæði fyrir dómstólinn
og þar með stærri dómsali. Hann
finnur fyrir þrýstingi en bendir á
að dómstólnum sé einfaldlega snið-
inn þessi stakkur, að ekki komist
fleiri fyrir í stærsta dómsalnum en
á milli tuttugu og þrjátíu.
Helgi tekur þá sem dæmi
Hæstarétt Bandaríkjanna. Þar eru
eitt hundrað sæti og fólk bíður í
röð til að ná sæti. Og þarf á stund-
um að bíða mjög lengi.
Í Hæstarétti Íslands komast
um sjötíu manns fyrir í stóra saln-
um. Þorsteinn A. Jónsson skrif-
stofustjóri segir ekkert hafa verið
rætt um aðrar lausnir vegna vænt-
anlegrar fjölgunar áhorfenda. „Við
höfum hér dómsali sem taka ákveð-
inn fjölda manna og það hefur ekki
verið rætt um annað en að hleypt
verði í þá á meðan sæti séu laus.
Síðan verði lokað.“
Menn standa í röð eftir sæti
Ekkert er sérstaklega í lögum
um að sjónvarpa eða útvarpa frá
réttarhöldum. Og þó svo að komið
sé inn á hljóðritun og myndatöku í
lögum um meðferð sakamála efast
Helgi um að ákvæðið dugi til og
hugsanlega þyrfti því lagabreyt-
ingu ef af ætti að verða. Þar að
auki er spurningum ósvarað, s.s.
um íþyngjandi áhrif beinnar út-
sendingar á vitni og sakborninga.
Hvað varðar Hæstarétt segir
Þorsteinn að hann fari að lögum og
ef lög stæðu til þess að sýna ætti
beint frá réttarhöldum þá yrði svo
að vera.
Þrýstingur á að bregðast við
fjölgun áhorfenda í dómsal
Dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur myndi helst vilja sjá stærra húsnæði
Aðeins 100 manns geta verið viðstaddir í sal hæstaréttar Bandaríkjanna
Morgunblaðið/Ómar
Fjöldi Ákveðið verður eftir helgi hvað gert verður þegar kemur að máli
ákæruvaldsins á hendur nímenningunum, þ.e. hvort þinghaldi verði lokað.
Þó svo að ekki séð fjallað um beinar útsendingar frá réttarhöldum í
íslenskum lögum kemst 11. grein laga um meðferð sakamála líklega
næst því. Ragna Árnadóttir dómsmálaráðherra segir að það sé dóm-
arans að túlka lögin og hún muni bíða og sjá hver framvinda málsins
verður.
„11. gr.
Óheimilt er að hljóðrita eða taka myndir í þinghaldi. Dómari getur
veitt undanþágu frá þessu banni ef sérstaklega stendur á. Ef tekið
hefur verið upp hljóð eða teknar myndir í þinghaldi án leyfis dómara
er óheimilt að birta þær hljóðupptökur eða myndir.“
Helgi I. Jónsson, dómstjóri Héraðsdóms Reykjavíkur, er efins um
að ákvæðið dugi til og Þorsteinn A. Jónsson, skrifstofustjóri Hæsta-
réttar, telur lagabreytingu þurfa.
Dómari getur veitt undanþágu
11. GREIN LAGA UM MEÐFERÐ SAKAMÁLA