Morgunblaðið - 15.05.2010, Blaðsíða 10
kölluðu reglulega upp; „hendi“,
„rautt, „út af“ og ég sá ekkert at-
hugavert. Svo tuddaðist einhver leik-
maður og annar datt í grasið og fór
að væla. Hvað er það? Ef leikmaður
er ekki slasaður á hann bara að
standa upp aftur og sýna stolt, ekk-
ert velta sér í grasinu og væla og svo
er bara allt í lagi með hann. Þegar
skot geigaði kallaði einn við hliðina á
mér: „Það er bara að hitta,“ og ég hló
óvart upphátt, fóbolti snýst einmitt
um að hitta í markið og ætli leik-
mennirnir viti það ekki. Það er svo
auðvelt að sitja í stúkunni, svipað og
að vita allt best þegar Gettu betur er
í sjónvarpinu.
En svo
kom ann-
að mark
hjá KR,
PRUFUTÍMINN
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Þangað til síðasta þriðjudaghafði ég aldrei séð heilanfótboltaleik, hvorki í sjón-varpi né með eigin augum á
vellinum. Mér hefur alltaf þótt hóp-
íþróttir með bolta óspennandi. Ég
hef aldrei haldið með liði í enska bolt-
anum, hvað þá þeim íslenska. Á mín-
um ungdómsárum þrætti ég aldrei
um hverjir voru bestir, enda var bara
Ungmennafélagið Samhygð í minni
heimasveit, frjálsar og glíma í boði,
enginn bolti.
Því var kominn tími á það að ég
skellti mér á fótboltaleik, enda
boltasumarið að hefjast og ekki
verra að vita um hvað málið snýst.
Það var leikur KR og Hauka í
Frostaskjóli sem varð fyrir valinu.
Ég vissi ekkert um þessi lið annað
en að KR leikur í hvítum og svört-
um búningum. Eftir að hafa leitað
mér upplýsinga hjá mér fróðari
mönnum um fótbolta komst ég að
því að Haukar eru nýliðar í úrvals-
deild á meðan KR er spáð sigri í
deildinni. Mér var sagt að Haukar
ættu ekki möguleika í þessum leik og
var ég því mikið að velta fyrir mér að
halda með litla manninum, en ákvað
síðan að halda með hvorugu liðinu
enda skipti mig ekki nokkru máli
hvernig þessi leikur færi.
Missti af fyrsta markinu
Það var í rigningu en samt ljúfu
veðri sem ég mætti á völlinn, ég
ákvað að sitja KR-megin í stúkunni í
fyrri hálfleik og tróð mér í laust sæti
á milli tveggja myndarlegra karl-
manna. Beint fyrir framan mig blasti
við auglýsingaskilti sem á stóð „leik-
ur án fordóma“, ég tók þetta sem
skilaboð til mín og ákvað að horfa á
þennan fyrsta fótboltaleik minn með
opnum huga.
Gallinn við fótbolta er hvað allt
gerist hægt, þegar korter var búið
af leiknum hafði nákvæmlega
ekkert gerst og þá voru 75 mín-
útur eftir. Ég drap tímann með
því að fylgjast með fólkinu í
stúkunni; þegar eitthvað spenn-
andi gerðist (sem ég náði aldrei að
átta mig á hvað var) spenntust allir
upp í sætinu og hölluðu sér fram. Ef
ekki kom mark hallaði fólk sér aftur
Var ég kannski
(ó)lukkudýr leiksins?
Sumir segja fótbolta lífið, aðrir gætu ekki haft minni áhuga á honum. Blaðamað-
ur er einn af þeim en ákvað þó að skella sér á sinn fyrsta fótboltaleik um ævina í
vikunni. KR-Haukar varð fyrir valinu og eftir á að hyggja telur blaðamaður sig
hafa haft áhrif á úrslit leiksins. Jafnvel geta talist lukkudýr beggja liða.
og lét loftið leka úr sér um leið; „aa-
aaaa þarna munaði mjóu,“ dæstu
margir, „usssusssuss,“ sögðu aðrir
og hristu hausinn.
Eftir um tuttugu mínútur færð-
ist allt í einu fjör í leikinn, KR skor-
aði mark. Ég var eitthvað að glápa á
fólkið í stúkunni þegar markið kom
og áttaði mig ekki á hvað hafði gerst
fyrr en allir stóðu upp og fögnuðu.
„Ég verð að fylgjast betur með,“
hugsaði ég með mér og ákvað að
missa ekki af næsta marki. En það
var svolítið erfitt að fylgjast með,
boltinn og karlarnir voru alltaf hin-
um megin á vellinum, við Hauka-
markið, og því missti ég oft
sjónar á því sem var að
gerast.
Áhorfendurnir í
kringum mig
Þrautakóngur
Hauka-maður einbeittur
með boltann og
KR-ingur fylgir á eftir.
Morgunblaðið/hag
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
Fyrir þá sem vilja fylgjast náið með
fótboltanum í sumar er tilvalið að
kíkja reglulega inn á íslensku
fótboltasíðuna fotbolti.net.
Síðan var sett á laggirnar árið
2002 af Hafliða Breiðfjörð. Á vefnum
segir að hann hafi stóraukið vinsæld-
ir sínar allt frá fyrsta degi en í dag
lesa um 50 þúsund gestir efni vefsins
vikulega. Við vefinn starfa tveir
starfsmenn í fullu starfi auk fjölda
starfsmanna í hlutastarfi.
Fótbolti.net er með puttann á púls-
inum, inn á síðuna hrúgast fréttir á
degi hverjum og ekkert sem tengist
fótbolta fer framhjá síðuhöldurum.
Enda er forsíðan svo þétt af fréttum
og auglýsingum að sumum lesendum
gæti þótt nóg um kraðakið.
Fjallað er um fótbolta alls staðar í
heiminum á síðunni, fylgst er náið
með heimsmeistaramótinu 2010 og
fréttir af því stöðugt uppfærðar. Fyrir
utan hefðbundinn fréttaflutning má
líka finna furðulegar fréttir af fót-
bolta, dómarar svara spurningum,
sjúkraþjálfari svarar spurningum um
algeng meiðsli í fótbolta og tvífarar á
fóboltavellinum eru valdir. Svo er út-
varp og sjónvarp, staða og leikir og
margt annað sem viðkemur tuðru-
sparki á síðunni.
Vefsíðan www.fotbolti.net
Reuters
Æi æ Erlendur fótboltamaður veltir sér meiddur á jörðinni.
Kraðak af fótboltafréttum
Vatnsmýrarhátíðin fer fram í dag á
milli kl. 14 og 16 en hún er helguð
vísindum og leik, umhverfi og nátt-
úru, börnum landsins og barna-
menningu. Það er Frú Vigdís Finn-
bogadóttir sem setur hátíðina við
Norræna húsið.
Margt verður í boði fyrir gesti og
gangandi: Tilraunalandið breiðir úr
sér og verður utandyra fram í sept-
ember. Einnig verða þrautir, tæki og
tól á víð og dreif á lóð Norræna
hússins en þau tilheyra farandsýn-
ingu sem fer um landið í sumar til
að sem flestir fái að kynnast Til-
raunalandinu.
Risavaxinn sandkassi og sólúr,
„Skjólgóði sandkassinn“, sem er
gjöf frá Stafangri í Noregi, verður
tekinn formlega í notkun á hátíð-
inni. Þetta er án efa stærsti mann-
gerði sandkassinn á höfuðborgar-
svæðinu sem jafnframt er listrænn
skúlptúr og gegnir í senn hlutverki
sólúrs og vita.
Á hátíðinni koma fram fjölmargir
listamenn: Blikandi stjörnur, lúðrasveitin Svanur og trúðar úr leikritinu Bláa
gullið. Við gróðurhús Norræna hússins verður skemmtileg bragðtilrauna-
smiðja fyrir börn. Henni stýrir Mads Holm, upplýsingafulltrúi Norræna hússins
fyrir nýnorrænan mat.
Það eru Háskóli Íslands og Norræna húsið sem standa að Vatnsmýrarhátíð-
inni sem fer fram utandyra. Kynnir á hátíðinni er Charlotte Bøving og allir eru
velkomnir.
Endilega …
Fjör Það verður líklega gaman í Vatns-
mýrinni í dag hjá börnum og fullorðnum.
Morgunblaðið/Ernir
… farið með börnin á hátíð
10 Daglegt líf
Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is
Opið virka daga 10–18, laugardaga kl. 11–16 og sunnudaga kl. 14–16
Gallerí Fold · þekkt fyrir trausta þjónustu
Úr iðrum jarðar
8.m
aí–
30.m
aí
Daði Guðbjörnsson
Lífseggið
sýnir akvarellur
Einstakar myndir frá eldosunum
eftir fjölmarga ljósmyndara.
Stórkostleg sýn á gosin
Opnun kl. 15
laugardag 15.05
Heitustu sýningarnar
í Reykjavík
Sýningin stendur í allt sumar