Morgunblaðið - 15.05.2010, Síða 11
Morgunblaðið/Ásdís
Hland og aska er hent í graut,
hreint fer verst á drósum,
innst í kirkju oft er naut,
en ölturu sjást í fjósum.
Hér er mælt í huldum stað
hróðrar versið skráða,
þó lýðir dæmi lygi það,
læt eg fólkið ráða.
Úr bókinni Öfugmælavísur:
Eignaðar Bjarna Jónssyni
Borgfirðingaskáldi.
Helgafell, Reykjavík 1946.
Öfugmælavísur
Innst í kirkju
oft er naut
Í stúkunni Blaðamaður, ekki rauðklæddur, fagnar á fremsta bekk með hörðustu stuðningsmönnum Hauka.
jibbí! Ég missti líka af því en í þetta
skiptið var ég fljótari að átta mig og
stóð upp nokkurn veginn samtíða
hinum í stúkunni og fagnaði með
KR-ingum, 2-0. Gaurinn við hliðina á
mér sagði við vin sinn að þetta færi
örugglega 3-0 og fannst mér það ekk-
ert ólíklegt m.v. þær upplýsingar
sem ég fékk um liðin fyrir leik.
Þá var að bíða eftir að fyrri hálf-
leikurinn kláraðist. Hvað er málið
með að hafa fótboltaleik tvisvar 45
mínútur, væri hálftími ekki nóg? Ég
var svolítið spennt að sjá hvað fólk
gerir í hléi á fótboltaleik en varð síð-
an bara fyrir vonbrigðum. Þetta var
eins og hlé í bíó, fólk spjallaði saman,
fór í sjoppuna og á klósettið. Ég sá
engin slagsmál.
Hávaði í hásætinu
Eftir hlé skipti ég um stað í
stúkunni og stillti mér upp Hauka-
megin. Ég ákvað að taka síðari hlut-
ann með trompi, fá fótboltaleikinn
beint í æð, og tróð mér á fremsta
bekk í miðjan stuðningsmannahóp
Hauka. Þar tóku ungir drengir mér
vel og lofuðu að fræða mig um það
sem gerðist í leiknum.
Rétt áður en flautað var til síð-
ari hálfleiks spurði ég sessunaut
minn hvort hann byggist við að hans
menn skoruðu og hann svaraði: „Nei
eiginlega ekki.“ Hann bjóst heldur
ekki við að KR-menn bættu við
marki og fór ég þá að kvíða daufum
og langdregnum leik. En það var
engu að kvíða, síðari hálfleikurinn
var ansi fjörugur.
Að sitja í miðjum stuðnings-
mannahópi er ekki fyrir þá sem er
annt um heyrnina, strákarnir í kring-
um mig voru með kúabjöllur sem
þeir slógu í með trommukjuðum, öfl-
ugar járnhristur og tréspaða sem
þeir slógu saman. Svo voru radd-
böndin þanin, liðið hvatt áfram. Ég
gat ekki setið í besta stuðnings-
mannasætinu án þess að taka þátt í
öllum hávaðanum, af hófi þó öskraði
ég: „Áfram Haukar“ og klappaði
með.
Lítið gerðist í leiknum, í eitt
skipti varð allt í einu uppnám í áhorf-
endahópnum í kringum mig, strák-
urinn við hliðina á mér sagði að það
hefði verið hendi en dómarinn hefði
ekki dæmt það.
Þegar um hálftími var liðinn af
síðari hálfleik skoruðu Haukar, öll-
um að óvörum, og ég missti ekki af
því. Fagnaðarlætin í Hauka-stúkunni
voru innileg og brjáluð, ekki skánaði
ástandið þegar Haukar skoruðu aft-
ur eftir tíu mínútur, rétt fyrir leiks-
lok. Það var hoppað, öskrað, tárast
og klappað. Fólkið í stúkunni trúði
varla eigin augum, liðið sem átti ekki
að eiga möguleika í þessum leik var
búið að jafna.
Þrátt fyrir að hafa ekkert vit á
fótbolta var nokkuð augljóst að KR
var betur spilandi lið. En það skiptir
engu máli þegar hitt liðið kemur
boltanum einhvern veginn í markið,
eins og Haukar gerðu.
Þegar flautað var til leiksloka
var eins og Íslandsmeistaratitillinn
væri í höfn fyrir Hauka, það var vel
fagnað bæði hjá leik- og stuðnings-
mönnum á meðan KR-ingar gengu
hljóðir af velli. Ég varð svo sam-
dauna þessari stemningu í kringum
mig að það tók góðan tíma fyrir mig
að ná mér niður eftir leikinn, ég fór
jafnvel að velta fyrir mér hvort lífið
væri fótbolti! Þegar ég fór yfir leik-
inn í huganum brá mér smá þegar ég
fattaði að þessi úrslit gætu verið mér
að kenna/þakka. Í fyrri hálfleik sat
ég KR-megin og þá skoruðu þeir tvö
mörk, í síðari hálfleik sat ég Hauka-
megin og þá skoruðu þeir tvö
mörk … svei mér þá ef ég var ekki
bara einhvers konar (ó)lukkudýr
leiksins!
Hvað er málið með að hafa
fótboltaleik tvisvar 45 mín-
útur, væri hálftími ekki nóg?
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
„Ég byrja daginn á því að grípa með mér kaffi latte, lík-
lega á Te og kaffi, og held svo á Kaffi Sólon þar sem ég sé
um PopUp-markað. Ég verð þar að setja upp frá kl. 10 til
12 og svo opnum við kl. 12. Ég verð á Sólon yfir daginn,
ásamt mörgum góðum hönnuðum, að selja vörur úr lín-
unni minni sem heitir Eight Of Hearts, en ég er með fylgi-
hluti, töskur og slár.
Klukkan 18 lokum við á Sólon og þá skelli ég mér heim
í sparikjólinn, fyrir valinu verður svartur blúndukjóll sem
ég festi kaup á í Rokki og rósum ásamt einhverjum guð-
dómlegum fylgihlutum. Svo förum við, ég og kærastinn
minn, Aaron Bullion, á Fiskmarkaðinn í sushi og eftirrétt.
Við endum kvöldið á rauðvíni heima, þar sem við erum að
fara að flytja í nýja íbúð á Laugavegi munum við vonandi
pakka niður í nokkra kassa. Ef ég þekki okkur rétt endum
við örugglega á því að spila plöturnar okkar, sem við eig-
um að vera pakka niður, og endurupplifa minningar.“
Þórey Björk Halldórsdóttir hönnuður
Hvað ætlar þú að gera í dag?
PopUp-markaður
og kveðjupartí
Þórey Björk Á góðan dag í vændum.
DAGUR
UPPLÝSINGATÆKNINNAR 2010
Hvernig má standa að nýsköpun í opinberum rekstri og hverju
getur hún skilað? Reynsla annarra þjóða, íslensk dæmi um nýja
afurð, ný vinnubrögð og nýja mælikvarða
Að ráðstefnunni standa Stofnun stjórnsýslufræða og
Félag forstöðumanna ríkisstofnana
ERINDI FLYTJA:
Su Maddock, forstöðumaður The Whitehall Innovation Hub
Ómar H. Kristmundsson, dósent í stjórnsýslufræðum við H.Í.
Jón Ingi Björnsson, framkvæmdastjóri Trackwell
Sóley Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu Vestfjarða
um málefni fatlaðra
Vigdís Jónsdóttir, framkvæmdastjóri VIRK Starfsendurhæfingarsjóðs
Guðmundur Hannesson, forstöðumaður ráðgjafarsviðs Ríkiskaupa
Kristín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar
SKRÁNING OG NÁNARI UPPLÝSINGAR Á WWW.SKY.IS
SKRÁNING OG NÁNARI UPPLÝSINGAR Á WWW.SKY.IS
HORFT TIL FRAMTÍÐAR
Ráðstefna UT-dagsins 20. maí kl. 12:00 – 17:00 í Salnum Kópavogi
Að ráðstefnunni standa forsætisráðuneytið, Skýrslutæknifélag Íslands,
Samtök upplýsinga-tæknifyrirtækja, Stofnun stjórnsýslufræða og Félag
forstöðumanna ríkisstofnana
12:00
13:00
13:15
13:35
13:55
14:15
14:30
14:50
15:10
16:00
17:00
Skráning og afhending ráðstefnugagna
Létt hádegissnarl frá kl. 12:00 - 13:00
Spjall með sérfræðingum – umræðuefni eru eftirfarandi:
ÁVARP: KATRÍN JÚLÍUSDÓTTIR, iðnaðarráðherra
ÚTFLUTNINGUR Á HUGBÚNAÐI
Andri Marteinsson, verkefnisstjóri, Björn H. Reynisson, verkefnisstjóri
og Hermann Ottósson, forstöðumaður hjá Útflutningsráði
SKATTALEGT UMHVERFI OG SJÓÐIR FYRIR UPPLÝSINGATÆKNI-
OG NÝSKÖPUNARFYRIRTÆKI
Jón Ásgeir Tryggvason, skrifstofustjóri hjá Ríkisskattstjóra, Sigurður
Björnsson, sviðsstjóri rannsókna- og nýsköpunarsviðs, Elísabet
Andrésdóttir, sviðsstjóri alþjóðasviðs og Aðalheiður Jónsdóttir,
kynningarstjóri hjá Rannís
RAFRÆNIR REIKNINGAR- STAÐLAR OG INNLEIÐING
Ragnar T. Jónasson, formaður tækninefndar FUT um grunngerð
rafrænna viðskipta og Baldur M. Bragason, sérfræðingur hjá
Fjársýslu ríkisins
RAFRÆN AUÐKENNING OG RAFRÆN EYÐUBLÖÐ Á ÍSLAND.IS
Rebekka Rán Samper, verkefnisstjóri Ísland.is og Halla Björg
Baldursdóttir, verkefnisstjóri í rafrænni stjórnsýslu í forsætisráðuneyti
RAFRÆN SKILRÍKI – ÚTGÁFA OG NOTKUN
Haraldur A. Bjarnason, sérfræðingur í fjármálaráðuneyti, Guðmundur
Guðmundsson, framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Landsbankans
Helgi Helgason, rekstrarstjóri gagnavers Verne Global
Magnús Ingi Óskarsson, Strategic Architect, Sabre Airline Solutions
Vilborg Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Mentor
Jón Kristjánsson, framkvæmdastjóri Manna og músa
Stefán Hrafnkelsson, framkvæmdastjóri Betware
BREYTINGAR Á SKIPULAGI UPPLÝSINGATÆKNI- OG
UMBÓTAMÁLA HJÁ RÍKINU
Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðuneytisstjóri í forsætisráðuneyti
SÓKNARÁÆTLUN 20/20 – FRAMTÍÐARSÝN UM TÆKNILEGA
INNVIÐI SAMFÉLAGSINS
Dagur B. Eggertsson, formaður stýrihóps 20/20
ÁRANGURSRÍKT SAMSTARF OPINBERRA AÐILA OG EINKAAÐILA
- VIDENTIFIER FORENSICS
Steinarr Kr. Ómarsson, lögreglufulltrúi hjá Lögreglunni á
höfuðborgarsvæðinu
NETUMSÓKNARKERFI FYRIR ATVINNULEYSISBÆTUR -
HVAÐA HINDRANIR ÞURFTI AÐ YFIRSTÍGA OG HVER VAR
ÁVINNINGURINN?
Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar
KAFFI OG SPJALL MEÐ SÉRFRÆÐINGUM
HVERNIG ER HÆGT AÐ BÚA Í HAGINN FYRIR VAXANDI UT-IÐNAÐ?
Hilmar Pétursson, formaður Samtaka upplýsingatæknifyrirtækja og
framkvæmdastjóri CCP
VERÐMÆTASKÖPUN, ÚTFLUTNINGUR OG NÝ ATVINNUTÆKIFÆRI
UPPLÝSINGATÆKNIVERÐLAUN SKÝRSLUTÆKNIFÉLAGS ÍSLANDS
ÁVARP OG VERÐLAUNAAFHENDING: GYLFI MAGNÚSSON,
efnahags- og viðskiptaráðherra
LÉTTAR VEITINGAR
RÁÐSTEFNUSLIT
RÁÐSTEFNUSTJÓRI: Guðbjörg Sigurðardóttir, skrifstofustjóri í forsætisráðuneyti
20. MAÍ KL. 10:30 - 12:15 Í SALNUM KÓPAVOGI
20. MAÍ KL. 12:00 - 17:00 Í SALNUM KÓPAVOGI
PO
R
T
hö
nn
un