Morgunblaðið - 15.05.2010, Side 24
milljarðamærings
sem grunaður er um
undanskot upp á
tugi ef ekki hundr-
uð milljarða
króna. Páll
Arnar tekur
undir að þetta
sé mótsögn.
„Thaksin
er þeirra Ber-
lusconi. Hann
heldur þessu
uppi. Þetta er
gríðarlega um-
fangsmikil að-
VIÐTAL
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
„Þetta er ótrúlegt. Ég bý rétt hjá
þar sem mótmælendur hafa safnast
saman. Ég var að horfa á manneskju
falla í jörðina. Það voru byssuhvellir
en ég veit ekki hvað gerðist. Þar sem
ég er staddur núna á kaffihúsi eru
rauðliðar í fylkingu á horninu rétt
hjá,“ sagði Páll Arnar Steinarsson,
námsmaður í Bangkok, þar sem
hann var nærri hringiðu mótmæl-
anna sem skekið hafa borgina.
„Herinn bíður í um 50 metra
fjarlægð frá rauðliðunum. Rauðliðar
eru búnir að færa mörkin og eru
komnir upp að víglínu hersins. Það
er eins og að þeir séu að gera gagn-
árás,“ sagði Páll Arnar um kvöld-
matarleytið að staðartíma í gær og
átti við endimörk víggirts svæðis
rauðliða í hjarta stórborgarinnar.
Skelfing á götum Bangkok
Þegar blaðamaður kvaddi Pál
Arnar hafði hann áhyggjur af því að
missa netsamband þá og þegar en
hann átti þá allt eins von á að raf-
magnið færi af kaffihúsinu.
Minnst fimm féllu í átökum
hersins og rauðliða á svæðinu í gær.
„Spennan hérna er ótrúleg. Það
eru allir á tánum. Fólkið stendur úti
á götu og fylgist með. Svo ef það
heyrist skothvellur hlaupa allir í
burtu. Maður hefur aldrei upplifað
neitt þessu líkt,“ segir Páll Arnar
sem er meistaranemi í Suðaustur-
landafræðum við Chulalongkorn-
háskóla, virtasta háskóla Taílands.
Um ár er liðið frá því Páll Arnar
kom sér fyrir í höfuðborginni og hef-
ur hann því átt möguleika á að fylgj-
ast með mótmælunum úr návígi frá
því að þau blossuðu upp í mars en
krafa rauðliða er í stuttu máli sú að
stjórnin, sem herinn styður, víki.
Á framfæri auðmanns
Eins og rakið er í rammanum
hér til hliðar eru rauðliðar ekki eins-
leitur hópur. Þeir eiga það þó sam-
eiginlegt að fylkja liði undir rauðum
fánum, einkennislitur sem sýnist
ríma heldur illa við lífshlaup auðjöf-
ursins Thaksins Shinawatra, útlægs
gerð af hálfu rauðliða. Þeir eru búnir
að loka af og hertaka aðalhlutann í
borginni þar sem dýrustu hótelin,
sendiráðin og stórar versl-
unarmiðstöðvar eru.
Þeir gefa öllum að borða og
borga mörgum peninga fyrir að vera
þarna. Þeir stjórna umferðinni og
leita jafnvel í bílum og mótorhjólum.
Þeir skipulögðu ríki í ríkinu inni í
miðri höfuðborginni með sínum lög-
um og reglum og girtu það af.“
Með hermenn á launaskrá
– Hverjir leita í bílum?
„Það eru svartliðarnir, málalið-
ar á launaskrá sem eru margir
hverjir fyrrverandi hermenn eða
lögreglumenn með einhverja þjálfun
að baki,“ segir Páll Arnar og bætir
því við að herforinginn sem stjórnar-
herinn særði á fimmtudag hafi und-
anfarið ár verið að þjálfa upp her
svartliða sem gengið hafi um götur
borgarinnar með grímur.
„Þeir bera vopn og eru með tal-
stöðvar og eru skipulagðir hermenn.
Það eru málaliðarnir, þessir svörtu.
Það eru þeir sem eru að berjast.“
Reyna að falla inn í hópinn
Páll Arnar minnir á að önnur
fylking, svarnir andstæðingar rauð-
liða, hafi valið sér gulan sem ein-
kennislit en beiti nú því bragði að
klæðast ekki neinum sérstökum lit-
klæðum, að því er talið er.
Talið er að Thaksin haldi sig í
Abu Dhabi en Páll Arnar segir ekk-
ert hafa heyrst til forsætisráð-
herrans fyrrverandi í nokkurn tíma.
„Síðan rauðliðar hertóku svæð-
ið hefur hann alveg þagnað.“
Styrjaldarástand á götum Bangkok
Íslenskur námsmaður segir andrúmsloftið spennuþrungið Fólkið á tánum og tekur til fótanna
heyri það byssuhvelli Útlægur auðjöfur heldur mótmælendum uppi Minnst 5 biðu bana í gær
Reuters
24 FréttirERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
–– Meira fyrir lesendur
PANTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105
kata@mbl.is
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/M
O
R
48
90
9
1/
10
Morgunblaðið gefur út
stórglæsilegt sérblað um
Tísku og förðun
föstudaginn 21.maí
Í Tísku og förðun verður
fjallað um tískuna sumarið
2010 í förðun, snyrtingu,
fatnaði, umhirðu húðar-
innar dekur og fleira.
MEÐAL EFNIS:
Förðunarvörur.
Sumarförðun.
Nýjustu snyrtivörurnar.
Krem.
Sólarvörur og sólarvörn.
Hvað verður í tísku í sumar.
Meðferð á snyrtistofum.
Ilmvötn.
Kventíska.
Herratíska.
Fylgihlutir.
Skartgripir.
Og fullt af öðru
spennandi efni.
PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA:
Fyrir kl. 16, mánudaginn 17. maí.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Tíska og förðun
P NTAÐU AUGLÝSINGAPLÁSS FYRIR 17. MAÍ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Olíuverkfræðingar í Venesúela meta
nú hvernig ná megi gasborpallinum
Aban Pearl upp af hafsbotni en hann
liggur á um 160 metra dýpi á gas-
vinnslusvæðinu Campo Dragon, eða
Drekasvæðinu sem svo má kalla, eftir
að leki sökkti pallinum á fimmtudag.
Ríkisrekna olíufélagið Petróleos
de Venezuela, eða PdVSA, rekur pall-
inn sem var smíðaður 1977 en áætl-
anir miðuðu við að vinnslan yrði 600
milljónir ferfeta af jarðgasi á dag.
Það jafngildir 219 milljörðum ferfeta
á ári en til samanburðar var árs-
vinnslan í Venesúela árið 2008 um 848
milljarðar ferfeta, að því er fram
kemur á vef systurstofnunar (EIA)
bandaríska orkumálaráðuneytisins.
Slysið er því áfall fyrir Hugo
Chavez, forseta Venesúela, sem hefur
boðað að frekari leit muni ef spár
rætist auka áætlaðar gasbirgðir
landsins úr 172 milljörðum ferfeta í
400 milljarða ferfeta.
Yrði fjórða mesta gasveldið
Síðari talan er há en með henni
myndi Venesúela ráða yfir fjórðu
mestu gaslindum heims og verða þar
með á eftir Rússlandi, Íran og Katar.
Nákvæmari birgðastaða kallar á
frekari kortlagningu olíu- og gas-
vinnslusvæðanna, vinna sem óhappið
á „Drekasvæðinu“ verður til að
seinka.
Þótt verð á jarðgasi sé lágt um
þessar mundir þykir ljóst að Vene-
súela muni sækja mikinn auð í gas-
lindirnar þegar líða tekur á öldina.
Gasið má þannig flytja út eða
brenna innanlands, hvort sem er í
orkuverum eða sprengihreyflum.
Fyrirhuguð gasvinnsla mun
einnig draga úr þörfinni fyrir inn-
flutning á jarðgasi en fram kemur á
áðurnefndum vef (EIA) að árið 2008
hafi notkunin numið 901 milljarði fer-
feta af jarðgasi, sbr. við vinnslu upp á
848 milljarða ferfeta sama ár.
Tekið skal fram að olíu- og gas-
iðnaðurinn notar stærstan hluta
þessa magns, eða um 70%. Þar af er
stórum hluta dælt niður í olíulindir til
að auka þrýstinginn þar.
Setur strik í
gasdraumana
30 km
BORPALLUR SEKKUR
Drekasvæðið
Gasborpallur sökk á
fimmtudag. Allir sem
voru um borð, alls 95,
komust lífs af. Vatnsleki
dró pallinn niður í hafið.
Pariaflói
T R Í N I D A DV E N E S Ú E L A
Guiria
KARÍBAHAFIÐ
Gasvinnslusvæði
Heimild: Samtök gasfyrirtækja í Venesúela (AVPG)
Slys raskar áætlunum Chavez
Efasemdamenn hafa bent á að
auðjöfurinn Thaksin Shinawatra
borgi fylgismönnum sínum fyrir
að þramma um götur Bangkok í
rauðum skyrtum og krefjast
þess að stjórnin víki.
Spurður hvort þetta ætti við
um meirihluta rauðliða lagði
Páll áherslu á að þeir væru
samsettir úr ólíkum fylkingum.
„Rauðliðarnir eru miklu fjöl-
breyttari hópur en þeir hafa
sjálfir viljað vera láta. Ég þekki
persónulega til fólks sem hefur
starfað fyrir rauðliða. Einn sam-
nemandi minn hefur verið virk-
ur í starfi rauðliða en þó alls
ekki í neinum ólátum heldur
með einhvers konar sósíal-
íska hugsjón að leiðarljósi,“
segir Páll Arnar sem tekur
þó fram að rauðliðar séu
fæstir knúnir áfram af
einhverri sérstakri
hugsjón.
„Fólkið er
hérna út af ein-
hverri reiði og
með frasa á lofti
[…] rauði liturinn er
vísun í sósíalismann,“
segir Páll Arnar sem er
með víetnamskri skóla-
systur sinni, Ninh Le, á
myndinni hér til hlið-
ar.
Rauðir og reiðir
MÓTMÆLENDUR Í VINNU
Gráir fyrir járnum Herinn kemur sér fyrir nærri svæði stjórnarandstæðinga
í Bangkok. Minnst 5 féllu í áhlaupi stjórnarhersins á vígi rauðliða í gær.