Morgunblaðið - 15.05.2010, Side 25
Selak fór á gamals aldri að gruna að
hann væri með heppnari mönnum.
Hann keypti lottómiða og vann 115
milljónir króna. Selak hefur síð-
an komist að því að „peningar
kaupa ekki hamingju“ og hefur
gefið bróðurpartinn af fénu.
Í fyrstu tilraun
FREISTAÐI GÆFUNNAR
Fréttir 25ERLENT
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
Vinsamlegast skráið þátttöku á arionbanki.is
Arion banki býður þér á
morgunfund um framtíð
orkugeirans á Íslandi
Er lagning sæstrengs frá Íslandi til
Evrópu vænlegur kostur?
Fundurinn verður haldinn fimmtudaginn 20. maí í höfuðstöðvum
bankans að Borgartúni 19. Fundurinn stendur yfir frá kl. 8:15 - 10:00.
Dagskrá:
Alf Persson, framkvæmdastjóri ABB Svíþjóð:
Tæknileg atriði varðandi lagningu sæstrengs
Andreas Borsos, ráðgjafi ABB Svíþjóð:
Hagkvæmnisathugun varðandi lagningu sæstrengs
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar:
Breytingar á raforkumarkaði á Íslandi með og án lagningar sæstrengs
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka:
Vaxtartækifæri í orkugeiranum
Að lokinni dagskrá verða pallborðsumræður.
Alf Persson, framkvæmdastjóri ABB í Svíþjóð
Sigurður Arnalds, stjórnarformaður Mannvits
Vilhjálmur Þorsteinsson, stjórnarformaður Verne Holdings
Ásgeir Jónsson, forstöðumaður greiningardeildar Arion banka
Boðið verður upp á morgunverðarhlaðborð frá kl. 07:45.
Vísindamenn og
umhverfissam-
tök bera nú
brigður á þá
staðhæfingu ol-
íurisans BP að
um 5.000 tunnur
af olíu hafi lekið
úr borholu í
Mexíkóflóa dag
hvern frá því að
olíuborpallur félagsins sökk þar
fyrir skömmu.
Fjallað er um málið á vef New
York Times en þar var haft eftir
Ian R. MacDonald, vísindamanni
við Florida State University, að
rannsókn hans á gervihnatta-
myndum bendi til að lekinn kunni
að vera fjórum til fimm sinnum
meiri.
Tilraunir olíufélagsins til að
stöðva lekann héldu áfram í gær
en ef rétt reynist mun olíubrákin
dreifa meira úr sér en óttast var.
Telur mun meiri olíu
hafa lekið í flóann
BANDARÍKIN
Ian R. MacDonald
Ættingjum Króatans Frano Selak er orðið
löngu ljóst að honum er ekki ætlað að farast
af slysförum. Rifjum upp sögu hans.
Það var árið 1962 sem Selak var á ferð í
lest sem var á leið frá Sarajevó til hafnar-
borgarinnar Dubrovnik þegar hún fór út af
sporinu og steyptist í ískalda á. Sautján
drukknuðu en Selak komst við illan leik upp á
árbakkann, kalinn og handleggsbrotinn.
Ári síðar valdi hann öruggasta ferðamát-
ann, flugið, og vildi þá ekki betur til en svo að
hurð opnaðist á flugi með þeim afleiðingum
að hann sogaðist út. Nítján biðu bana en Se-
lak lenti heilu og höldnu á heystakki.
Þremur árum síðar, árið 1966, rann rúta
sem hann var farþegi í stjórnlaus ofan í á.
Fjórir drukknuðu í hildarleiknum en Selak
slapp með skrámur og marbletti.
Fjórða óhappið vildi svo þannig til að
það kviknaði í bílnum hans þar sem
hann var á ferð á hraðbraut. Selak
nam staðar og hljóp frá bílnum
nokkrum sekúndum áður en
bensíntankurinn sprakk.
Þremur árum síðar, árið
1973, komst Selak aftur í
hann krappan þegar bensín-
dælan bilaði og sprautaði elds-
neyti á bílvélina. Við það kviknaði í bensíninu
og læstu eldtungurnar sig um farþegarýmið í
gegnum loftræstiopin. Selak missti hárið en
slapp að öðru leyti.
Við tók langt slysalaust tímabil sem lauk
árið 1995 þegar Selak meiddist lítilsháttar
eftir að rúta ók á hann í Zagreb.
Ári síðar bjargaðist Selak enn á ný þegar
hann ók Skodabifreið fram af vegriði til að
forða árekstri við aðvífandi flutningabifreið.
Selak komst á síðustu stundu úr bílnum og
horfði á hann skella til jarðar og brenna þar
sem hann sat felmtri sleginn á trjágrein. Aft-
ur gat hann andað léttar.
Selak heppni snýr baki við auðnum
Króati sem vann í lottói og lenti sjö sinnum í lífshættu en slapp ávallt með skrekkinn, gefur fé sitt
Sarah Palin,
varaforsetaefni
repúblikana í
bandarísku for-
setakosning-
unum 2008, boð-
ar að „birnur“,
hægrisinnaðir
kvenskörungar
úr röðum repú-
blikana, muni
fara fyrir flokknum í þingkosning-
unum í haust.
Palin lét þessi orð falla á fundi
með andstæðingum fóstureyðinga
en hún telur að birnurnar muni
eiga stóran þátt í kosningasigri
repúblikana í haust. Enginn forseti
hefði stutt fóstureyðingar jafn mik-
ið og Barack Obama forseti.
ALASKA
„Birnur“ munu leiða
sókn repúblikana
Sarah Palin
Talsverðar vonir
eru bundnar við
afrakstur nýrrar
rannsóknar vís-
indamanna í
Kaliforníu sem
gekk m.a. út á
að finna leið til
að endurnýja
frumur í innri
hluta eyrans sem
gegna lykilhlutverki við heyrn.
Frumurnar umbreyta titringi í
taugaboð en maðurinn er með um
30.000 slíkar frumur í hvoru eyra
við fæðingu.
Rannsóknin tók um áratug og
gætu niðurstöðurnar, sem Stefan
Heller, prófessor við læknadeild
Stanford-háskóla fór fyrir, gagnast
þeim sem hafa daufa heyrn, að því
er fram kom á vef Daily Tele-
graph.
KALIFORNÍA
Bylting í meðferð
við heyrnarleysi?
Eyrað er háþróað.