Morgunblaðið - 15.05.2010, Síða 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
Askan teiknar mynd Ómar Ragnarsson fleygði sér flötum í gær á öskulausa blettinn sem Frúin hans hafði teiknað þar sem hún stóð yfir nótt rétt vestan við Hvolsvöll.
RAX
Fólkið sem býr nú
við nánast stöðugt
öskuregn sýnir ótrú-
legt æðruleysi við að-
stæður sem enginn
getur gert sér í hug-
arlund nema sá sem
upplifir þær. Á sunnu-
dagkvöldinu síðasta
var haldinn rík-
isstjórnarfundur í ráð-
herrabústaðnum. Tvö
mál voru á dagskrá. Annars vegar
ríkisfjármál og hins vegar frumvarp
um niðurlagningu ráðuneyta og
uppstokkun á stjórnarráði Íslands.
Allir vita hug minn til þess að leggja
niður sjávarútvegs- og landbún-
aðarráðuneytið. Ég mun að sjálf-
sögðu standa vörð um öflugt sjávar-
útvegs- og landbúnaðarráðuneyti á
Íslandi, ekki síst í miðju ESB-
ferlinu. Á leið inn í ráðherrabústað-
inn svaraði ég spurningum frétta-
manns um framangreint með því að
vísa til þess að ég væri nýkominn úr
langri ferð um gossvæðið undir
Eyjafjöllum og lýsti þeim aðstæðum
sem þar blöstu við.
Að Heimalandi
Við Atli Gíslason, formaður land-
búnaðarnefndar og þingmaður Suð-
urkjördæmis, lögðum í austurátt í
bítið á sunnudagsmorgun. Þetta var
reyndar þriðja ferð mín á hamfara-
svæðið í vor. Heimsótt var félags-
heimilið Heimaland en þar hittast
íbúarnir undir Eyjafjöllum um há-
degisbil á hverjum degi til þess að
ræða málin og styðja hver annan.
Við greindum frá nýsettum reglum
Bjargráðasjóðs um aðstoð á svæð-
inu og hugmyndum um breytingar á
búvörulögum sem eiga að koma til
móts við bændur sem gætu þurft að
flytja bústofn sinn og framleiðslu
tímabundið af jörðunum. Við hittum
einnig séra Halldór Gunnarsson í
Holti. Halldór lýsti fyrir okkur
reynslu sinni af gosinu, samskiptum
við fólkið í sveitinni og þeim ótrú-
legu aðstæðum sem það býr við
flesta daga. Halldór er á sjötugasta
ári og því á síðasta ári sínu í starfi.
Hann sagði okkur hvað sér þætti
vænt um hvað fólk tæki sér vel og
að sér sýndist sem hann gæti enn
hjálpað og lagt fólki lið.
Jökulhlaup
Svaðbælisár
Að þessu loknu var
haldið að Önund-
arhorni og hjónin þar
heimsótt. Þau hafa nú
að mestu lokið hreins-
un túna en Svaðbælisá
flæddi yfir þau og
skildi eftir mikinn jök-
ulleir. Öskufok var og
stöðugar ógnvekjandi
drunur heyrðust úr
fjallinu og þær heyrast ekki aðeins á
daginn. Þau sögðu kýrnar láta sér
þetta lynda en hundunum liði illa.
Engin skepna er sett út, heldur gef-
ið inni. Framtíð búskapar á þessu
ári ræðst af því hvort öskufallið
heldur áfram. Fólkið á Önund-
arhorni er skuldsett líkt og margir
aðrir landsmenn. Mikilvægt er því
að bankarnir taki fullt tillit til stöðu
bænda á gossvæðinu og gangi fram
af varfærni.
Sauðburður og engin
skepna má fara út
Næst fórum við að Hrútafelli en
þar var aska að falla eins og annars
staðar. Þar var heimilisfólk að störf-
um í fjárhúsunum, sauðburður haf-
inn og allt rými smátt og smátt að
fyllast. Ekki var hægt að setja
lambfé út þar sem aska fellur nán-
ast stöðugt í einhverjum mæli en á
bænum eru 200 kindur. Ég var
sjálfur sauðfjárbóndi um árabil í
Bjarnarhöfn og get hreinlega ekki
séð það fyrir mér hvernig ég hefði
getað bjargað mér í sauðburði án
þess að koma bornu ánum út.
Hundraða hektara kornrækt
Á bænum Drangshlíð 2 hefur ver-
ið ein umfangsmesta kornrækt á Ís-
landi. Nú þegar er búið að sá í 50 ha
en óvíst um framhaldið. Í fyrra var
sáð þarna í yfir 100 ha og hug-
myndir voru um enn meiri ræktun í
ár. Miklar vonir hafa verið bundnar
við kornræktina og hefur hún geng-
ið afar vel undanfarin ár. Við hittum
bændur þar og ræddum ræktun á
sáðkorni og brauðbyggi sem vakið
hefur miklar vonir. Enginn uppgjaf-
artónn var í þessu fólki sem virtist
þó gera sér grein fyrir því að það
fengi e.t.v. ekki miklu ráðið um
hvernig nánasta framtíð yrði.
Bærinn Þorvaldseyri hafði að
mestu sloppið við öskufall þennan
daginn og grænt grasið var sem
betur fer farið að láta sjá sig á tún-
um í gegnum öskuskjöldinn. Far-
vegur Svaðbælisár er mikið
áhyggjuefni eftir að hann fylltist í
jökulhlaupinu. Þar þarf að byggja
nýja varnargarða og skapa ánni
meira rými.
Á bænum Raufarfelli er verið að
skipuleggja flutning á bústofni á
bæi utan öskusvæðisins og fjöl-
skyldan býr sig undir að gera hlé á
búskap í 1-2 ár en hefja hann aftur
þegar ástand batnar. Engin svart-
sýni var þar á bæ heldur litið raun-
sætt á málin.
Það rigndi sandi
Að lokum litum við heim að bæn-
um Seljavöllum. Þar er ágætt
kúabú. Þegar við stigum út úr bíln-
um rigndi þéttri dökkri ösku yfir
okkur. Þar hafði verið viðvarandi
öskufall og allt bókstaflega þakið
svartri ösku. Yfir kaffibolla og góð-
gæti var rætt um nýjar reglur
Bjargráðasjóðs og hvernig tekið
yrði á málunum. Húsfreyja spurði,
og kom ekki á óvart, hvort ekki væri
komið að því að sum þessi verst
förnu svæði yrðu metin óheilsu-
samleg fyrir menn. „Hver tekur
ákvörðun um að okkur beri að flytja
á brott?“ spurði hún.
Með þjóðina að baki sér
Með þessari stuttu frásögn vildi
ég segja ykkur frá því sem mér var
efst í huga er ég mætti á ríkisstjórn-
arfund sunnudagskvöldið 9. maí,
kominn beint úr öskustróknum und-
ir Eyjafjöllum.Og enn rignir ösku á
áhrifasvæði gossins. Minn hugur
stendur með því dugmikla fólki sem
þarna tekst á við óblíð náttúruöflin.
Eftir Jón
Bjarnason » Og enn rignir ösku á
áhrifasvæði gossins.
Minn hugur stendur
með því dugmikla fólki
sem þarna tekst á við
óblíð náttúruöflin.
Jón Bjarnason
Höfundur er sjávarútvegs-
og landbúnaðarráðherra.
Í öskuregni
undir Eyjafjöllum
Það er ekki fyrr en
rannsóknir sérstaks
saksóknara, eftirlits-
aðila og skattyfirvalda
eru loks farnar að bera
ávöxt að okkar (fyrr-
um) ástkæru, ungu
auðkýfingar uppgötva
loks hvað þeir eru leið-
ir yfir kreppunni.
Björgólfur Thor
Björgólfsson getur „ekki varist
sjálfsásökunum“ og biðst „afsökunar
á andvaraleysi gagnvart þeim hættu-
merkjum sem hrönnuðust upp“. Jón
Ásgeir Jóhannesson segir okkur að
hann geti ekki „með orðum lýst,
hvernig mér líður vegna mistaka
minna og afleiðinga þeirra“.
Það er afar erfitt að taka þessar
ræður alvarlega. Í fyrsta lagi virðast
afsakanirnar ekki mjög einlægar;
það er eins og höfundarnir hafi ein-
faldlega fyllt út eyðublöð úr ein-
hverri almannatengslabók um op-
inberar afsökunarbeiðnir.
Ég fæ ekki einu sinni séð hvernig
bréf Björgólfs Thors getur flokkast
undir afsökunarbeiðni, þar sem hann
tekur ekki ábyrgð á nokkurri einustu
aðgerð eða aðgerðaleysi. Hann virð-
ist vera að segja að honum þyki leitt
að allt fjandans efnahagslífið var í
rugli og hafi því hrunið þegar á
reyndi.
Jón Ásgeir a.m.k. viðurkennir að
hafa gert einhver mistök (þótt hann
að sjálfsögðu bendi á að hið sama hafi
allir aðrir gert). Ég get ekki að því
gert en mér virðast þessi bréf vera
upphafið á almannatengslaherferð à
la Tiger Woods í þeim tilgangi að
vernda það sem eftir er af við-
skiptaveldum þeirra, fremur en að
sýna einlæga þrá eftir persónulegri
endurlausn.
Ef þessir tveir – sem alls staðar
voru í innsta koppi, í öllum við-
skiptum sem máli skiptu – eru ein-
lægir í iðrun sinni, hvers vegna tók
það þá allan þennan tíma að deila
henni með okkur opinberlega? Hvers
vegna hafa þeir ekki greint nákvæm-
lega frá öllum vafasömum við-
skiptum sem þeir tóku þátt í? Hvers
vegna halda þeir áfram að álíta að
nærvera þeirra í stjórnum fyrirtækja
sé nauðsynleg? Hvers vegna flúðu
þeir land?
Ég trúi staðfastlega á að gefa fólki
tækifæri til að bæta sig.
Það væri yndislegt að
sjá þjóðina loks synda
upp úr ásakanaflóðinu
sem hefur kaffært fjöl-
miðla og alla umræðu
síðan í október 2008.
Samt sem áður er
það ljóst að farsælt
þjóðfélag verður ekki
endurbyggt án rétt-
lætis – og réttlæti í
þessu tilviki felur óhjá-
kvæmilega í sér að nauðsynlegt er að
fjarlægja pólitíska og fjárhagslega
stjórnartauma úr höndum þeirra
sem sýnt hafa og sannað að þeim er
ekki treystandi fyrir þeim.
Bæði Björgólfur Thor og Jón Ás-
geir rekja kreppuna til auðvelds að-
gangs að lánsfé og lélegs eftirlits, en
þetta er léleg afsökun og tilraun til að
yfirfæra sökina á „óviðráðanleg öfl“.
Rannsóknarskýrsla Alþingis er full
af dæmum sem sýna að þessir tveir
og félagar þeirra leituðust af hörku
við að auka völd sín og auð með að-
ferðum sem augljóslega voru ósæmi-
legar, ef ekki ólöglegar.
En jafnvel þótt við tryðum stað-
hæfingum þeirra um að þeir hafi allt-
af haft hagsmuni þjóðarinnar að leið-
arljósi og að kreppan sé einungis
afleiðing af einföldum trassaskap
ættum við samt sem áður í framtíð-
inni að útiloka þá frá ákvörðunum
sem hafa afleiðingar fyrir fleiri en
nánustu fjölskyldur þeirra.
Svo ég noti tilvitnun úr amerískum
poppkúltúr – sem útrásarvíkingarnir
eru sennilega betur kunnugir en
Hávamálum og Íslendingasögum –
nánar tiltekið Spiderman: „Miklu
valdi fylgir mikil ábyrgð.“ Björgólfur
Thor, Jón Ásgeir og fleiri náðu miklu
valdi, en sýndu hvorki ábyrgð né ráð-
vendni við beitingu þess.
Þeir eiga ekki skilið að fá annað
tækifæri. Til þess er of mikið í húfi.
Eftir Írisi
Erlingsdóttur
»Nauðsynlegt er að
fjarlægja pólitíska
og fjárhagslega stjórn-
artauma úr höndum
þeirra sem sýnt hafa og
sannað að þeim er ekki
treystandi fyrir þeim.
Íris Erlingsdóttir
Höfundur er fjölmiðlafræðingur.
Afsakanir
og réttlæti