Morgunblaðið - 15.05.2010, Side 30
30 Umræðan
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
Lífeyrissjóður starfsmanna
Húsavíkurkaupstaðar
Starfsemi á árinu 2009
Breytingar á hreinni eign til greiðslu lífeyris 31.12. 2009 2008
Samtals Samtals
Iðgjöld 54 49
Lífeyrir -65 -57
Fjárfestingartekjur 55 57
Fjárfestingargjöld -2 -2
Rekstrarkostnaður -3 -2
Hækkun á hreinni eign á árinu 39 45
Hrein eign frá fyrra ári 526 481
Hrein eign til greiðslu lífeyris 565 526
Efnahagsreikningur 2009 2008
Fasteign, rekstrafjármunir og aðrar eignir
Verðbréf með breytilegum tekjum 124 143
Verðbréf með föstum tekjum 402 306
Veðlán 2 4
Bankainnistæður 21 48
Kröfur
Aðrar eignir 22 31
Skuldir -6 -5
Hrein eign til greiðslu lífeyris 565 526
Kennitölur 2009 2008
Nafn ávöxtun 9.6% 11.1%
Hrein raunávöxtun 0.9% -4.5%
Hrein raunávöxtun 5 ára meðaltal 0.9% 2.1%
Fjöldi sjóðfélaga 22 24
Fjöldi lífeyrisþega 78 75
Rekstrarkostnaður í % af eignum 0.5% 0.5%
Eignir í íslenskum krónum í % 100.0% 100.0%
Eignir í erlendum gjaldmiðlum í % 0.0% 0.0%
Eign umfram heildar skuldbindingar í % -71.5% -70.6%
Eign umfram áfallnar skuldbindingar í % -71.8% -71.0%
Ársfundur Lífeyrissjóðs starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar 2010,
verður haldinn fimmtudaginn 20. maí nk., kl. 10:00 í
Stjórnsýsluhúsinu að Ketilsbraut 7-9, Húsavík.
Í stjórn lífeyrissjóðsins eru
Ása Gísladóttir, Bergur Elías Ágústsson,
formaður Jón Helgi Björnsson
Framkvæmdastjóri sjóðsins er Jón G. Kristjánsson
Aðsetur sjóðsins er hjá Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga
Sigtúni 42, 108 Reykjavík Sími 570 0400 www.lss.is
Allar fjárhæðir í milljónum króna
Ársfundur 2010
Birt með fyrirvara um prentvillur.
Í grein sinni „Detti-
fossvandinn“, Jakob
og Rammaáætlun í
Morgunblaðinu 24.
apríl sl. segir Hjörleif-
ur Guttormsson:
„Þessar hugrenningar
hafa lengi blundað
með fyrrverandi orku-
málastjóra sem barð-
ist fyrir því í alvöru
nálægt 1970 að Gull-
foss yrði virkjaður við Haukholt.
Einnig verkefnisstjórn Ramma-
áætlunar lítur á það
sem sitt hlutverk í um-
boði iðnaðarráðherra
og ríkisstjórnar að
leggja mat á virkjun
Hvítár ásamt Gull-
fossi…“.
Það var að sjálf-
sögðu hlutverk verk-
efnisstjórnar Ramma-
áætlunar að leggja
mat á virkjun Gullfoss
eins og aðrar virkj-
anir, nema ráðherra
hefði í skipunarbréfi
mælt svo fyrir að sú virkjun skyldi
undanskilin. Það hefur ráðherra
augljóslega ekki gert, sem ekki var
von.
Á árunum kringum 1970 var ég
starfsmaður Orkustofnunar en ekki
orkumálastjóri. Það varð ég fyrst 1.
janúar 1973. Það sem ég skrifaði
opinberlega um orkumál kringum
1970 bar ég að sjálfsögðu undir
orkumálastjóra áður en það birtist.
Það er rétt að Gullfoss var meðal
hugsanlegra virkjunarstaða í
Hvítá, enda hefði það verið van-
ræksla af minni hálfu að nefna
hann ekki, nema þá samkvæmt
beinum fyrirmælum yfirmanna,
sem ekki bárust. Starf mitt á Orku-
stofnun var ekki þess eðlis að það
gæfi tilefni til að „berjast“ fyrir
einni virkjun öðrum fremur. Það
gera framleiðendur raforku.
Gullfoss hefur því lengi verið á
skrá yfir hugsanlega virkj-
unarstaði. En mér er kunnugt um
að í öllum áætlunum um virkjun
hans var frá því fyrsta gert ráð fyr-
ir nægilega miklu rennsli um foss-
inn framhjá virkjuninni til að aðvíf-
andi gestir sæju þess engin merki
að hann væri virkjaður. Það ég veit
best er þetta ríkjandi sjónarmið
enn. Þegar ég var orkumálastjóri
var ég oft spurður um virkjun Gull-
foss. Því svaraði ég ávallt á sama
hátt: „Gullfoss verður aldrei virkj-
aður þannig að þú sjáir þess merki
ef þú kemur að fossinum“. Ég man
ekki eftir neinum sem lét sér það
svar ekki duga.
Sem kunnugt er er sams konar
háttur hafður á mörgum vatns-
föllum sem eru fjölsótt af ferða-
mönnum víða um heim. Þeirra á
meðal eru Niagara-fossarnir á
landamærum Bandaríkjanna og
Kanada og Vöringfossinn í Noregi
og margir fleiri í öðrum löndum.
Og þá tilhögun er ráðgert að hafa á
virkjun Jökulsár á Fjöllum.
Slíkt rennsli framhjá virkjunum
hefur að sjálfsögðu áhrif á raf-
orkuframleiðslu þeirra. Og vinnslu-
kostnað rafmagnsins. Til þess er
tekið tillit í virkjunaráætlun Jök-
ulsár á Fjöllum.
Ég veit ekki hver útkoman yrði
varðandi Gullfoss. Hvort raf-
orkukostnaður frá virkjun sem
nýtti þann hluta af náttúrulegu
rennsli sem eftir verður þegar séð
er til þess að útlit fossins breyttist
ekki yrði slíkur að hún yrði talin
borga sig eða ekki. Þótt svarið við
þeirri spurningu um Jökulsá á
Fjöllum hafi orðið jákvætt er ekki
gefið að það verði eins fyrir Hvítá
við Gullfoss. Ef áætlanir sýna að
virkjun Gullfoss borgi sig ekki með
þessum rennslistakmörkunum
verður hún væntanlega ekki gerð.
Svo einfalt er það.
Gullfoss og Jökulsá á Fjöllum
Eftir Jakob
Björnsson
»Ef áætlanir sýna að
virkjun Gullfoss
borgi sig ekki með þess-
um rennslistakmörk-
unum verður hún vænt-
anlega ekki gerð. Svo
einfalt er það.
Jakob Björnsson
Höfundur er fyrrverandi
orkumálastjóri
Stundum er því haldið
fram að ríkisstjórnin
hafi Alþingi í vasanum,
að Alþingi sé ekki annað
en afgreiðslustofnun
fyrir ríkisstjórnina, hún
ráði öllu, af því að Al-
þingi samþykkir allt
sem ríkisstjórnin leggur
fyrir það. Meira að
segja löglærðir menn
hafa skrifað greinar í
blöð í þessum dúr. Þó vita allir að ef
stjórnarfrumvarp er fellt á þinginu
skoðast það sem vantraust á stjórn-
ina og hún biðst þá lausnar sam-
stundis. Því er augljóst að engin rík-
isstjórn er svo skyni skroppin að
leggja frumvarp fyrir þingið án þess
að tryggja fyrst stuðning við það hjá
meirihluta þingsins í það minnsta.
Oft heyrast fréttir um að rík-
isstjórnin hafi lagt frumvarp fyrir
þingflokkana til kynningar og ekki
aðeins stjórnarflokkana heldur iðu-
lega alla þingflokkana. Oft eru heitar
umræður í þingflokkunum og stund-
um gerðar gagngerar breytingar á
frumvarpinu og fyrir kemur að ein-
stakir þingmenn áskilja sér rétt til að
taka sjálfstæða afstöðu þegar málið
kemur til formlegrar umræðu á þing-
fundi.
Öll meiriháttar lög hafa verið
rædd í þjóðfélaginu áður en Alþingi
tekur þau upp, stundum árum sam-
an. Oft þurfa menn að vinna að því
hörðum höndum að fá sett lög um
það sem þeim finnst nauðsynlegt að
lögfesta. Alþingi tregðast við að taka
mál upp þar til nokkurn veginn er
tryggt að meirihluti sé fyrir því og
menn hafa komið sér saman um
hvernig á málinu skuli tekið, hvað
skuli ákveða í meginatriðum, hvaða
ráðstafanir skuli gera til að yfirlýstur
tilgangur náist. Þar má benda á t.d.
lög um stjórn fiskveiða, sem búið var
að tala um í allt að tíu ár. Sama er að
segja um lögin um framleiðslu-
stjórnun í landbúnaði, fjármagns-
tekjuskatt o.m.fl.
Stjórnmálaflokkarnir eru hinn
formlegi vettvangur stjórnmála-
umræðunnar í landinu. Allir eru
meira en velkomnir í flokkana og
geta þó mætt á opnum fundum flokk-
anna og sagt sína skoðun þótt þeir
séu ekki formlegir flokksmenn í við-
komandi flokki og jafnvel þótt þeir
séu skráðir í einhvern annan flokk
Auðvitað tala menn saman um hlut-
ina. Yfirleitt eru málin rædd í flokks-
félögunum, á kjördæmisþingum og
loks á landsfundum þar sem álykt-
anir félaganna eru samræmdar og
heildarstefna mynduð.
Oftast eru heitar um-
ræður í flokkunum um
einstök málefni, sumir
eru á móti þessu, aðrir
á móti hinu, sumir óá-
kveðnir en atkvæða-
greiðsla sker úr og
menn sætta sig yf-
irleitt við það. Fæstir
þykjast svo óskeikulir
að þeir þykist þurfa að
ráða helst öllu sem
þeir vilja, þótt fyrir
komi að menn fari í
fýlu og skelli hurðum. Þetta gildir
um alla flokkana. Vilji menn „hafa
áhrif“ þá eru flokkarnir rétti vett-
vangurinn til þess. Það er of seint að
ætla sér að hafa áhrif þegar ákvörð-
un hefur verið tekin og málið komið
fyrir þingið til að lögfesta það. Það
má jafnvel segja að þjóðaratkvæða-
greiðsla sé um öll meiriháttar lög-
gjafarmálefni á vegum flokkanna og
vafasamt hvort fleiri myndu nýta at-
kvæðisrétt sinn í allsherjar atkvæða-
greiðslu. Kjósi menn að nýta ekki at-
kvæðisrétt sinn er það á þeirra
ábyrgð en ekki kerfinu að kenna.
Stjórnmálaflokkarnir eru þannig
hornsteinar lýðræðisins. Þar er sam-
ið um málin, allir geta verið með sem
vilja og þegar á þing er komið byrja
samningar milli flokkanna. Lýðræðið
byggist á því að menn komi sér sam-
an um hvað rétt skuli teljast í hverju
tilviki svo að sem flestir geti verið
ánægðir með niðurstöðuna. Það
verða þó aldrei allir ánægðir sam-
tímis, en sem flestir þó. Þetta er lýð-
ræðið að verki! En það eru alltaf ein-
hverjir í minnihluta hvort sem
þjóðaratkvæðagreiðsla er viðhöð eða
ekki og hvernig sem menn breyta
stjórnkerfinu á æðstu stöðum, það
verða alltaf einhverjir í minnihluta.
Minnihlutinn getur andað rólega því
lög gilda jafnt fyrir alla. Allir eru í
sama bát þegar upp er staðið.
Alþingi endurspeglar yfirleitt það
sem þjóðin hefur komið sér saman
um og því væri það ólýðræðislegt ef
einhver einstakur embættismaður
eða stofnun gæti breytt því.
Flokkarnir
og lýðræðið
Eftir Pétur Guð-
varðsson
Pétur Guðvarðsson
» Alþingi endur-
speglar yfirleitt það,
sem þjóðin hefur komið
sér saman um. Því væri
það ólýðræðislegt ef ein-
stakur embættismaður
gæti breytt því
Höfundur er lífeyrisþegi