Morgunblaðið - 15.05.2010, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
✝ Jón Jóhannessonfæddist á Skógs-
múla í Miðdalahreppi
í Dalasýslu 6. mars
1918. Hann lést á
Dvalarheimilinu Silf-
urtúni aðfaranótt 6.
maí síðastliðinn.
Foreldrar hans
voru Jóhannes Jóns-
son, f. 1888, d. 1978,
og Sigurbjörg Sig-
urðardóttir, f. 1892,
d. 1965. Jón var
næstelstur sex systk-
ina, hin eru Sigurður,
f. 1916, d. 1947, Jósef Jón, f. 1919,
d. 1987, Kristín, f. 1921, d. 1923,
Kristmundur, f. 1923, d. 2005, og
Ingibjörg, f. 1926, d. 10. maí 2010.
áratug. Árið 1947 fluttist hann aft-
ur vestur og réðist sem vinnumað-
ur að Leikskálum í Haukadal.
Jón og Þuríður hófu búskap á
Leikskálum í Haukadal árið 1950
og bjuggu þar til 1973 er þau flutt-
ust í Búðardal. Þar voru þau allt
til ársins 2003 þegar þau fluttu á
Dvalarheimilið Barmahlíð á Reyk-
hólum. Í mars árið 2009 fluttu þau
svo á Dvalarheimilið Silfurtún í
Búðardal. Eftir að þau brugðu búi
og fluttust til Búðardals vann Jón
lengst af hjá Kaupfélagi Hvamms-
fjarðar, einnig vann hann í slát-
urhúsinu á haustin svo lengi sem
heilsan leyfði. Jón hafði mikinn
áhuga á fjárbúskap og tafl-
mennsku sem hann stundaði alla
tíð.
Útför Jóns fer fram frá Stóra-
Vatnshornskirkju í dag, 15. maí
2010, og hefst athöfnin kl. 15.
Jón kvæntist 29.
maí 1950 Þuríði Sig-
urfljóð Ólafsdóttur,
f. 1918, d. 2009, frá
Hömrum í Haukadal.
Foreldrar hennar
voru hjónin Ólafur
Jónsson bóndi, f.
1885 í Laxárdal á
Skógarströnd, d.
1946, og Sigurfljóð
Jónasdóttir, hús-
freyja, f. 1886 á
Stóra-Vatnshorni, d.
1971.
Jón fluttist að
Giljalandi 1921 og ólst þar upp þar
til hann fluttist til Reykjavíkur
ungur að árum. Í Reykjavík stund-
aði Jón verkamannavinnu í um
Með nokkrum orðum vil ég minn-
ast og kveðja hann Jón frænda minn.
Ég man fyrst eftir Jóni í pakkhúsinu
hjá Kaupfélaginu og í hverri ferð í
Búðardal var komið við í pakkhúsinu
hjá frænda. Síðar þegar ég vann í
sláturhúsinu í Búðardal sá Jón
frændi um að leggja á og brýna
hnífa. Í þessu starfi naut Jón sín,
staldraði við og spjallaði, sagði sögur
eða fór með vísur, Jón frændi var
einstaklega skemmtilegur maður og
það lá alltaf vel á honum.
Ekki er hægt að minnast Jóns
nema minnast á tafl og taflmennsku.
Alltaf var taflborðið uppi hjá Jóni og
oftar en ekki þegar maður kom til
Jóns og Þuru sátu hann og Jón
Markússon að tafli. Eitt sinn er við
fjölskyldan komum til þeirra hjóna
sátu þeir félagarnir að tafli sem fyrr.
Við settumst í eldhúsið og spjölluð-
um við Þuru, drukkum kaffi og nut-
um góðra veitinga, en ungur drengur
þá á 3ja ári fór að fylgjast með
frænda sínum tefla og upp frá þessu
vildi sá stutti læra að tefla sem hann
og gerði. Alltaf upp frá þessu var þá
tekið tafl þegar við komum í heim-
sókn.
Minningin um hjónin Jón og Þuru
mun lifa um ókomna tíð.
Allt eins og blómstrið eina
upp vex á sléttri grund
fagurt með frjóvgun hreina
fyrst um dags morgunstund,
á snöggu augabragði
af skorið verður fljótt
lit og blöð niður lagði
líf mannlegt endar skjótt.
Ég lifi’ í Jesú nafni,
í Jesú nafni’ eg dey,
þó heilsa’ og líf mér hafni,
hræðist ég dauðann ei.
Dauði, ég óttast eigi
afl þitt né valdið gilt,
í Kristí krafti’ eg segi:
Kom þú sæll, þá þú vilt.
(Hallgrímur Pétursson.)
Hallur Kristmundsson
og fjölskylda.
Jón Jóhannesson
✝ Kristján Valdi-marsson fæddist í
Böðvarsnesi,
Fnjóskadal 21. apríl
1920. Hann lést á
Heilbrigðisstofnun
Þingeyinga 6. maí sl.
Foreldrar hans voru
Valdimar Valdimars-
son, f, 10. maí 1880 í
Böðvarsnesi, d. 18.
maí 1962, og Svan-
hildur Sigtryggs-
dóttir, f. 1. febrúar
1892 í Krosshúsum í
Flatey á Skjálfanda,
d. 14. júní 1971. Kristján átti tvö
systkini, þau eru Sigríður Valdi-
marsdóttir, f. 4. febrúar 1918,
Böðvarsgarði, hún dvelur á Dval-
synir þeirra Daníel Orri og Gabríel
Dan. Birkir Týr er yngstur barna
Elínar og Arnórs. 2) Valdimar, f.
26. maí 1961, býr á Akureyri, giftur
Hörpu Heiðmar, börn þeirra eru
Marta Dögg og Almar. Fyrri kona
Valdimars er Erla Baldursdóttir,
sonur þeirra Kristján Baldur, sam-
býliskona hans Guðlaug Ásta Gunn-
arsdóttir, sonur þeirra Valdimar
Adam. 3) Þórólfur, f. 4. ágúst 1962,
býr í Böðvarsnesi. 4) Svanhildur
Kristjánsdóttir, f. 30. ágúst 1967,
býr á Granastöðum, gift Arngrími
Páli Jónssyni, börn þeirra Íris, Óð-
inn og Auður Friðrika. 5) Ingvar
Helgi, f. 8. sept. 1969, býr í Böðv-
arsnesi, barnsmóðir Sif Jóhanns-
dóttir, sonur þeirra er Ísak Máni.
Útför Kristjáns fer fram frá
Draflastaðakirkju í dag, 15. maí
2010, og hefst afhöfnin kl. 13.30.
Jarðsett verður í heimagrafreit.
arheimilinu Grenil-
undi, og Sigtryggur
Valdimarsson, f. 10.
des. 1927, hann býr á
Akureyri.
Hinn 4. febrúar
1961 kvæntist Krist-
ján Friðriku Þórólfs-
dóttur, f. 13. jan.
1933, frá Hraunkoti í
Aðaldal. Þau bjuggu
alla tíð í Böðvarsnesi.
Börn Kristjáns og
Friðriku eru: 1) Elín
Eydal, fósturdóttir, f.
7. júní 1953, býr á
Þverá, gift Arnóri Erlingssyni,
börn þeirra eru, Valdís Arna, gift
Lorenzo Cowell. Bjarki Freyr, sam-
býliskona hans Anna Magnúsdóttir,
Það var mikil kyrrð yfir Fnjóska-
dalnum þegar ég kom þangað hinn
6. maí sl. Þó fannst fyrir örlitlum
sunnan andvara sem minnti á að
vorið væri á næsta leiti og gróand-
inn að ná yfirhöndinni.
Daginn eftir hélt ég til Húsavíkur
og eftir að hafa lokið erindum þar
fór ég á sjúkrahúsið og hugðist líta
inn hjá vini mínum, Kristjáni Valdi-
marssyni, en þar var mér tjáð að
hann hefði látist daginn áður.
Með Kristjáni í Böðvarsnesi er
horfinn af sviðinu ein af styrkustu
stoðum í samfélaginu í Fnjóskadal.
Hann var fæddur þar og uppalinn og
þar eyddi hann ævikröftum sínum.
Kristján var myndarlegur á velli og
karlmenni að burðum. Á unglings-
árum mínum man ég eftir því að
hann lét sér vaxa rautt alskegg og
duldist þá engum að þar fór ábúð-
armikið hraustmenni og fór ekki hjá
því að fornkappar kæmu í hugann
svo sem Skarphéðinn á Bergþórs-
hvoli. Þeim sem kynntust honum
varð fljótt ljóst að þar fór einnig
heiðarlegur og traustur maður.
Hann var um árabil fjallskilastjóri
í norðurhluta Fnjóskadals enda fór
það vel saman við áhuga hans á
sauðfé. Hann var mikill áhugamaður
um sauðfjárrækt og átti gott fé og
sinnti því vel og svo lengi sem kraft-
ar hans leyfðu fór hann í fjárhús til
að annast um kindur sínar.
Kristján Valdimarsson var farsæll
í einkalífi sínu með konu sína Frið-
riku Þórólfsdóttur sér við hlið og
þótti með þeim mikið jafnræði.
Kristján í Böðvarsnesi var bóndi
af lífi og sál, hann trúði á landið,
gögn þess og gæði. Ekki var hann
þó alltaf jafn trúaður á gjörðir
landsfeðranna, en ekki voru þó stór
orð höfð uppi. Þegar hann ræddi
pólitík sem hann hafði nokkuð gam-
an af sagði hann þá gjarnan: „Held-
urðu að þetta geti verið rétt hjá
þeim?“
Ég sem ólst upp í nágrenni við
Kristján í Böðvarsnesi á svo margs
að minnast frá löngu liðnum árum,
hjálpsemi hans, heiðarleika og þægi-
legs viðmóts, sem ég þakka hér með
fyrir. Mikill drengskaparmaður er
horfinn á braut. Friðriku og afkom-
endum sendi ég mínar bestu sam-
úðarkveðjur.
Páll G. Björnsson.
Kristján Valdimarsson
MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík
sími 587 1960 - www.mosaik.is
Legsteinar og fylgihlutir
Vönduð vinna og frágangur
Yfir 40 ára reynsla
Sendum myndalista
! " # $% & & '(' )**+
,
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir og afi,
SIGURÐUR SVEINSSON,
Álftamýri 43,
Reykjavík,
andaðist þriðjudaginn 4. maí.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn
17. maí kl. 15.00.
Sveinn Briem, Karin Briem,
Kristín Sigurðardóttir,
Tinna Briem,
Dísa Briem.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
ÓLAFUR HÓLM EINARSSON,
lést á Hrafnistu í Hafnarfirði fimmtudaginn 6. maí.
Útför hans fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn
19. maí kl. 13.00.
Þeir sem vildu minnast hans vinsamlega láti líknar-
sjóð stúku nr. 7, Þorkels mána, njóta þess.
Stella Hólm McFarlane, Gavin McFarlane,
Einar Hólm Ólafsson, Vilborg Árný Einarsdóttir,
Birgir Hólm Ólafsson, Ósk Jóhanna Sigurjónsdóttir,
afabörn og langafabörn.
✝
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og lang-
amma,
AÐALHEIÐUR ÁRNADÓTTIR,
Dalbæ,
Dalvík,
lést á dvalarheimilinu Dalbæ miðvikudaginn 5. maí.
Útför hennar fer fram frá Dalvíkurkirkju þriðjudaginn
18. maí kl. 13.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Dalbæ
eða Slysavarnadeild kvenna.
Brynjar Friðleifsson, Svandís Ingjaldsdóttir,
Gréta Friðleifsdóttir, Hjálmar Randversson,
Baldur Árni Beck, Jóna Kr. Björnsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, afi, sonur
og bróðir,
SKÚLI KARLSSON,
Bugðutanga 9,
Mosfellsbæ,
sem andaðist á heimili sínu sunnudaginn 9. maí,
verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í Reykjavík
þriðjudaginn 18. maí kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir en þeir sem
vilja minnast Skúla eru beðnir um að láta björgunarsveitir njóta þess.
Bergrós Hauksdóttir,
Ásdís Skúladóttir,
Ingibjörg Sigríður Skúladóttir,
Guðmundur Skúlason,
Skúli Freyr Arnarsson,
Karl Eiríksson,
Þóra Karlsdóttir,
Eiríkur Karlsson.
Morgunblaðið birtir minningargrein-
ar endurgjaldslaust alla útgáfudaga.
Skil | Greinarnar skal senda í gegn-
um vefsíðu Morgunblaðsins. Smellt á
reitinn Senda inn efni á forsíðu mbl.is
og viðeigandi efnisliður valinn.
Skilafrestur | Ef óskað er eftir birt-
ingu á útfarardegi verður greinin að
hafa borist eigi síðar en á hádegi tveim-
ur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef
útför er á mánudegi eða þriðjudegi).
Þar sem pláss er takmarkað getur
birting dregist, enda þótt grein berist
áður en skilafrestur rennur út.
Lengd | Minningargreinar sem birt-
ast í Morgunblaðinu séu ekki lengri en
3.000 slög. Ekki er unnt að senda lengri
grein. Lengri greinar eru eingöngu
birtar á vefnum. Ekki er unnt að tengja
viðhengi við síðuna.
Minningargreinar