Morgunblaðið - 15.05.2010, Qupperneq 40
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
✝ Alda Þórarins-dóttir fæddist á
Patreksfirði 18. mars
1931. Hún lést á gjör-
gæsludeild Landspít-
alans í Fossvogi 18.
apríl síðastliðinn.
Foreldrar hennar
voru Kristín Pálína
Jóhannsdóttir, f. 23.6.
1900, d. 18.8. 1983, og
Þórarinn Krist-
jánsson, f. 21.12.
1884, d. 13.3. 1962.
Systur Öldu eru Gísl-
ína, f. 10.4. 1921,
Guðrún Hlín, f. 20.4. 1922, d. 10.11.
1959, Kristín Elínborg, f. 19.6.
1924, og Oddbjörg, f. 20.9. 1927.
Hinn 31.12. 1950 giftist Alda
Árna Halldóri Jónssyni, sjómanni
frá Neskaupstað, f. 22.4. 1929.
maki Guðrún Jóna Gísladóttir, f.
1957, þau eiga þrjú börn. 6) Sævar
Árnason, f. 1957, maki Elena Alda
Árnason, f. 1966. Sævar og Elena
eiga einn son saman, fyrir átti
Sævar fjögur börn og Elena tvö
börn. 7) Stefanía Heiðrún, f. 1965,
sambýlismaður Valgeir Ægir Ing-
ólfsson, f. 1966. Stefanía á tvö börn
af fyrra hjónabandi, fyrir átti Val-
geir tvö börn. 8) Brynja, f. 1967,
maki Guðmundur Aðalsteinsson, f.
1962. Þau eignuðust sjö börn. Alda
ólst upp á Patreksfirði og átti
heima þar alla sína tíð. Að loknum
grunnskóla á Patreksfirði var
Alda einn vetur í Héraðsskólanum
á Núpi í Dýrafirði. Alda starfaði
við fiskvinnslu og síðan símavörslu
á yngri árum. Hún var heimavinn-
andi meðan börnin uxu úr grasi,
eftir það starfaði Alda bæði við
verslunar- og fiskvinnslustörf.
Útför Öldu fór fram frá Patreks-
fjarðarkirkju 1. maí 2010.
Foreldrar hans voru
Jón Bessason og Þór-
anna Andersen. Börn
Öldu og Árna eru: 1)
Óskírður Árnason, f.
9.7. 1950, d. 9.7.
1950. 2) Hrönn, f.
1952, sambýlismaður
hennar er Guð-
mundur Ólafur Guð-
mundsson. Hrönn
var áður gift Þor-
steini Jónssyni, f.
1955, d. 1997, saman
áttu þau tvö börn.
Fyrir átti Guð-
mundur Ólafur fjögur börn. 3)
Þór, f. 1953, maki Sigríður Ein-
arsdóttir, f. 1956. Þau eignuðust
fimm börn. 4) Dröfn, f. 1954, maki
Einar Jónsson, f. 1953, þau eiga
þrjú börn. 5) Jón Bessi, f. 1956,
Elsku mamma mín, það er sárt að
setjast niður og ætla að skrifa
kveðju til þín. Þetta eru búnir að
vera erfiðir dagar og ég sakna þín
svo mikið. En minningarnar um þig
eru fjársjóður sem enginn getur
tekið frá okkur. Það er margt sem
leitar á hugann núna. Þegar við vor-
um litlir krakkar í Króknum og
pabbi alltaf úti á sjó. Man eftir þeg-
ar allur hópurinn var kominn í rúm-
ið og þú læddist inn og hvíslaðir að
mér að ég mætti vaka aðeins lengur
af því ég var elst. Þá sátum við tvær
í eldhúsinu, þú að prjóna og við
hlustuðum saman á eitthvað
skemmtilegt í útvarpinu. Þegar við
vorum öll komin í rúmið, stormur-
inn hvein úti og við báðum saman
fyrir pabba og öllum sjómönnunum
sem væru úti á sjó í þessu vonda
veðri, og báðum Guð að fylgja þeim
heilum heim. Ferðin okkar Steina
með ykkur pabba til Þýskalands þar
sem við vorum saman í sumarhúsi í
tvær vikur og þú varst svo heilluð af
öllu sem þú sást, sérstaklega Rín og
Mósel. Þetta voru ógleymanlegir
dagar fyrir okkur öll og mikið hleg-
ið. Í þau skipti sem ég kom vestur
til þín á aðventunni og við sátum
saman og bjuggum til jólakortin og
svo margt fleira. En umfram allt
hvernig þú varst alltaf til staðar ef
eitthvað var að. Það er dýrmætt
núna að hafa komið vestur um
páskana og verið með ykkur í þessa
viku. Einn morguninn þegar við
löbbuðum út á Hóla til ykkar heyrð-
um við píanóspilið út á götu, það var
yndislegt, minnti mig á þegar við
vorum lítil og þú hóaðir okkur öllum
saman í kringum píanóið og spilaðir
og við sungum. Þegar Óli kom inn í
fjölskylduna tókstu honum eins og
syni og það var gaman að heyra
ykkur tala saman, hann gat alltaf
fengið þig til að hlæja og þegar þú
varst flutt suður í síðasta skipti fár-
veik, þá byrjaðir þú á að spyrja
hvort hann væri ekki með mér.
Elsku mamma mín, söknuðurinn
er sár en þú verður alltaf í hjörtum
okkar. Við elskum þig.
Hrönn.
Kveðja til mömmu. Bernskuárin
okkar voru frábær og að mörgu
leyti öfundsverð, oft komum við
blautir og kaldir heim eftir volkið í
fjörunni, þá tókst þú á móti okkur
með heitt kakó og háttaðir okkur
niður í rúm og söngst fyrir okkur,
eða sagðir okkur sögur. Fyrir okkur
var mikill stuðningur að vita að þú
varst ávallt heima er við komum úr
skólanum eða eftir leiki úti.
Erfitt er að skilja það í dag
hvernig þú komst yfir allt sem þú
framkvæmdir á heimilinu. Fyrstu
árin var allur þvottur þveginn í
höndum, og þrátt fyrir stóran
barnahóp skorti okkur krakkana
aldrei neitt, ávallt í fínum nýprjón-
uðum peysum, sokkum og vettling-
um. Og stundirnar sem við krakk-
arnir áttum fyrir framan píanóið
þar sem þú spilaðir og söngst fyrir
okkur mun fylgja okkur alla tíð.
Tónlistin var þér í blóð borin og á
yngri árum stóð þér til boða að fara
til Reykjavíkur í frekara tónlistar-
nám, en af því varð ekki. Sjálf lést
þú alla ganga fyrir og gerðir allt til
að öllum í kringum þig liði vel og
kvartaðir aldrei. Alltaf hafðir þú
tíma fyrir okkur systkinin, hjálpaðir
okkur með heimaverkefnin og alltaf
stutt í brosið þótt þú værir oft
þreytt. Þegar þú byrjaðir að vinna
úti eftir að létti á heimilinu komstu
oft syngjandi ánægð heim úr
vinnunni og fanst þetta meira af-
slöppun og tilbreyting en vinna. Oft
var gaman að heyra í þér með Stef-
aníu og Brynju þar sem þú varst að
kenna þeim á gítar og þið sunguð
allar saman, þú hafðir mjög gaman
af þessum stundum. Alltaf varstu
fljót að galdra fram veislu ef við
börnin eða barnabörnin komum í
heimsókn.
Sá missir er okkur mikill að þú
skulir hafa kvatt þennan heim, þú
sem hélst utan um stórfjölskylduna
og allir þurftu að hringja reglulega
til að heyra í þér, mömmu eða
ömmu. Við viljum þakka starfsfólki
bráðamóttökunnar á Landspítalan-
um og hjúkrunarfólki á Heilsu-
gæslustöð Patreksfjarðar sem að-
stoðaði móður okkar.
Elsku pabbi, mikið hefur þú misst
og við biðjum góðan Guð að styðja
þig í þinni sorg, en við vitum að þú
getur horft stoltur yfir farinn veg
eftir nær 60 ára ástríkt hjónaband.
Jón Bessi Árnason og fjöl-
skylda, Sævar Árnason og
fjölskylda.
Fyrir nokkrum árum gaf amma
mér bók sem heitir Húsmæðrabók-
in. Bókina keypti amma með móður
sinni í kringum miðja síðustu öld og
er hún skemmtileg áminning um
það hvernig líf kvenna var á þessum
tíma. Amma mín var sjómannskona
með stóran barnahóp að hugsa um
og eyddi meirihluta ævi sinnar inni
á heimilinu, eins og svo algengt var
um konur af hennar kynslóð. Þeirra
afrek fólust í að hugsa um fjölskyld-
urnar sínar við aðstæður sem fólki
þætti óhugsandi í dag og að mestu
leyti einar því afi og hinir fjöl-
skyldufeðurnir voru á sjó.
Allra fyrsta minningin mín er frá
því ég var lítil stelpa að ganga með-
fram sjónum á Patreksfirði og held í
höndina á ömmu. Þegar ég lít til
baka og rifja upp stundirnar með
henni og afa eru það fyrst lítil minn-
ingabrot á borð við þetta sem koma
upp í hugann, amma að spila á pí-
anóið, amma að baka hveitikökur,
amma að horfa á Leiðarljós og
amma að segja jahérna.
Mér eru minnisstæð skiptin sem
við systkinin fengum að gista hjá
ömmu og afa. Sérstaklega vetrar-
morgnar í eldhúsinu á Strandgöt-
unni þar sem við borðuðum morg-
unmat og hlustuðum á veðurfréttir
með afa, það hlýjar manni um
hjartaræturnar í dag að rifja upp
þessar stundir. Eldhúsið hennar
ömmu er miðpunkturinn í þessari
upprifjun, það hefur alltaf verið hlý-
legt og oft á tíðum þétt setið við eld-
húsborðið. Í eldhúsinu hennar
ömmu hittist stórfjölskyldan og þar
voru sagðar fréttir, þar hjálpuðust
systur að við hárgreiðslu, ég man
eftir lykt af Toni-permanenti og
Carmenrúllum að hitna. Þar bakaði
amma stóra stafla af pönnukökum,
steikti kleinur og eldaði ýsu í raspi.
Amma mín var amma eins og
maður les um í gömlum barnabók-
um, hún var góð við alla, hún kunni
að hlýja manni á höndunum eftir
dag úti í snjónum, hún átti alltaf
eitthvað gott að borða og hún gaf
sér tíma fyrir fólkið sitt.
Svona man ég eftir ömmu minni.
Alda.
Alda Þórarinsdóttir
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför ástkærrar
móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu,
ÁSDÍSAR ÁRNADÓTTUR.
Árni H. Karlsson,
Sigurður G. Karlsson, Guðrún Svava Svavarsdóttir,
Davíð K. Karlsson, Kolbrún E. Júlínusdóttir,
Gauja S. Karlsdóttir, Björgvin Högnason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Innilegar þakkir til allra sem auðsýndu samúð og
hlýhug við andlát og útför móður okkar, tengda-
móður, ömmu og langömmu,
RÓSU MARÍU ÞÓRU GUÐMUNDSDÓTTUR,
Hjallabraut 33,
Hafnarfirði.
Guðmundur Vésteinsson, Málhildur Traustadóttir,
Vésteinn Vésteinsson, Elínborg Bessadóttir,
Grétar Vésteinsson, Gyða Ólafsdóttir,
Sigurður Vésteinsson, Hafdís Karvelsdóttir,
Bjarni Vésteinsson, Steinunn Sigurðardóttir,
Viðar Vésteinsson, Guðrún Lovísa Víkingsdóttir,
Auður Vésteinsdóttir, Sveinn K. Baldursson,
Anna Margrét Vésteinsdóttir, Höskuldur E. Höskuldsson,
Guðbjörg Vésteinsdóttir, Sveinbjörn M. Njálsson,
Árni Þór Vésteinsson, Ingibjörg Rögnvaldsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Hjartans þakkir til þeirra sem sýndu okkur samúð
og vinarhug við andlát og útför elskulegs eigin-
manns, föður, tengdaföður og afa,
SIGURÐAR EINARSSONAR,
Grenigrund 18,
Akranesi.
Ásta Kristjánsdóttir,
Ragnar Bergþór Sigurðsson,
Guðný Sjöfn Sigurðardóttir, Ingólfur Valdimarsson,
Einar Bragi Sigurðsson
og afabörn.
✝
Okkar innilegustu þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur samúð og vinarhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengda-
föður, afa og langafa,
HELGA INDRIÐASONAR
rafvirkjameistara,
Smáravegi 6,
Dalvík,
og heiðruðu minningu hans.
Sérstakar þakkir færum við Karlakór Dalvíkur og Frímúrarareglu
Akureyrar.
Gunnhildur Jónsdóttir,
Þorsteinn Kormákur Helgason,
Laufey Helgadóttir, Bernard Ropa,
Jóhanna Helgadóttir,
Indriði Helgason,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Þökkum auðsýnda samúð og vinsemd vegna
andláts og jarðarfarar móður okkar, tengdamóður,
ömmu, langömmu og langalangömmu,
SIGURVEIGAR GUÐMUNDSDÓTTUR.
Fjölskyldan færir starfsfólki Hrafnistu í Hafnarfirði
alúðarþakkir fyrir góða umönnun og hjúkrun.
Margrét Sæmundsdóttir, Þorkell Erlingsson,
Gullveig Sæmundsdóttir, Steinar J. Lúðvíksson,
Hjalti Sæmundsson, Jenný Einarsdóttir,
Logi Sæmundsson, Jóhanna Gunnarsdóttir,
Frosti Sæmundsson, Dagbjörg Baldursdóttir,
Margrét Thorlacius,
Jón Rafnar Jónsson
og aðrir aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir fyrir hlýjar kveðjur vegna andláts
eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
GUÐNA JÓHANNESAR STEFÁNSSONAR,
Hámundarstöðum II,
Vopnafirði.
Aðstandendur.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð við andlát og
útför
KRISTJÓNS PÁLMARSSONAR
bónda,
Tobbakoti,
Þykkvabæ.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki á Kumbara-
vogi og dvalarheimilinu Lundi fyrir veitta
aðhlynningu.
Sigurfinna Pálmarsdóttir,
Lára Pálmarsdóttir,
Una Pálmarsdóttir,
fjölskyldur og aðrir aðstandendur.