Morgunblaðið - 15.05.2010, Side 44
44 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. MAÍ 2010
Orð dagsins: Þú hefur breytt eftir mér í
kenningu, hegðun, ásetningi, trú,
langlyndi, kærleika, þolgæði. (Tím. 3,
10.)
Víkverji er afar heppinn meðsambýliskonu. Hún umber aug-
ljósa galla Víkverja og leiðir þá hjá
sér. Þó heyrist stundum hljóð úr
horni.
x x x
Víkverji hefur þannig sökkt sérofan í Skýrsluna, sem svo er
kölluð, og nartað í þær bækur sem
komið hafa út um hrunið. Sumar
hefur Víkverji lesið upp til agna eins
og nýja bók fyrrverandi ritstjóra
síns, Hrunadans og horfið fé. Hefur
lesturinn tekið tíma frá viðfangs-
efnum sem sambýliskonan telur
mun brýnni.
x x x
Víkverji hefur sérstaklega hafthugann við þá kafla skýrsl-
unnar sem lúta að íslenskri þjóðar-
sál og Styrmir Gunnarsson vitnar til
í bók sinni.
Grípum niður í tilvitnun Styrmis í
texta dr. Huldu Þórisdóttur í 8.
bindi skýrslunnar margrómuðu:
„Salvör Nordal hefur til að mynda
líkt íslenskri þjóð við grunna tjörn
og ber saman við dýpri vötn stærri
þjóða. Sökum fámennis þrífist ekki
fjölbreyttir undirhópar á Íslandi og
þar af leiðandi skapist ekki dýpt í
samfélagið. Það þurfi síðan mun
minna rok til að koma róti á grunnt
vatn en djúpt og feykja því öllu í þá
átt sem vindurinn blæs. Af því leiði
að hjarðhegðunin verði mun meira
áberandi en í fjölmennari löndum.
Það getur verið erfitt fyrir ríkis-
stjórn í landi líku því sem Salvör lýs-
ir að reyna að stýra hjörðinni í aðra
átt en hún hleypur hverju sinni.
Raunar er allt eins líklegt að hún
reyni það ekki, því fulltrúar yfir-
valda eru vitanlega sprottnir úr
sama sverðinum og meginþorri
þjóðarinnar. Eins og rætt hefur ver-
ið í þaula síðastliðið ár var stemn-
ingin í íslensku samfélagi í upphafi
nýs árþúsunds á þá leið að styðja
bæri við útrásina, hún væri af hinu
góða fyrir efnahag og þjóðarstolt.
Stærstu útrásarfyrirtækin voru
mjög áberandi í samfélaginu og
raunar í lífi fólks. […] Gríðarlegan
áhuga á viðskiptum mátti sjá víða
[…]“ víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 hræðilegt, 8
fugl, 9 líffærin, 10
mannsnafn, 11 kremja,
13 fiskar, 15 fælin, 18
málms, 21 trylla, 22
vindleysu, 23 ber, 24
samtímis.
Lóðrétt | 2 skærur, 3
bátur, 4 slota, 5 bakt-
eríu, 6 hæðum, 7 röskur,
12 rekistefna, 14 lengd-
areining, 15 vers, 16
ókyrrð, 17 fuglinn, 18
herbergi, 19 kvíslum, 20
fýlda.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 helja, 4 glíma, 7 lútan, 8 tukta, 9 ali, 11 nart, 13
hrós, 14 arður, 15 blað, 17 óróa, 20 hak, 22 rofna, 23 álf-
ar, 24 syrta, 25 tínir.
Lóðrétt: 1 hélan, 2 letur, 3 anna, 4 gati, 5 ískur, 6 aðals,
10 liðka,12 tað, 13 hró, 15 bergs, 16 arfur, 18 rófan, 19
aurar, 20 hana, 21 kátt.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Bjartsýni þín leiðir þig langt og
þegar sá gállinn er á þér njóta samstarfs-
menn þínir einnig góðs af. Einhver þarf
að ræða við þig um sín hjartans mál.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Dagurinn hentar einstaklega vel til
þess að byrja á nýju verkefni í vinnu. Ef
það eykur hamingju þína að ferðast
skaltu láta verða af því.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Óvænt tækifæri berst upp í
hendurnar á þér og nú hefur þú enga af-
sökun fyrir því að nýta þér það ekki.
Slakaðu á í faðmi fjölskyldunnar.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Þú græðir lítið á því að láta alla
hluti fara í taugarnar á þér. Gættu þín í
öllu sem snýr að fjármálum. Bjartsýnin
ræður ríkjum hjá þér.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Þið skuluð búa ykkur undir eitthvað
óvænt í dag og það kemur úr þeirri átt-
inni sem þið eigið síst von á. Reyndu að
skapa þér líf utan vinnunnar líka.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Reyndu að láta lítið fara fyrir þér í
dag. Til hamingju – ef þér líður vel, ef
ekki er málið að taka í taumana og horfa á
björtu hliðarnar.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú nálgast viðfangsefni þín af mikilli
sannfæringu: það gerir þig fram úr hófi
hæfa/n. Of miklar upplýsingar geta auð-
veldlega flækt málin.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Þú átt erfitt með að henda
reiður á hvað er að gerast í kringum þig.
Þolinmæðin er eitt af undirstöðuatriðum
þess að þér verði eitthvað úr verki.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Gamlar tilfinningar eða vana-
bundin hegðun í samskiptum við þína
nánustu lætur á sér kræla á næstunni.
Eyddu kvöldinu í góðra vina hópi. Njóttu
frelsisins til jafns við ábyrgðina sem þú
tekur.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Maður uppsker eins og maður
sáir, það er gömul saga og ný. Draumar
um fjarlæga staði gera dagana spenn-
andi.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Dugnaður þinn verður til um-
ræðu, en kannski ekki endilega meðal
þeirra sem þú vilt að hæli þér. Engar út-
skýringar eru nauðsynlegar, því vinir
þurfa þær ekki.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú ert ekki ein/n af þeim sem setja
fólk á stall. Ef þú lendir í klípu, skiptu þá
um umræðuefni.
Stjörnuspá
Osvald Kratsch
verður áttatíu og
fimm ára á
morgun, 16. maí.
Í tilefni afmæl-
isins býður hann
vinum og vanda-
mönnum að
þiggja veitingar í
Skátamiðstöð-
inni, Hraunbæ 123, Reykjavík, á af-
mælisdaginn milli kl. 14-17. Allar
gjafir eru afþakkaðar, en styrkja
má Skátamiðstöðina v/Árbæ ef vill.
85 ára
Jón Gunn-
laugur Stefáns-
son, bóndi í
Höfðabrekku,
Kelduhverfi,
Norður-Þing-
eyjarsýslu, verð-
ur áttatíu og
fimm ára á
morgun, 16. maí.
Hann dvelur í faðmi fjölskyldunnar
á afmælisdaginn.
85 ára
Sigurður
Hjartarson, bak-
arameistari frá
Ísafirði, verður
áttræður 18. maí
næstkomandi.
Hann verður að
heiman á afmæl-
isdaginn en
fagnar þessum
tímamótum með sínum nánustu í
dag, 15. maí, í sumarhúsi dóttur
sinnar og tengdasonar, Nýjabæ í
Hraunborgum í Grímsnesi. Eig-
inkona Sigurðar er Bára Jóns-
dóttir frá Hafnarnesi í Fáskrúðs-
firði.
80 ára
„Upphaflega ætlaði ég nú að halda upp á afmælið,
en undanfarið hefur verið of mikið að gera hjá
mér í vinnunni vegna eldgossins,“ segir Theodór
Freyr Hervarsson, veðurfræðingur á Veðurstofu
Íslands, sem verður fertugur í dag. Hann segist
mögulega munu halda lítið boð fyrir nánustu fjöl-
skyldumeðlimi um helgina, en stefnir á að halda
stærri veislu þegar fer að róast hjá honum í
vinnunni.
Aðspurður segir Theodór ómögulegt að spá um
hvenær það verður. „Eldfjallið stýrir óneitanlega
lífi mínu um þessar mundir. Maður veit ekki einu
sinni hvernig morgundagurinn verður, enda þurfum við á Veðurstof-
unni alltaf að vera tilbúin til að bregðast við ef gangurinn í gosinu
breytist.“
Hann viðurkennir að mikið álag hafi verið á starfsmönnum Veður-
stofunnar sem hafi unnið mikla yfirvinnu frá því gosið hófst. „Það er
brjálað að gera og allir aðframkomnir af þreytu.“ Aðspurður hvort
þetta séu samt ekki spennandi tímar fyrir starfsmenn Veðurstof-
unnar, segir hann: „Jú, jú, auðvitað. Og við höfum líka lært heilmikið
á þessu.“ hlynurorri@mbl.is
Theodór Freyr Hervarsson, fertugur
Gos setur strik í reikninginn
Magnús Ingi
Magnússon veit-
ingamaður verð-
ur fimmtugur
19. maí næst-
komandi. Í til-
efni afmælisins
býður hann vin-
um sínum,
vandamönnum
og öðrum samferðamönnum á lífs-
leiðinni til veislu á veitingahúsinu
Panorama á morgun, sunnudaginn
16. maí kl. 12. Allir velkomnir.
50 ára
Sudoku
Frumstig
6 4 1
5 1
9 1 6 4 3
8 5 9
7 6
4 3 9 1 6
5 6 7 3
4 1
1 9 5
5 4 7
1 2
4 1 6
5 7 8
7 2 9 4
1 2 8 9
7 8 4 5 1
9 5
8
7 1 4
1 3 4
2 7 6 4
3 9 8
4 6 3
2 7
6 5
6 1 2 5 3 4 7 8 9
8 4 7 2 9 6 5 1 3
9 3 5 7 8 1 2 4 6
4 2 6 8 5 7 9 3 1
3 5 9 6 1 2 4 7 8
7 8 1 9 4 3 6 5 2
5 9 4 3 6 8 1 2 7
1 7 8 4 2 9 3 6 5
2 6 3 1 7 5 8 9 4
7 8 4 2 6 3 1 9 5
2 9 3 5 4 1 7 8 6
5 1 6 7 9 8 4 2 3
8 2 5 1 7 6 3 4 9
1 4 9 3 8 2 5 6 7
3 6 7 9 5 4 8 1 2
6 3 2 8 1 7 9 5 4
4 5 1 6 3 9 2 7 8
9 7 8 4 2 5 6 3 1
1 4 6 3 9 2 7 8 5
9 7 2 8 6 5 1 3 4
5 3 8 7 4 1 6 2 9
6 8 7 1 3 9 4 5 2
2 1 9 4 5 6 8 7 3
4 5 3 2 8 7 9 6 1
3 2 4 9 7 8 5 1 6
8 6 1 5 2 4 3 9 7
7 9 5 6 1 3 2 4 8
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er laugardagur 15. maí, 135. dag-
ur ársins 2010
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. d4 Rf6 2. Rf3 g6 3. Bg5 Bg7 4.
Rbd2 d6 5. c3 Rbd7 6. e4 h6 7. Bh4
g5 8. Bg3 Rh5 9. Rc4 Rxg3 10. hxg3
e6 11. Bd3 De7 12. De2 b6 13. O-O-O
Bb7 14. Re3 a6 15. Kb1 b5 16. Bc2
Rb6 17. Rd2 c5 18. dxc5 dxc5 19. f4
O-O-O 20. e5 Kb8 21. a4 c4 22. axb5
axb5 23. Re4 gxf4 24. gxf4 Rd5 25.
Rxd5 exd5 26. Rg3 Bf8 27. Rf5 Dc7
28. b4 cxb3 29. Bxb3 Hg8 30. Hh3
Hg6 31. Hhd3 b4 32. c4 d4 33. Rxd4
Hxg2
Staðan kom upp á átta manna ofur-
stórmeistara-atskákmóti sem lauk
fyrir skömmu í Bakú í Aserbaídsjan.
Gata Kamsky (2702) hafði hvítt gegn
heimamanninum Teimour Radjabov
(2740). 34. Rc6+! Dxc6 35. Hxd8+
Ka7 36. Dd3 Bc5 37. Hd7 Hf2 38.
Dd5 Dg6+ 39. Hd3 Hf1+ 40. Kb2
Hf2+ 41. Bc2 og svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur S. Hermannsson | ritstjorn-
@mbl.is
Í lit andstæðinganna
Norður
♠G
♥102
♦KG98632
♣KG7
Vestur Austur
♠AKD643 ♠109852
♥63 ♥ÁD975
♦4 ♦--
♣ÁD105 ♣982
Suður
♠7
♥KG84
♦ÁD1075
♣643
Suður spilar 4♠.
Hvernig bar það til, að NS enduðu í
4♠? Það er útskýrt í bridsmetabók
Davids Birds og Nikos Sarantakos.
Spilið kom fyrir í bandarískri sveita-
keppni og við annað borðið spiluðu AV
6♠ sem töpuðust þegar engin svíning
gekk. Við hitt borðið sátu Cecari Ba-
licki og Adam Zmudzinski AV og Steve
Weinstein og Bobby Levin NS, allt
heimsþekktir spilarar. Weinstein í
norður hóf sagnir á 3♦ og Zmudzinski í
austur passaði.
Levin í suður taldi ljóst að AV ættu
geim eða jafnvel slemmu í spaða. Hann
ákvað því að grugga vatnið og sagði 3♠
á einspilið. Balicki í vestur gat ekkert
sagt við því. Besta sögnin á spil norð-
urs er væntanlega 3Gr en Weinstein
leist vel á spaðagosann og lyfti því í 4♠.
Levin sagði pass og Balicki var ánægð-
ur. 4♠ fóru 8 niður, 800 til AV.
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is