Fréttablaðið - 24.11.2011, Qupperneq 39
FIMMTUDAGUR 24. nóvember 2011 3
www.belladonna.is
Flott föt fyrir
flottar konur,
Alltaf
eitthvað
nýtt og
spennandi
Stærðir
40-60.
Ármúla 18, 108 Reykjavík
Sími 511-3388
Opið mán - fös 9 - 18, lau 11-15
Prjónasett
laxdal.is
Stórglæsilegar
Vetraryfirhafnir
Í ár fór saman koma Beaujolais
nouveau rauðvínsins og tískulínu
Versace hjá H&M í Frakklandi,
tveir fastir liðir hér í nóvember. Á
eftir Roberto Cavalli, Karl Lager-
feld, Lanvin og fleiri var komið
að ítalska tískuhúsinu sem Dona-
tella, systir stofnandans Gianni,
stýrir nú. Sænski risinn veit upp á
hár hvernig á að æsa almenning og
kveikja upp þorsta með réttri mark-
aðssetningu eins og tísku sýningu í
New York og auglýsingum á netinu
og í sjónvarpi. Sömuleiðis er þetta
sjálfsagt góð auglýsing fyrir Ver-
sace sem á næsta ári opnar heila
búð á netinu. Stíllinn var sannar-
lega „ítalskur“ eða ætti ég að segja
í stíl við Frönsku Rivíeruna. Bæði
kvenlínan með litríku hlébarða-
munstri, svörtum kjólum með
gylltu skrauti og semelíusteinum
og herrafötin þar sem að mikið er
um turkísblátt og jafnvel flúorbleik
jakkaföt. Ekki má heldur gleyma
frumskógarmynstrinu sem
sumum sem ég hef heyrt
í þykir nóg um. Punktur-
inn yfir i-ið voru auðvitað
hlébarða púðarnir sem
breyta hvaða stofu sem
er í exótískt drauma-
land að hætti Donat-
ellu! Viðtökurnar
voru góðar í þeim
tuttugu búðum
þar sem tískulín-
an var til sölu. Til
dæmis hér í Nice
þar sem varla var
hægt að finna
stærð medíum
eða minna einum og hálfum tíma
eftir opnun en merkilegt er þó að
viðskiptavinirnir voru margir af
afrískum uppruna.
Í París var öllu meiri handa-
gangur í öskjunni þar sem við-
skiptavinir fengu armband sem
veitti aðgang að Versace-svæðinu
og tíminn til að versla var bundinn
við fimmtán mínútur.
Ekki eru allir sáttir við þetta
skipulagða hallæri þar sem mjög
takmarkað upplag er til sölu. Karl
Lagerfeld var ekki hrifinn þegar
hann sá hönnun sína rifna út á
tíu mínútum svo lá við áflogum
árið sem hann var gestahönnuður.
Reyndar kemur á markað í janúar
á næsta ári ný kvenlína frá Lager-
feld sem einmitt verður á lágvöru-
verði en upplagið verður ekki eins
takmarkað. Þetta er byrjunin því á
eftir fylgir ný herralína.
Skýringanna má leita til krepp-
unnar en fjöldi tískuhönnuða legg-
ur nú nafn sitt við fjöldaframleidd-
an fatnað á hóflegu verði sem
hefði í eina tíð ekki þótt sér-
staklega fínt. Til dæmis hannar
Vanessa Bruno fyrir pöntunar-
listann La Redoute og Indverj-
inn Manish Arora tók nýlega
við taumunum hjá Paco
Rabanne fyrir Monoprix
sem minnir dálítið á
Hagkaup heima. Skó-
fyrirtækið André selur
tösku Charlotte Balme
frá Yvonne-Yvonne sem
er það nýjasta í París.
Ódýrt fyrir allar konur
og karla. bergb75@free.fr
Hlébarðamynstur að hætti Donatellu
ÚR HÁBORG TÍSKUNNAR
Bergþór Bjarnason skrifar frá Nice
Útskriftarnemar af textíl- og
fatahönnunarbraut Fjölbrauta-
skólans í Breiðholti halda
sýningu á afrakstri vinnu sinnar
á liðinni önn. Tuttugasta öldin
var þema sýningarinnar í ár.
„Við höfum verið meira og minna
uppi í skóla upp á síðkastið og
svefn er orðið afstætt hugtak,“
segir Ása Katrín Bjarnadóttir, ein
af ellefu útskriftarnemendum af
textíl- og fatahönnunarbraut FB.
Nemendur munu í dag sýna flíkur
sem þeir hafa hannað og saumað
síðustu mánuði. „Hver nemandi
hannar eigin línu og er með fjórar
til fimm innkomur,“ segir Ása en
þema sýningarinnar í ár er tuttug-
asta öldin. „Við vildum ekki binda
okkur við þrengra tímabil,“ segir
hún en svo skemmtilega vill til að
nemendurnir taka allir mismun-
andi tímabil á öldinni. „Við spönn-
um í raun alla öldina, nema diskó-
tímabilið held ég,“ segir Ása og
hlær.
Sýning útskriftarnema FB er
árleg og iðulega skemmtilegt að
fylgjast með afrakstrinum enda
leggja nemendur blóð, svita og tár í
verkið. Þess má geta að Iðnskólinn í
Hafnarfirði sér um hárgreiðslu fyr-
irsætanna og snyrtifræði brautin
í FB sér um förðunina. Sýningin
í dag verður í hátíðasal FB, húsið
verður opnað klukkan 19.30 en sýn-
ingin hefst klukkan 20. Aðgangur
er ókeypis. - sg
Spanna 20. öldina
Alexander Malmberg Arndísarson
hannaði þennan kjól fyrir sýninguna.
Ásta Erla Jakobsdóttir hannaði þessa flík með afar fallegu hálsmáli.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
ÞAÐ ERU FLEIRI PARTÝ OG MEIRA FJÖR Á VÍSI
Meiri Vísir.