Fréttablaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 4
10. desember 2011 LAUGARDAGUR4
Opið til tíu öll kvöld til jóla
MAGNAÐ
helgartilboð
Sími 568 9400 KRINGLUNNI
20-50%
afsláttur
DANMÖRK Kona sem býr í Thisted
í Danmörku hefur verið hand-
tekin vegna gruns um að hafa um
þriggja ára skeið aðstoðað 600
manns frá Filippseyjum við að
komast ólöglega til Danmerkur
og annarra landa innan Schen-
gen-svæðisins í Evrópu.
Konan er talin hafa grætt
fé á því að skipuleggja ferðir
Filippseyinganna til Evrópu.
Saksóknari hefur krafist þess
að konan verði sett í gæsluvarð-
hald þar sem óttast er að hún
reyni að komast úr landi. -ibs
Græddi fé á Filippseyingum:
Smyglaði 600 til
Danmerkur
VARÐSKIPIÐ ÞÓR Smávægileg bilun kom
upp við skoðun í skipinu. MYND/FRIÐRIK ÞÓR
ÖRYGGISMÁL Við mælingar á vél-
búnaði varðskipsins Þór á dögun-
um kom í ljós galli í eldsneytiskerfi
skipsins. Lýsti bilunin sér í titringi
í annarri aðalvél skipsins.
Fór Landhelgisgæslan fram á
við framleiðendur vélanna, sem
eru Rolls Royce í Noregi, að sendir
yrðu fulltrúar þeirra til lands-
ins, enda leggur Landhelgisgæsl-
an á það mikla áherslu að nýta
ábyrgðartíma vélanna sem eru
átján mánuðir.
Varahluti þarf að fá að utan og
getur viðgerð tekið allnokkra daga.
Landhelgisgæslan mun ekki bera
neinn kostnað af viðgerðinni.
- shá
Gæslan ber engan kostnað:
Bilun kom upp í
varðskipinu Þór
FÓLK Neyðarlínunni var tilkynnt í
gærmorgun um undarlega sterka
ljósbjarma í hlíðum Mýrdals-
jökuls. Að því er fram kemur á
Vísi voru tilkynnendur að velta því
fyrir sér hvort gos væri að hefjast
í Kötlu.
Í ljós kom að ástæða ljós-
bjarmanna voru upptökur á ævin-
týraþáttunum Game of Thrones
og hafði hið fjölmenna tökulið
verið snemma á fótum til að ná
réttu birtunni. RÚV greindi einn-
ig frá því í gær að borist hefði
fyrirspurn frá útlöndum þar sem
spurt var hvort Katla væri byrjuð
að gjósa. - sv
Hringt vegna kvikmyndatöku:
Héldu að Katla
væri að gjósa
KÖNNUN Innan við helmingur þeirra
sem þátt tóku í nýrri skoðanakönn-
un Fréttablaðsins og Stöðvar 2
sagðist myndu kjósa einhvern af
þeim flokkum sem nú eiga sæti á
Alþingi yrði gengið til kosninga
nú. Aldrei hafa færri tekið afstöðu
í sambærilegum könnunum.
Alls tóku 43,5 prósent afstöðu
til spurningarinnar um stuðning
við stjórnmálaflokka, en könnunin
var gerð 7. og 8. desember. Þetta er
talsvert lægra hlutfall en í síðustu
könnun Fréttablaðsins og Stöðvar
2, sem gerð var í september, en þá
tóku 48,8 prósent afstöðu.
Í könnunum sem gerðar voru
eftir hrun var svarhlutfallið við
spurningu um fylgi flokkanna í
kringum 65 prósent.
Þetta lága hlutfall bendir til þess
að ekkert sé að draga úr óánægju
almennings með þá flokka sem
nú eru í boði. Rétt er að taka fram
að könnunin var gerð áður en til-
kynnt var um nýtt ónefnt framboð
á miðvikudag.
„Þetta bendir ekki til þess að
flokkarnir séu að jafna sig,“ segir
Gunnar Helgi Kristinsson, prófess-
or í stjórnmálafræði við Háskóla
Íslands.
Hann segir líklegt að þeir sem
hafi kosið stjórnarflokkana, Sam-
fylkinguna og Vinstri græna, í
síðustu kosningum séu síður til-
búnir að taka afstöðu til flokka en
þeir sem styðji Sjálfstæðisflokk-
inn eða Framsóknarflokk. Því megi
búast við því að stjórnarflokkarnir
eigi eitthvert fylgi inni þegar komi
að kosningum.
Óánægja með hefðbundnu flokk-
ana kemur í veg fyrir að boðað sé
til kosninga nú, sem þó væri eðli-
legt miðað við þá stöðu sem uppi
er í stjórnmálunum, segir Gunnar
Helgi. Jarðvegurinn fyrir ný fram-
boð sé því frjór.
Vegna þessa lága svarhlutfalls
verður að taka niðurstöðum um
fylgi flokkanna með fyrirvara. Af
þeim sem þó tóku afstöðu sögðust
49,6 prósent styðja Sjálfstæðis-
flokkinn, og 17,1 prósent myndi
kjósa Samfylkinguna ef gengið yrði
til kosninga nú.
Um 16,8 prósent sögðust styðja
Framsóknarflokkinn í könnun-
inni, en 13,7 prósent myndu kjósa
Vinstri græna.
Stuðningur við Sjálfstæðisflokk-
GENGIÐ 09.12.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
215,4886
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
118,62 119,18
185,53 186,43
158,5 159,38
21,317 21,441
20,572 20,694
17,542 17,644
1,5255 1,5345
184,31 185,41
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Einar Davíðsson einar.davidsson@365.is, Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson
orn.geirsson@365.is ALLT SÍMI 512-5402: Jóna Hafsteinsdóttir jmh@365.is, Brynja Gunnarsdóttir brynjag@365.is, Snorri Snorrason snorris@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Benedikt Jónsson benediktj@365.is, Sigríður Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Ívar Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-
5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, Sigrún Guðmundsdóttir sigrunh@365.is KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is
Megn óánægja með flokka
Aldrei hafa færri treyst sér til að taka afstöðu til stjórnmálaflokka en í nýrri skoðanakönnun Fréttablaðs-
ins og Stöðvar 2. Ekkert virðist draga úr óánægju með hefðbundna stjórnmálaflokka meðal kjósenda.
Nýtt þingframboð sem tilkynnt var um í vikunni, en hefur ekki fengið nafn,
hefur gott sóknartækifæri miðað við niðurstöður könnunarinnar, segir
Gunnar Helgi Kristinsson stjórnmálafræðiprófessor.
„Ríkisstjórnin er í mjög erfiðum málum, bæði pólitískt og vegna erfiðra
viðfangsefna. Þá er einhver fjöldi sem er ósáttur við ýmislegt hjá Sjálfstæðis-
flokknum og Framsóknarflokknum, til dæmis Evrópumálin,“ segir Gunnar.
„Þarna mætti segja að sé ákveðið markaðstækifæri fyrir þetta nýja fram-
boð, en hvernig verður spilað úr því á eftir að koma í ljós. Það hefur ekki
verið auðvelt að koma auga á um hvað þessi nýi flokkur á að snúast, þó það
megi gera ráð fyrir því að hann verði Evrópusinnaður, frjálslyndur og hallur
undir ný vinnubrögð,“ segir Gunnar Helgi.
Nafnlausi flokkurinn í sóknarstöðu
Fylgi stjórnmálaflokkanna
Heimild: Könnun Fréttablaðsins og Stöðvar 2
50
40
30
20
10
%
29,8
50,3 49,6
22,6
13,8
16,8
1,3 2,8
12,1
17,1
13,7
25
. a
pr
íl
20
09
28
. j
úl
í 2
00
9
15
. o
kt
. 2
00
9
7.
ja
nú
ar
2
01
0
18
. m
ar
s
20
10
23
. s
ep
t.
20
10
19
. j
an
. 2
01
1
24
. f
eb
. 2
01
1
6.
a
pr
íl
20
11
8.
s
ep
t.
20
11
7.
o
g
8.
d
es
. 2
01
1
Ko
sn
in
ga
r
23,7
21,7
14,8
7,2
inn stendur því sem næst í stað frá
könnun Fréttablaðsins og Stöðvar
2 sem gerð var í september síðast-
liðnum. Fylgi Vinstri grænna hefur
einnig lítið breyst. Heldur fleiri
segjast myndu kjósa Framsóknar-
flokkinn nú en í september, en tals-
vert virðist draga úr stuðningi við
Samfylkinguna.
Hringt var í 800 manns dagana 7.
og 8. desember. Þátttakendur voru
valdir með slembiúrtaki úr þjóð-
skrá. Svarendur skiptust jafnt eftir
kyni, og hlutfallslega eftir búsetu
og aldri.
Spurt var: Hvaða lista myndir
þú kjósa ef gengið yrði til kosn-
inga í dag? Ef ekki fékkst svar var
spurt: Hvaða flokk er líklegast að
þú myndir kjósa? Ef ekki fékkst
svar var að lokum spurt: Er lík-
legra að þú myndir kjósa Sjálf-
stæðisflokkinn eða einhvern annan
flokk? Þráspurt var með þessum
hætti til að reyna að fá fólk til að
taka afstöðu. Alls tóku 43,5 prósent
afstöðu. brjann@frettabladid.is
Þetta bendir ekki til
þess að flokkarnir séu
að jafna sig.
GUNNAR HELGI KRISTINSSON
PRÓFESSOR Í STJÓRNMÁLAFRÆÐI
28
.7
.2
00
9
15
.1
0.
20
09
7.1
.2
01
0
18
.3
.2
01
0
23
.9
.2
01
0
19
.1
.2
01
1
24
.2
.2
01
1
8.
9.
20
11
7.
o
g
8.
12
.2
01
1
60%
50%
40%
Taka afstöðu
Heimild: Könnun Frétta-
blaðsins og Stöðvar 2
Hlutfall þeirra sem taka afstöðu til stjórn-
málaflokka í könnunum Fréttablaðsins og
Stöðvar 2.
0%
DÓMSMÁL Íslensku Vítis-
englarnir hafa stefnt
Ögmundi Jónassyni innan-
ríkisráðherra og Haraldi
Johannessen ríkislögreglu-
stjóra fyrir dóm vegna
meiðyrða. Stefnan er í nafni
Hells Angels MC Iceland og
Einars Marteinssonar, for-
sprakka samtakanna hér
á landi. „Við erum bara að
svara fyrir okkur og sækja rétt
okkar til þeirra sem eru að brjóta
á okkur,“ segir hann.
Ögmundur er krafinn um samtals
fjórar milljónir vegna ummæla sem
hann hefur látið falla á vefsíðu sinni
og í viðtali við RÚV og snúast öll
um að Vítisenglar séu glæpasamtök
og meðlimir þeirra stundi ofbeldi.
Í stefnunni segir að ummælin á vef
hans komi frá honum sem
einstaklingi og tengist ekki
starfi hans.
„Þetta voru mjög mild
ummæli sem voru höfð
eftir mér miðað við aðstæð-
ur,“ segir Ögmundur. „Ég
er einfaldlega að vara við
því að við fáum yfir okkur
skipulagða glæpastarf-
semi. Það er staðreynd sem
lögregluyfirvöld í Evrópu og víðar
telja óvefengjanlega að Hells Ang-
els stunda skipulagða glæpastarf-
semi.“ Varla geti verið ámælisvert
að segja frá því. - sh
Krefja innanríkisráðherra um fjórar milljónir vegna ærumeiðandi ummæla:
Vítisenglar í mál við Ögmund
HARALDUR
JOHANNESSEN
ÖGMUNDUR
JÓNASSON
EINAR
MARTEINSSON
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
18°
8°
4°
4°
5°
9°
6°
6°
22°
6°
18°
7°
22°
-5°
8°
14°
3°Á MORGUN
8-15 m/s með n-strönd-
inni, annars hægari.
MÁNUDAGUR
3-10 m/s.
-13
-12
-14
2
-5
-5
-5
-2
-6
-12
-4
18
13
9
10
10
6
3
5
5
7
7
-5
-1
0
0
-3 -2 -5
-1
0
DREGUR ÚR
FROSTI á land-
inu á morgun og
verður frostlaust
við suður- og
austurströndina.
Í dag verður hins
vegar áfram mjög
kalt ásamt stífri
austanátt með
snjókomu um
sunnanvert landið
og því nauðsynlegt
að klæða sig vel
fyrir útivist.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður