Fréttablaðið - 10.12.2011, Blaðsíða 25
LAUGARDAGUR 10. desember 2011 25
KEMUR Í DAG
Jólalest
Hin árlega Jólalest Coca-Cola fer um höfuðborgarsvæðið
laugardaginn 10. desember með tilheyrandi jólatónum og ljósadýrð.
Lestin hefur ferð sína kl. 16:00 frá höfuðstöðvum Vífilfells að
Stuðlahálsi og ekur svo um helstu hverfi og bæjarfélög
höfuðborgarsvæðisins fram á kvöldið.
Leiðarlýsing með fyrirvara um að tímasetningar geta breyst er eftirfarandi:
16:00 - 17:00
Stuðlaháls, Grafarholt, Mosfellsbær, Grafarvogur, Vogahverfi,
Suðurlandsbraut, Höfðatún (Hamborgarafabrikkan), Sæbraut
17:00 - 18:00
Lækjargata, Mýrargata, Vesturbær, Hringbraut, Kringlumýrarbraut.
Kópavogur (byrjað í Hamraborg og endað í Smáralind)
18:00-20:00
Smáralind (lestin verður þar um kl. 18:00), Garðabær, Hafnarfjörður,
Austurbær Kópavogs, Breiðholt og svo að lokum Árbær.
Vinsamlega athugið að Jólalestin mun ekki aka um Laugaveg að þessu sinni.
Fylgist með ferð Jólalestarinnar á Jólastöðinni FM 96,7
Með þér um jólinNánari upplýsingar á Coke.is
C
o
c
a
-C
o
la
®
i
s
a
r
e
g
is
te
re
d
t
ra
d
e
m
a
rk
o
f
T
h
e
C
o
c
a
-C
o
la
C
o
m
p
a
n
y.
©
2
0
11
T
h
e
C
o
c
a
-C
o
la
C
o
m
p
a
n
y
Það þarf sennilega lítið til að gleðja mig hugsaði ég þegar ég sat með kaffiboll-
ann og ostabrauðið laugardagsmorguninn
29. október síðastliðinn og las grein í Frétta-
blaðinu eftir Snorra Baldursson þjóðgarðs-
vörð. Skondinn var hann á köflum þannig að
ég náði jafnvel að flissa.
Mér fannst dásemd þegar ég var upplýst
um það að í Vatnajökulsþjóðgarði eru bara
vegir, engar slóðir eða leiðir. Þannig að slóðin
sem ég keyrði á Dyngjufjallaleið á síðasta ári
er í dag orðin vegur. Hún er alveg eins og í
fyrra, en hefur bara fengið annað heiti. Leik-
ur að orðum og að mér læddist sú hugsun,
þegar ég tók sopa af kaffinu, að verið væri að
selja nýju fötin keisarans eina ferðina enn.
Þjóðgarðsvörðurinn vill einnig meina að
sumir vegirnir í garðinum séu þannig að aðil-
ar tengdir þjóðgarðinum hafi þrátt fyrir öfl-
uga jeppa ekki náð að aka um þá. Var klúður
í vegavali eða GPS skráningu hjá garðhönn-
uðum? Eða voru „tengdarnir“ á ferð á tíma
þegar ófært var um umrætt landssvæði?
Það er nefnilega svo sniðugt á Íslandi hvað
hálendisnáttúran á það til að vernda sig sjálf,
þannig að ófærð er á hálendi fram eftir vori,
jafnvel fram á sumar og ófærðin á það einnig
til að taka sig upp fljótt að hausti. Sumar
leiðir er ekki hægt að aka nema góðan mánuð
að sumri. Svo hugsaði ég, um leið og ég beit
í ostabrauðið, hvort tengdafólkið hafi verið
óvant að aka um á öflugum jeppunum, ég hef
jú oft heyrt að árinni kennir illur ræðari.
Mér þykir dálítið vænt um slóðir. Þær eru
svona í kvenkyni – eins og ég. Í mínum huga
eru þær lítið unnar, sjaldan eða aldrei hefl-
aðar, búnar til af farartækjum fjallanna,
jeppum, gönguskóm, gúmmístígvélum og
hrossum. Þær falla yndislegar inn í lands-
lagið, gæla við hæðir og strjúkast við lægðir.
Lagðar í sátt og útsjónarsemi. Eiga það til að
vera duttlungafullar og hverfa að hluta þegar
vindurinn blæs og vatnið leikur um.
Já, slóðir höfða til mín. Þær sýna svo vel að
við erum hluti af náttúrunni að það er pláss
fyrir okkur líka innan um öll hin vistkerf-
in. Ég er svo sem líka sátt við vegi, þeir eru
í mínum huga meira unnir og sjást frekar
í landinu. En ég er alveg til í að vera með
Snorra í liði að vernda vonda vegi. Það getur
verið markmið í sjálfu sér.
Það er frábært hvað kynslóðin okkar
Snorra er orðin klár í náttúruvernd, sáum
lúpínu, drepum lúpínu og allt
það. Já, og hvað við getum, í allri
vitneskju og náttúruþekkingu
okkar, sýnt þeim sem gengu á
undan með kjarki, frumleika og
dugnaði mikinn hroka.
Væri okkur ekki nær að vera
þakklát og auðmjúk þegar við
hugsum til þeirra sem fundu
vöðin og vörðuðu leiðirnar? Til
fólksins sem sagði okkur sögur
og gaf okkur slóða til að ferðast
á? Er það ekki okkar að heiðra
minningu þeirra og allt þeirra
starf? Að tala ekki um frum-
kvöðlana sem „heiðursmenn“ í
einni setningu en kenna þá síðan
við böðulsskap í þeirri næstu?
Að við nálgumst náttúru-
vernd á annan máta en fyrir
40-80 árum síðan er ekkert til að
státa sig af. Oft upplifi ég að við
höfum alls ekki efni á að setja
upp hinn heilaga umhverfissvip.
Í dag brennum við ekki sorp á víðavangi, nei
við brennum sorp í sorpeyðingarstöðvum –
okkur öllum til heilla... eða hvað?
Bæjarlækirnir okkar eru ekki að fá í sig
olíuskvettu, en ég vil benda á að bæjarlækir
borgarinnar eru fullir af rottueitri og saur-
gerlum, við getum örugglega komið með
fleiri slíkar samlíkingar. Ef siðvæðing ferða-
mennsku er að tala niður til þeirra sem ruddu
veginn þá vil ég ekki taka þátt, þaut í gegnum
huga minn þessa morgunstund um leið og ég
gleypti gúlsopa af köldu kaffi - oj hvað það
var beiskt og korgur í því.
Mér finnst óttalegt, hugsaði ég meðan ég
gutlaði með hálfkaldar restar í kaffiboll-
anum, að vegirnir í garðinum þurfi allir
að vera skilgreindir og staðlaðir og leiða
að einhverju. Mér finnst sjálfri ekki síðra
að upplifa ferðina, leiðina sjálfa, ófæruna,
umhverfið, ljóðin í landslaginu, sem ég óttast
að verði öll eins í stöðlun sinni og steriliser-
ingu. Áfangastaðurinn þarf ekki að skila mér
andköfum, þó það sé ekki síðra,
en slíkt er bónus í mínum huga.
Span milli áfangastaða er jafn
ólystugt og köld kaffirestin í
bollanum mínum.
Fyrst vörðurinn minnist á
Lakagíga þá er gaman að segja
frá því að eitt af fyrstu stikunar-
verkefnum Umhverfisnefndar
Ferðaklúbbsins 4x4 var á Laka-
gígasvæðinu. Í því skemmti-
lega verkefni tóku þátt félagar
í klúbbnum og sjálfboðaliða-
samtök, ásamt heimafólki, sem
þekktu hvern stein á svæðinu
og fengu fyrir ómælda aðdáun
jeppafólksins. Þar voru göngu-
stígar lagfærðir, vegslóðar stik-
aðir, óþarfa slóðum lokað og
rakað yfir gömul hjólför (Setrið
4.tbl. 3. árg. 1992). Ekki var
ófriður um svæðið þá og er ekki
enn í dag.
Ennþá stikar Umhverfisnefnd
Ferðaklúbbsins 4x4 slóða og lagfærir leiðir
sem þessar án þess að vera með upphrópanir
þar um. Ætli Snorri vilji stofna til einhvers
ófriðar um Lakagígasvæðið? Eða er ekki
kominn tími friðar, sátta og samstarfs þaut
um huga mér um leið og ég lokaði blaðinu og
skilaði kaffibollanum í vaskinn.
Hugleiðingar vegna skrifa þjóðgarðsvarðar
Hálendisferðir
Sæbjörg
Richardsdóttir
jeppakona
Svo hugsaði ég,
um leið og ég
beit í ostabrauðið,
hvort tengda-
fólkið hafi verið
óvant að aka
um á öflugum
jeppunum, ég
hef jú oft heyrt
að árinni kennir
illur ræðari.
Af netinu
Hefði neitað að fara
Ég er einn þeirra sem get borið
vitni um það hve mikil fyrir-
myndarstofnun St. Jósefsspítali
var. Þurfti tvisvar að fara þangað í
ristilspeglun til öndvegis læknis og
sjúkraliðs og hafa fáar heimsóknir
verið eins gefandi á alla lund.
Sem dæmi um góða þjónustu og
atlæti má nefna að í spítalanum
var sérstakt „viðrekstrarherbergi“
sem sjúklingar gátu farið inn í
eftir aðgerð á meðan iðrin voru
að ná sér. Efast ég um að aðrir
sambærilegir spítalar bjóði upp á
slíka þjónustu.
Ef ég hefði verið staddur inni á því
hljómmikla herbergi þegar loka
átti spítalanum hefði ég hiksta-
laust harðneitað að fara úr þaðan
og frekar látið bera mig út meðan
ég mótmælti á sem hávaðasam-
astan hátt með báðum endum!
http://omarragnarsson.blog.is
Ómar Ragnarsson
Síðbúin ást á safni
Siv Friðleifs og Þorgerður Katrín
kveina sáran yfir, að ekki sé enn
komið náttúrugripasafn. Ég er
hjartanlega sammála þeim. Hins
vegar skil ég ekki, af hverju þær
þögðu, þegar þær voru ráðherrar.
Er bara brýnt að fá safnið, þegar er
vinstri stjórn, en ekki þegar er hægri
stjórn?
Í Hafnarfirði kvarta Sjálfstæðismenn
sáran yfir leynd á lánakjörum bæjar-
ins. Ég er hjartanlega sammála.
Hins vegar skil ég ekki, hvers vegna
Sjálfstæðisflokkurinn við völd berst
ætíð af hörku gegn upplýsingum
um orkuverð. Er bara brýnt að fá að
vita, þegar vinstri stjórn er við völd,
en aldrei þegar er hægri stjórn?
jonas.is
Jónas Kristjánsson