Fréttablaðið - 10.12.2011, Page 100
10. desember 2011 LAUGARDAGUR72
krakkar@frettabladid.is
72
Þú getur sent brandara til krakkar@frettabladid.is
ÞAÐ ER HÆGT að læra um almannavarnir með alls konar leikjum. Á
síðu almannavarna http://www.almannavarnir.is/displayer.asp?cat_id=87
eru ýmsir leikir sem innihalda upplýsingar fyrir börn um hvernig bregðast
skuli við slysum og hamförum.
Þegar við erum að
baka er leiðinlegast að
bíða eftir kökunum í
ofninum. Þess vegna
eru kornflexkökur svo
sniðugar því þær þurfa
bara inn í ísskáp í
örstutta stund áður en
hægt er að borða þær.
100 g súkkulaði
100 g smjör
3 msk. sýróp
180 g kornflex
½ bolli rúsínur
Brjótið súkkulaðið í
mola og bræðið það
með smjörinu yfir
vatnsbaði. Fáið hjálp
frá fullorðnum við að
hita súkkulaðið og
passið að brenna ykkur
ekki. Hellið sýrópinu
út í súkkulaðibráðina
og hrærið og blandið
svo kornflexi og rús-
ínum úr í. Mokið með
matskeið í muffins-
form eða mokið litlar
hrúgur með teskeið á
bökunarpappír. Látið
kólna í ísskáp.
Kornflexkökur með rúsínum
Spurðu mig hvort ég sé kanína.
Ertu kanína?
Já, ég er kanína. Spurðu mig
hvort ég sé krókódíll!
Ertu krókódíll?
Nei, kjáninn þinn. Ég var að
segja þér að ég væri kanína.
Kennari: Stafaðu orðið rúm.
Drengur: R - ú - m - m.
Kennari: Slepptu öðru m-inu.
Drengur: Hvoru?
„Pabbi! Megum við fá hund á
jólunum?“
„Nei, ætli við höfum ekki
rjúpur eins og venjulega.“
Presturinn: „Pétur minn, hlust-
ar þú aldrei á samviskuna?“
Pétur: „Nei, á hvaða rás er
hún?“
Hvar kynntust þið Masa?
Sigga og María: Við hittum hann
á ferðalagi um Evrópu og urðum
bestu vinir upp frá því. Fljótlega
buðum við honum í Söngvaborg,
en þá hét hann svo skrítnu nafni
að enginn gat borið það fram.
Því gáfum við honum honum
nýtt nafn, í höfuðið á okkur
báðum, Ma(ría)Si(gga), og þann-
ig varð Masi til.
Masi, hví ertu appelsínugulur?
Masi: Ég er svo duglegur að
borða gulrætur heima í Ástralíu.
Ertu risaeðla?
Masi: Ekki beint! Meira svona
bangsi, en ég held að langalanga-
langalangalangalangalanga-
amma mín hafi þekkt risaeðlu.
Áttu fjölskyldu?
Masi: Já, eina ofurhressa
mömmu sem masar út í eitt.
Ég er sko bara jól og páskar
við hliðina á henni, hún masar
svo hræðilega mikið. Það getur
verið erfitt því við búum saman
í litlum strákofa í skógum Ástr-
alíu. Þið kynnist henni aðeins á
nýja Söngva borgar disknum.
Hvar ertu á jólunum?
Masi: Stundum er ég
á Íslandi með Maríu
og Siggu, en oftast
heima í Ástralíu. Þar
er bara svo heitt á vet-
urna að jólaskrautið
bráðnar! Maður verð-
ur helst að halda sig
neðanjarðar.
Hver er uppáhalds-
vinur ykkar af föst-
um gestum Söngva-
borgar?
Masi: Georg er
besti vinur minn.
Sigga: Allir í
Söngvaborg
eru bestu vinir
mínir.
María: Það er erfitt að gera upp
á milli, en Lóa ókurteisa er mikið
með okkur og alltaf líf og fjör í
kringum hana.
Þarf maður að vera barnavinur
til að geta búið til sjónvarpsefni
fyrir börn?
María: Já, og líka að vera í
tengslum við barnið í sjálfum
sér, geta sett sig í spor barna
og leikið við þau þótt maður sé
sjálfur orðinn fullorðinn.
Sigga: Ég tel að maður verði
að vera mikil barnagæla til
að geta búið til efni sem hent-
ar yngstu börnunum og líka að
hafa unnið með þeim, eins og
við söngkennslu. Maður verður
að setja sig vel inn í heim lítilla
stubba því þeir eru svo klárir að
vita upp á hár hvað þeim þykir
skemmtilegt og hvað ekki.
Við hvern eruð þið best?
Masi: Mamma
segir að maður
eigi að
vera góður við alla.
Sigga: Ég reyni alla jafna að vera
góð við alla og heiðarleg, því það
skilar sér alltaf til baka.
María: Ég reyni líka að vera góð
við alla, en þau sem eru best við
mig eru börnin mín og maður-
inn.
Eigið þið börn?
María: Ég á þrjú börn, tvö orðin
fullorðin en yngsta barnið er ell-
efu ára strákur.
Sigga: Ég á 7 mánaða tvíbura og
finnst skemmtilegast að syngja
með þeim..
Hvað finnst ykkur best við jólin?
Masi: Nammið og pakkarnir, en
auðvitað líka að allir séu saman
og að hafa það rosa gaman.
María: Ég er algjört jólabarn og
finnst allt skemmtilegt við jólin,
að eiga frí, vera með fjölskyld-
unni og borða góðan jólamat.
Sigga: Mér finnst hátíðleik-
inn og friðurinn bestur, og
að hitta fjölskylduna mína.
Ég hlakka ekkert smá til
jólanna núna, að eyða
þeim með fjölskyldunni
og stubbunum mínum.
Hver er óskajólagjöfin
ykkar?
Masi: Nýjasta Söngva-
borgin!
María: Ég hef ekkert
sérstakt í huga nema
að öllum líði vel og að
við eigum skemmti-
leg jól.
Sigga: Það er ekkert
sérstakt á mínum
óskalista, en besta
jólagjöfin verð-
ur að vera með
krílunum mínum
tveimur; ekkert í
veröldinni er mikil-
vægara.
JÓLASKRAUTIÐ HANS MASA
BRÁÐNAR HEIMA Í ÁSTRALÍU
Loðdýrið Masi, Sigga Beinteins og María Björk eru bestu vinir söng- og dans-
elskra barna í litríkri og kátri Söngvaborg. Þar fræða Söngvaborgarbúar smáfólkið
um lífið og tilveruna í gegnum barnalög, dans, hreyfileiki og fróðleik.