Fréttablaðið - 10.12.2011, Síða 120
10. desember 2011 LAUGARDAGUR92
* Gildir á meðan birgðir endast.
Jólaandinn er hjá
Vodafone
Þín ánægja er okkar markmið
vodafone.is
Frábær tilboð á snjöllum símum
Fjölskyldu ALIAS fylgir *
Nokia 700
59.990 kr. staðgreitt
eða 4.999 kr. á mánuði í 12 mánuði
Samsung Galaxy Y
24.990 kr. staðgreitt
eða 2.083 kr. á mánuði í 12 mánuði
Fjölskyldu ALIAS fylgir *
Í hugum margra á Norður-
löndunum eru jólin ekki
komin fyrr en Sissel
Kyrkjebø er komin á fón-
inn. Norska söngkonan er
komin til landsins, syngur
á tónleikum Frostrósa um
helgina í Hörpu og segist
sjálf vera mikið jólabarn.
„Þetta er í fjórða sinn sem ég kem
hingað. En ég verð að fara heim-
sækja landið að sumri til, ég hef
alltaf komið hingað á veturna,“
segir Sissel þegar hún kemur sér
fyrir á annarri hæð Hörpu. Hún
dásamar húsið um leið og síð-
ustu sólargeislarnir smeygja sér
inn en þetta er í annað sinn sem
Sissel syngur á jólatónleikum
Frostrósa. Hún bætir því við að
hún hafi komið í myrkri og sé því
þakklát að fá að upplifa smá dags-
birtu. „Ég er búin að lofa dætrum
mínum að næst þegar ég fari til
Íslands komi þær með.“
Það lá snemma fyrir að Sissel
yrði söngkona, hún vakti ung
athygli fyrir rödd sína og sló eft-
irminnilega í gegn árið 1986 þegar
hún söng í hléi Eurovision-keppn-
innar í Bergen, sama ár og Íslend-
ingar tóku fyrst þátt með Gleði-
banka Icey-tríósins. Árið eftir var
henni boðið að syngja fyrir hönd
Noregs í keppninni. „En ég var
búin með Eurovision, ég var líka
svo ung, bara sextán ára og lang-
aði að gera svo margt annað eins
og að klára skólann. Ég hef held-
ur aldrei haft þessa hvöt, að verða
heimsfræg og sigra heiminn.“
Ein mesta selda plata Noregs
frá upphafi er jólaplata Sissel,
Glade Jul, sem kom út árið 1987.
Hún hefur í dag selst í meira en
einni milljón eintaka. Sissel seg-
ist sjálf vera mikið jólabarn og
hún elski þennan tíma. „Ég hef
hins vegar aldrei leitt hugann að
því að vera hluti af jólahaldi fólks
en það er bara gaman ef maður
hefur þessi áhrif. Ég elska jóla-
lög og hef auðvitað farið í svona
jólatónleikaferðlög undanfarin ár.
En í ár er það bara Ísland sem ég
heimsæki,“ segir Sissel sem á sér
auðvitað sín eigin eftirlætisjóla-
lög. „Heims um ból er í miklu
uppáhaldi hjá mér af því að það er
svo hreint og maður hefur auðvi-
tað alist upp við það. Ó helga nótt
er síðan ákaflega sterkt jólalag.“
Sissel hefur daðrað við ólík-
ar tónlistarstefnur, sungið popp,
kántrí og jafnvel hipphopp fyrir
utan hina hefðbundnu klassík og
þjóðlög. Þá er það kannski ekki
á allra vitorði að Sissel á heið-
urinn af söngnum í tónlist kvik-
myndarinnar Titanic. Söngkon-
an leyfir sér reyndar að efast um
að hún eigi einhvern tímann eftir
að leggja kántrýið fyrir sig, það
hafi verið svolítið skondið hliðar-
skref. „Ágætis söngkennari sagði
mér að röddin mín væri eins og
Steinway-flygill. Sem er örugg-
lega eitt mesta hrós sem ég hef
fengið. En hún sagði að það væri
hægt að spila allar tónlistarstefn-
ur á þennan flygil, þetta væri
bara allt spurning um tækni og að
eyðileggja ekki hljóðfærið.“
Hryðjuverkin í Útey og Ósló
í sumar vöktu mikinn óhug og
Sissel söng í minningarathöfn-
inni fyrir fórnarlömbin sem hald-
in var í lok ágúst að viðstöddum
þjóðhöfðingjum Norðurlandanna.
Hún fékk það erfiða hlutskipti að
syngja norska sálminn Til ung-
dommen sem varð hálfgert ein-
kennislag þessa mikla harmleiks.
Sissel kemst örlítið við þegar hún
er beðin um að rifja upp þessa
einstöku stund. „Inni í herberg-
inu þar sem listamennirnir haf-
ast við og nota til að slaka á og
spjalla saman var dauðaþögn allan
tímann, fólk sat bara og hlust-
aði. Og þegar nöfnin voru lesin
upp þá risu allir úr sætum. Þetta
var mjög sérstök en um leið mjög
sterk stund.“ freyrgigja@frettabladid.is
Þrátt fyrir að aðeins ellefu ár
séu síðan kvikmyndin American
Psycho var frumsýnd virðist vera
kominn tími á uppfærslu.
Allavega samkvæmt kvik-
myndatímaritinu Variety, en
þar kemur fram að framleiðslu-
fyrirtækið Lionsgate hafi ráðið
handritshöfundinn Noble Jones
til að skrifa hand-
rit að endurgerð
American Psycho.
Christian Bale fór
með aðalhlutverk-
ið í upprunalegu
myndinni og
erfitt er að
sjá hvaða
leikari
gæti tekið
hlutverk-
ið að sér
eftir stór-
kostlega
frammi-
stöðu
hans.
American
Psycho
endurgerð?
TÍMABÆRT?
Til stendur að
endurgera hina
frábæru Amer-
ican Psycho.
Fyrrverandi hermaður í Íraks-
stríðinu þarf að greiða ríflega
tuttugu milljónir króna í máls-
kostnað eftir að hann tapaði
dómsmáli gegn framleiðend-
um kvikmyndarinnar The Hurt
Locker.
Hermaðurinn Jeffrey Sarver
höfðaði mál gegn leikstjóranum
Kathryn Bigelow og handritshöf-
undinum Mark Boal. Hélt hann
því fram að Óskarsverðlauna-
myndin hafi verið byggð á lífs-
reynslu hans sem sprengjusér-
fræðings og að myndin hafi ekki
sýnt hann í réttu ljósi. Dómurinn
féll honum ekki í hag en Sarver
ætlar að áfrýja málinu.
Hermaður
tapaði máli
SÉRSTÖK STUND Sissel Kyrkjebø söng norska sálminn Til ungdommen í minningarathöfn um fórnarlömbin í Útey en lagið var hálfgert einkennislag þessa mikla harmleiks.
FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
HEF ALDREI VILJAÐ SIGRA HEIMINN
Ágætis
söngkennari
sagði mér að röddin
mín væri eins og
Steinway-flygill. Sem
er örugglega eitt
mesta hrós sem ég
hef fengið.
SISSEL KYRKJEBØ
SÖNGKONA