Fréttablaðið - 10.12.2011, Side 126
10. desember 2011 LAUGARDAGUR98
sport@frettabladid.is
VILDARÁSKRIFT AÐ STÖÐ 2 SPORT INNIHELDUR 512 5100 STOD2.IS VERSLANIR VODAFONE VERSLANIR OG ÞJÓNUSTUVER SÍMANS 800 7000
Í KVÖLD KL. 20.45
STELLA SIGURÐARDÓTTIR OG KAREN KNÚTSDÓTTIR hafa báðar komist í hundrað marka klúbb A-lands-
liðsins á heimsmeistaramótinu í Brasilíu. Stella skoraði sitt hundraðasta mark í sínum 43. A-landsleik á móti Noregi en
Karen braut hundrað marka múrinn í sigrinum glæsilega á Þýskalandi sem var hennar fertugasti landsleikur. Stelpurnar
eru báðar fæddar 1990 og ættu því að hafa mörg ár til viðbótar til að bæta við mörgum mörkum með A-landsliðinu.
FÓTBOLTI Já, það er komið að því.
Leikur Real Madrid og Barcelona
fer fram í kvöld og það er nokkuð
ljóst að það eru ekki margir knatt-
spyrnuáhugamenn sem geta stað-
ist freistinguna að sjá tvö bestu lið
heims mætast í leik þar sem koma
saman fjölmargir frábærir fótbolta-
leikmenn, tveir stórbrotnir stjórar
og einstakur rígur sem virðist bara
magnast með hverri orustu.
Ekki dregur úr spennunni hvern-
ig síðasti leikur liðanna endaði en
honum lauk á hópslagsmálum í
uppbótartíma í seinni leik þeirra
í spænska súperbikarnum. Liðin
buðu upp á fimm mörk og frábær-
an fótbolta í 90 mínútur og allt varð
síðan vitlaust eftir ruddatæklingu
Real-mannsins Marcelo á Cesc
Fabregas hjá Barcelona. Enginn
gekk þó lengra en José Mourinho,
þjálfari Real Madrid, sem gekk
rólega upp að aðstoðarmanni Pep
Guardiola og potaði í auga hans.
„El dedo de Mou“ eða „Fingurinn
hans Mourinho“ á íslenskri tungu
er orðinn hluti að sögu félaganna
tveggja sem hafa barist um yfirráð-
in í spænska fótboltanum svo lengi
sem menn muna eftir sér.
Þeir bestu mætast
Augu flestra verða örugglega á
þeim Lionel Messi og Cristiano
Ronaldo sem hafa skorað yfir
hundrað mörk samanlagt á þessu
ári sem er að líða og eru að flestra
mati tveir bestu knattspyrnumenn
heims. Það hefur þó ekki verið sami
glans yfir leik þeirra í El Clasico.
Lionel Messi hefur skorað 13 mörk
í 15 leikjum á móti Real en Ronaldo
hefur „aðeins“ skorað 3 mörk í
9 leikjum á móti Barcelona. Eitt
þeirra var reyndar sigurmarkið
í bikarúrslitaleiknum í apríl. Sá
leikur er einstakur síðan Mourinho
mætti á Bernabéu. Þetta er eini
leikurinn sem Real hefur unnið
undir hans stjórn á móti Barca og
eini leikurinn sem liðið hefur náð
að halda hreinu á móti Börsungum
á sama tímabili.
Það er reyndar hægt að líta svo
á að það hafi verið ein samfelld
sigurganga hjá Barcelona síðan
Guardiola tók við en meðal annars
hefur Barca unnið 7 af 11 El Clasico
leikjum frá því að Guardiola settist
í bílstjórasætið.
Það sem gerir þennan leik í kvöld
aftur á móti enn athyglisverðari
er frábært gengi Real Madrid að
undanförnu annars vegar og slakt
gengi Barcelona á útivelli hins
vegar. Real Madrid hefur unnið tíu
deildarleiki í röð og alls fimmtán
leiki í röð í öllum keppnum. Bör-
sungar hafa að sama skapi aðeins
unnið 2 af 6 útileikjum sínum í
spænsku deildinni.
Tölfræðin skiptir engu
„Það er rétt að Madridar-liðið er í
góðum gír. Þeir eru betri en áður en
það þýðir samt ekkert. Clasico-leik-
irnir hafa ekkert með tölfræði að
gera og það getur allt gerst í þess-
um leikjum,“ sagði Xavi sem mun
spila sinn 600. leik fyrir Börsunga
í kvöld.
José Mourinho ætti samt að hafa
allt til alls til að sýna að forskot
Börsunga síðustu ár sé nú gufað
upp. Real-liðið er með þriggja
stiga forskot og hefur leikið sér að
flestum mótherjum sínum í sigur-
göngunni að undanförnu. Nú er
tíminn til að hefna fyrir tapið í
Meistaradeildinni í fyrra og það
þarf jafnframt að eyða út minn-
ingunni um 5-0 marka skellinn
fyrir ári.
Erum betri en í fyrra
„Maður veit aldrei í fótboltanum
því það kemur alltaf eitthvað á
óvart. Við erum samt með meira
sjálfstraust núna og við erum betra
lið en við vorum í fyrra,“ sagði Jose
Mourinho eftir sigurinn á Ajax í
vikunni en hann skrópaði á blaða-
mannafund í gær.
Eitt er morgunljóst. Barcelona
má helst ekki tapa í kvöld ætli þeir
sér að vinna titilinn fjórða árið
í röð. Real nær sex stiga forystu
með sigri auk þess að eiga leik inni
á Barcelona. ooj@frettabladid.is
Rýr uppskera Real í tíð Guardiola
El Clasico-leikurinn fer fram á Santiago Bernabéu í kvöld. Barcelona hefur haft betur síðustu ár en mætir
nú Real-hraðlestinni á fullri ferð. Það hefur varla kólnað í herbúðum liðanna eftir síðustu orustuna.
TÁKNRÆN MYND Lionel Messi sést hér skora á móti Real Madrid án þess að þeir Iker Casillas eða Cristiano Ronaldo geti nokkuð
gert til að stoppa argentínska snillinginn. Leikurinn hefst klukkan 21.00 í kvöld. NORDICPHOTOS/GETTY
FÓTBOLTI Alls fara sjö leikir fram í ensku
úrvalsdeildinni í dag og tveir á morgun.
Umferðinni lýkur svo á mánudagskvöldið með
stórleik Chelsea og Manchester City á mánu-
dagskvöldið.
Það vekur reyndar athygli að allir leikir
dagsins eru á sama tíma, klukkan 15.00, en þá
mun Manchester United freista þess að koma
sér aftur á strik eftir vonbrigðin í Meistara-
deildinni í vikunni. Þá féll liðið úr leik í keppn-
inni, rétt eins og grannarnir í City.
United mætir Wolves í dag en stuðnings-
menn liðsins fengu þær slæmu fréttir í gær
að Nemanja Vidic, lykilmaður í vörn og fyrir-
liði liðsins, verður ekki meira með á
tímabilinu þar sem hann er með slitið
krossband.
Arsenal heldur upp á 125 ára
afmælið sitt um helgina og mætir
Everton á heimavelli. Liðið hefur
spilað átta leiki í röð án þess að tapa
og Robin van Persie hefur verið
sjóðheitur með þrettán mörk
í síðustu tíu leikjum sínum.
Liverpool tekur á
móti Heiðari Helgu-
syni og félögum í QPR
á Anfield í dag en
Heiðar hefur sömuleiðis verið öflugur að und-
anförnu. Hann hefur skorað sex mörk í síð-
ustu sjö deildarleikjum sínum og munu því
varnarmenn Liverpool sjálfsagt hafa góðar
gætur á kappanum.
Á morgun mætir Tottenham liði Stoke á
útivelli en fyrrnefnda liðið er í þriðja sæti
ensku úrvalsdeildarinnar eftir frábært
gengi að undanförnu. - esá
Sjö leikir fara fram í ensku úrvalsdeildinni í dag en allir á sama tíma:
Særðir United-menn vilja ná sér aftur á strik
SVEKKTUR ROONEY
Wayne Rooney hefur ekki skorað í
átta leikjum í röð.
FÓTBOLTI Neil Warnock, stjóri
QPR, segir að ekki sé rétt það
sem fram kom í enska blaðinu
Daily Mail á dögunum að félagið
ætlaði að verðlauna Heiðar
Helguson með nýjum tólf mánaða
samningi fyrir góða frammistöðu
að undanförnu. Warnock sagði að
þeir væru ánægðir með Heiðar
en að umræða um framhaldið
væri ótímabær.
„Ég þurfti að berjast kröftug-
lega við Flavio [Briatore, þáver-
andi eiganda QPR] í sumar til
þess að gefa honum nýjan samn-
ing. Mér fannst hann vera okkar
Kevin Davies en fyrrum eigend-
ur vildu láta hann fara aldurs-
ins vegna,“ sagði Warnock en
Heiðar hefur farið á kostum að
undanförnu og skorað sex mörk í
síðustu sjö leikjum sínum.
„Hann er 34 ára gamall og nú
þegar samningsbundinn. Ég sé
því ekki fyrir mér að ég ætli að
gera sex ára samning við hann!“
- esá
Neil Warnock, stjóri QPR:
Mátti berjast
fyrir Heiðari
HEIÐAR Þarf að bíða eitthvað enn eftir
nýjum samningi. NORDIC PHOTOS/GETTY
HANDBOLTI Þýskir fjölmiðlar
fullyrtu í gær að þrír leikmenn
væru á leið frá úrvalsdeildar-
félaginu Rhein-Neckar Löwen í
sumar – þeir Róbert Gunnarsson,
markvörðurinn Henning Fritz og
skyttan Michael Müller.
Löwen hefur þegar tilkynnt að
Müller fari til Wetzlar í sumar
en þar hefur hann skrifað undir
tveggja ára samning. Félagið
hefur þó ekki staðfest brottför
Róberts og Fritz en Guðmundur
Guðmundsson er þjálfari liðsins.
Róbert kom til Löwen árið 2009
frá Gummersbach en hefur ekki
náð að festa sig í sessi í byrjunar-
liðinu en norski línumaðurinn
Bjarte Myrhol hefur staðið sig
vel með Löwen.
Alexander Petersson mun
ganga til liðs við Löwen nú í
sumar frá Füchse Berlin. - esá
Róbert Gunnarsson:
Sagður fara frá
Löwen í sumar