Teningur - 01.05.1990, Page 32
30 / BRETASÖGUR
TTMOTHY MO
BARDAGINN Á VEITINGAHÚSINU
Á móti kínverska veitingahúsinu,
Yuet Hop, í Twickenham var þrem
bílum lagt: tveimur Ford Cortína og
einum Cítróen. Allir voru þeir fjög-
urra dyra og um morguninn höfðu
þeir verið fjarlægðir frá bílastæði við
Shaftesbury Avenue og númerunum
breytt.
Rauði Lurkurinn sat í Cítróen
bílnum, sem var í miðjunni, en Járn-
plankinn í aftari Cortínunni og Nátt-
bróðir í fremsta bílnum. Klukkan var
hálf tíu að kvöldi. Árásin átti að hefj-
ast klukkan tíu, svo óvinurinn hefði
tíma til að verða sem drukknastur.
Drukknir menn voru auðveld bráð,
einsog Náttbróðir hafði bent á. Hann
lagði ekkert annað til málanna þegar
árásin var skipulögð. Bardagamennir
tveir höfðu viljað leggja til atlögu fyrr
en sáu síðan kostina við tímaáætlun
Náttbróðurs. Að öðru leyti höfðu
Rauði Lurkurinn og Járnplankinn
samið hernaðaráætlunina.
Það voru aðeins fjórir menn í
hverjum bfl. Einn stæði vörð með bíl-
inn í gangi á meðan hinir færu inn.
Þetta þýddi níu árásarliða. Nátt-
bróðir hafði óttast að það væri of
lítið. Inni í veitingahúsinu voru að
minnsta kosti tuttugu manns að
skemmta sér. Honum leist ekki á
útlitið, jafnvel þó að þeir væru
ódrukknir og vopnaðir en hinir
óvopnaðir og fullir. Rauði Lurkurinn
hafði útskýrt að í takmörkuðu rýminu
yrði það bara til vandræða ef þeir
væru fleiri en níu. Þeir mundu detta
um borð og stóla og jafnvel berja
hver annan þegar þeir tækju bakföll.
„Jafnvel út í víðáttunni geturðu
ekki notað fleiri en þrjá menn til að
ráðast samtímis á einn. Návíginu eru
takmörk sett.“
Það var einnig mikilvægt að komast
fljótt burt. Bílarnir urðu að vera í
gangi og tilbúnir að Ieggja af stað.
Eins urðu ökumennirnir að vera á
varðbergi gagnvart glæpamönnum á
vegum hins opinbera.
Rauði Lurkurinn hafði reiknað það
út að á fyrstu tíu sekúndum bardag-
ans ættu þeir að geta drepið eða barið
til óbóta að minnsta kosti sex eða sjö
manns. Þeir sem eftir væru ættu þá
allt sitt undir náð og miskunn rudda-
fenginna og blóðþyrstra bardaga-
manna sem allir voru vel vopnum
búnir. Þá mundu árásarmennirnir sjö
láta til skarar skríða. Á meðan
mundu Járnplankinn og Rauði
Lurkurinn að leita höfuðpaur óvinar-
ins uppi, króa hann af og drepa. Sam-
kvæmt úri Rauða Lurksins var
klukkan korter í tíu. Hann steig út úr
Citróen bílnum og gaf liðinu merki
um að fylgja sér. Hann hafði alltaf
ætlað að leggja til atlögu fimmtán
mínútum áður en áætlað var til að
minnka þá líkamlegu áreynslu sem
fylgdi taugaálaginu í liði hans.
Þeir voru ekkert að hafa fyrir því
að fela vopnin. Á auðri götunni huldi
myrkrið þá og óvinurinn sat veislu við
tvö borð á miðri jarðhæðinni. Maður-
inn með öxina gekk fyrstur inn um
dyrnar, feti á undan mönnunum með
sveðjuna. Hann hélt vopninu niðri.
Hann hóf öxina á loft og hjó á milli
herðablaðanna á manni sem drakk
bjór. Mennirnir sem sátu honum til
beggja handa þutu upp og stóðu áður
en maðurinn með öxina gat lyft henni
á ný. En í hringiðu fallandi stóla og
fátinu sem greip um sig voru hinir
árásarmennirnir nú mættir til leiks.
En þá hafði maðurinn með öxina á ný
reitt til höggs og hæft sitjandi mann í
höfuðið. Það heyrðust brestir, einsog
þegar kókóshneta er brotin á frost-
þungum morgni. Á sama tíma höfðu
mennirnir með sveðjurnar stungið
sex eða sjö sinnum með sínum léttu
vopnum. Borðdúkurinn var blóð-
ugur; óp hinna særðu blönduðust
siguröskrum árásarmannanna.
Á þessum fyrstu tíu sekúndum
höfðu átta menn verið teknir úr
umferð.
En hitt borðið var ósnert, borðs-
gestir felmtri slegnir. Rauði Lurkur-
inn lét manndrápin allt í kring sem
vind um eyru þjóta. Þess í stað stóð
hann og sveiflaði langri hnútasvipu
með vinstri hendinni. Hann hæfði tvo
menn í andlitið og felldi þá báða.
Hann linaði takið og stóð síðan með
kjöthnífinn á meðal hinna flýjandi
manna. Hann beygði sig niður, stakk
á hol með stuttum og hnitmiðuðum
stungum, í nárann og kviðinn. Síðan
felldi hann tvo í viðbót. Mennirnir
sem svipan hæfði höfðu rotast án þess
að gefa frá sér hljóð; en þessir æptu.
Stálglampar sáust í munni Rauða
Lurksins. Annar sem svipan hæfði
var risin á hnén. Á teppinu fyrir
framan hann glitruðu blóðugar tenn-
urnar einsog perlur. Hann hélt hönd-
unum um mölbrotinn kjálkann.